Fjarðarpósturinn - 12.03.2015, Page 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
9. og 10. bekkingar
eru sérstaklega
hvattir til þess að
koma og kynna
sér nám við skólann.
Flatahrauni 12
220 Hafnarfirði
sími 585 3600
www.idnskolinn.is
OPIÐ HÚS
Í IÐNSKÓLANUM
Í HAFNARFIRÐI
MÁNUDAGINN 16. MARS
FRÁ KL. 14–17
Forinnritun nemenda í 10. bekk
(fæddir 1999 eða síðar) hefst
miðvikudaginn 4. mars og lýkur
föstudaginn 10. apríl.
Karlakór Hreppamanna leggur
nú lokahönd á undirbúning
árlegra vortónleika sinna sem
eru reyndar óvenju snemma
þetta árið. Að þessu sinni heldur
kórinn þrenna tónleika, þá fyrstu
í Selfosskirkju 21. mars kl. 15 og
sama dag í Félagsheimili Hruna
manna á Flúðum kl. 20.30. Síð
ustu tónleikarnir verða svo í
Guð ríðar kirkju í Reykjavík mið
viku daginn 25. mars kl. 20.
Einsöngvari á öllum tónleikunum
verður Þóra Einarsdóttir sópran.
Stjórnandi kórsins er Edit
Molnár og píanóleikari Miklós
Dalmay.
Þema dagskrárinnar að þessu
sinni er náttúra, maður, hestur.
Auk lagavals í anda þessa efnis
verður sýning á völdum ljós
mynd um úr stóru safni Sig urð ar
Sigmundssonar frá SyðraLang
holti þar sem saman fer í mynd
um viðfangsefni tónleik anna. Úr
nógu er að velja þar sem þessi
ótrauði Hreppamaður ku aldrei
hafa gleymt mynda vélinni á
ferðum sínum um fagra náttúru
landsins á mót manna og hesta.
Með myndasýningunni vill kór
inn minnast þessa heiðurs manns.
Kórinn hefur fengið til liðs við
sig Þóru Einarsdóttur óperu
söngvara sem trónir nú á toppi
íslenskra sóprana. Skemmst er
að minnast frábærrar frammi
stöðu hennar í Óperunni Ragn
heiði eftir Gunnar Þórðarson og
Friðrik Erlingsson þar sem hún
fór með titilhlutverkið. Hún
hefur sungið í fjölmörgum
óperu húsum og á ýmsum öðrum
vettvangi víða um lönd og
hvarvetna hlotið lof fyrir söng
sinn. Þóra syngur sóló með kórn
um auk nokkurra einsöngslaga
við píanóleik Miklósar.
Edit Molnár stjórnar kórnum
eins og áður og Miklós Dalmay
leikur á píanó. Bæði tvö hafa þau
skólað kórinn til í þeim listræna
metnaði sem á sér enga undan
komuleið. Náttúra – maður –
hestur býð ur upp íslenskar
náttúru stemn ingar, eins og þær
gerast ljúfastar, og gustmikil
hestalög. Viðfangsefnið er styrkt
af Menningarráði Suðurlands
Þóra Einarsdóttir sópran.
Vortónleikar Karlakórs Hreppamanna
Tónleikarnir hafa verið vinsælir meðal Hafnfirðinga
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða
starfsfólk til sumarstarfa.
Eftirfarandi störf eru í boði:
Flokksstjórar í Vinnuskóla
Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum
Leiðbeinendur í skólagörðum
Leiðbeinendur á gæsluvöllum
Flokkstjórar í sérhópum
Lágmarksaldur umsækjenda um þessi störf er
21 ár (fæddir 1994)
Í fegrunarflokki (blómaflokki)
Í sláttuflokki
Í viðhaldsflokki
Aðstoðarleiðbeinendur á íþrótta- og
leikjanámskeiðum
Aðstoðarleiðbeinendur í skólagörðum
Aðstoðarleiðbeinendur á gæsluvöllum
Aldur umsækjenda um þessi störf er 17-20 ára
(fæddir 1995-1998).
Í flestum tilvikum er vinnutímabilið 6 – 7 vikur.
Fjöldi vinnustunda í viku getur verið breytilegur
eftir árgöngum.
Sótt er um sumarstörf rafrænt á
www.hafnarfjordur.is.
Ath. að umsóknarfrestur er til 1. apríl. Ekki er
tekið á móti umsóknum eftir þann tíma.
Fyrirspurnir má senda á netfangið
vinnuskoli@hafnarfjordur.is
SUMARSTÖRF HJÁ
HAFNARFJARÐARBÆ 2015
TÓNLEIKAR
Stolin stef í Hafnarborg
Á sunnudaginn kl. 20 verða
tónleikar í Hafnarborg þar sem
Kammerkór Hafnarfjarðar syng
ur lög sem Gunnar Gunnarsson
píanóleikari og organisti hefur
raddsett og útsett.
Stór hluti efniskrárinnar eru
lög eftir Tómas R. Einarsson,
bassaleikara. Tómas notar ljóð
hinna ýmsu skálda eins og Hall
dórs Laxness, Snorra Hjartar
sonar o.fl. Gunnar Gunn ar sson
og Tómas R. Einarsson leika
með Kammerkórnum. Nánar á
kammerkor.is