Fjarðarpósturinn - 12.03.2015, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar
Kynning
Opið hús verður í kvöld 12. mars kl. 20
að Flatahrauni 29 eins og alla fimmtudaga.
Í kvöld ætlar Ævar Ágústsson félagi okkar, að sýna okkur hvernig hann grefur
bleikjuflök. En þess má geta að uppskriftin sem hann notar birtist í síðasta
blaði okkar Agninu. Auðvitað fáum við að smakka líka. Allir hjartanlega
velkomnir og það verður heitt á könnunni
Fræðslu og skemmtinefnd SVH
FJÖRÐUR Páll B. Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Ársæll Ó.
sölufulltrúi
896 6076, as@remax.is
Lækjargötu 34d, Hafnarfirði
Vantar eignir á skrá
Mikil eftirspurn! Frítt söluverðmat
Púttmót fyrir alla
Styrktarmót fyrir unglinga- og afrekskylfinga
Á sunnudaginn kl. 13-17
verður haldið opið púttmót í
Hraunkoti á Hvaleyrinni. Þetta er
styrktarmót fyrir unglinga- og
afrekskylfinga sem eru á leið í
æfingaferð til Spánar.
Fjöldmörg fyrirtæki hafa sýnt
stuðning í verki með því að gefa
glæsileg verðlaun. Veitt verða
verðlaun fyrir efstu sætin og
einnig verður dregið úr skor-
kortum svo allir þátttakendur
eiga möguleika á vinningi hvort
sem þeir eru góðir í púttinu eða
ekki. Mótsgjald er 1.000 kr.
Seldar verða nýbakaðar vöfflur
með sultu og rjóma og ilmandi
kaffi eða hressandi safa á aðeins
500 kr. en púttmótið er eins og
áður segir opið öllum.
í Fjarðarkaup!!
Í tilefni af mottumars fer fram sala á
armböndum og segulmottu til styrktar
starfsemi Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar.
Salan verður anddyri Fjarðarkaupa á föstudaginn
kl. 14-19 og á laugardaginn kl. 12-16.
Söfnunarfé félagsins rennur til ýmissa starfa eins
og forvarnastarfs í átaki gegn munntóbaksnotkun
unglinga, styrkja til ýmissa félagasamtaka sem vinna fyrir
krabbameinssjúka og margt fleira.
Tækifærið er núna
Á undanförnum vikum og
mán uðum hafa farið fram
viðræður á milli Hafnar fjarð-
arbæjar og Landsnets.
Tildrög viðræðnanna
er ósk Landsnets um
framkvæmdaleyfi í
landi Hafnarfjarðar til
lagningar Suður nesja-
línu 2, sem á að tryggja
flutnings ör yggi á
rafmagni til Suður-
nesja. Af þessu má því
augljóslega ætla að
Hafnarfjörður sé með
pálmann í höndunum í þess um
viðræðum við Lands net. Án
okkar fram kvæmda leyfis, getur
Landsnet ekki farið í þessar
framkvæmdir. Sam ningsstaðan
er loksins okkar megin.
Landsnetslínurnar
Eins og allir Hafnfirðingjar
þekkja, ekki síst þau okkar sem
búa á Völlunum, þá liggja línur
Landsnets í niður með Skarðs-
hlíðinni, þaðan í gegnum tengi-
virki í Hamranesi og þar sem ein
lína tengist álverinu og
hin, sem kallast Suður-
nesjalína 1 stefnir beint
í átt að uð urnesjum.
Ósk Lands nets um
fram kvæmdaleyfi bæt
ir svo við línum og
línu stæðum (möstrum)
í átt til Suðurnesja.
Þvert á óskir íbúa í
Vallarhverf inu, þá mun
línum í lofti fjölga. Þó
er stefnt að því að setja línurnar
sem liggja með Skarðshlíðinni í
jörðu. Það er einungis hálfur
sigur fyrir bæjarbúa, ekki síst
fyrir þá Vallabúa sem nú þegar
hafa fjárfest í hverfinu þeim
megin þar sem nýjar línur munu
koma. Kröfur okkar Hafnfirðinga
ættu að vera eftirfarandi:
1) Suðurnesjalínur 1 og 2 fari í
jörðu frá Hamranesvirki
2) Línurnar sem ná frá álverinu
að Hamranesvirkinu fari í
jörðu
3) Þar með verði ekki neinar
línur í lofti inn í Hamranes-
virkið og verði þá gengið frá
því með þeim hætti að
ásættanlegt sé fyrir umhverfið.
Til dæmis með trjám og
gróðursettum mönum og að
byggt verði yfir aflspenna sem
gefa frá sér suð sem gnæfir
yfir nærliggjandi íbúahverfi.
Okkur mun ekki gefast annað
eins tækifæri í samninga við-
ræðum við Landsnet og einmitt
núna þegar fyrirtækið þarf virki-
lega á Hafnarfjarðarbæ að halda.
Þess vegna eigum við að setja
kröfurnar hátt og ekki sætta
okkur við neinar málamiðlanir.
Tækifærið er núna.
Höfundur er bæjarfullstrúi (S)
Ófeigur
Friðriksson
Menningarviki í Grindavík
Nágrannar okkar bjóða til veislu
Menningarvika Grindavíkur
verður haldin 14.-22. mars n.k.
en þetta er sjöunda árið í röð sem
þessi veisla fer fram. Aldrei hafa
fleiri viðburðir verið á dagskrá.
Menningarvikan hefur í sjálfu
sér aldrei farið hátt á landsvísu
en hefur fyrir löngu skipað stóran
sess í menningarlífi Grindvíkinga
og vaxið ásmegin á hverju ári.
Grindavíkurbær náði þeim
merka áfanga í byrjun árs að
íbúafjöldi fór í fyrsta skipti yfir
þrjú þúsund og því er sannarlega
ástæða til að gleðjast.
Tónleikar, myndlistasýningar,
skemmtidagskrár, námskeið og
fjölbreyttir viðburðir eru í
aðalhlutverki þar sem framlag
heimafólks er í öndvegi en til
Grindavíkur koma margir góðir
gestir til að sýna og skemmta,
m.a. frá vinabænum Piteå.
Menningarvikan verður með
fjölþjóðlegum blæ og kemur
fjölmenningarráð Grindavíkur
að skipulagningu nokkurrra
viðburða í fyrsta sinn.
Grindavíkurbær er næsti
nágranni Hafnarfjarðar í suðri og
til gamans má geta að Hafn-
firðingar sem ætla að heimsækja
bæjarland Hafnarfjarðar, Krýsu-
vík, þurfa að fara í gegnum land
Grindavíkur til að komast þang-
að. Hafnfirðingar og Grindvík-
ingar eiga því ýmislegt sam-
eiginlegt og Hafnfirðingar sér-
staklega velkomnir á Menningar-
vikuna.
Landsnet hefur sótt um
framkvæmdaleyfi fyrir lagningu
Suðurlandslínu 2 í Hafnarfirði,
220 kV loftlínu, sem fyrst um
sinn verður rekin á 132 kV
spennu. Í grenndarkynningu sem
send hefur verið til eigenda húsa
sem liggja næst línunni, kemur
fram að framkvæmdin sé í
samræmi við aðalskipulag
Hafnarfjarðar 2013-2025. Þó ber
að horfa til þess að fyrsti kafli
línunnar er bráðabirgðaloftlína
sem liggja á frá tengivirkinu við
Hamranes. Það tengivirki á hins
vegar að breytast í spennistöð
þegar nýtt spennuvirki Landsnets
verður reist í Hrauntungum,
skammt austan Gjásels. Frá því
eiga línur að álverinu í
Straumsvík að liggja þegar þær
verða teknar niður við Hamranes.
Skipulags- og byggingarráð
samþykkti á fundi sínum 24. feb.
sl. að fela sviðstjóra að grenndar-
kynna erindið – ef Skipulag-
stofnun mælti svo fyrir. Skipu-
lagsstofnum mælti með því að
framkvæmdin yrði grennd ar-
kynnt. Mætti ætla að viðbótar-
raflínur sunnan Vallahverfisins
væri það stórt mál í hugum
bæjar búa að það ætti að fá
al menna kynningu en öll loforð
um brottflutninga á línum við
hverfið hafa verið brotin og
Hafnarfjarðarbær var í slæmri
samningsstöðu efir að hug-
myndum um stækkun álversins
var hafnað. Skv. grenndar-
kynningunni á línan frá Hamra-
nesi að Hrauntungum síðar að
fara í jarðstreng en hvergi í
grenndarkynningunni kemur
fram hvenær það verður né
hvenær línur verða teknar niður
hverfisins.
Miklar umræður hafa risið um
þetta mál innan Facebookhóps
íbúa Valla.
Athugasemdum við fram-
kvæmdina skal skila fyrir 5.
apríl. nk.
Suðurlandslína 2 veldur miklum deilum
Íbúar á Völlum ekki tilbúnir að samþykkja áform Landsnets
HRAUNTUNGUR
Krýsuvíkurvegur