Fjarðarpósturinn - 19.03.2015, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Markaðsstofa Hafnarfjarðar er
loks að verða að veruleika. Ekki
skiptir umgjörðin miklu máli eða
nafnið, heldur það að loksins skuli
viðurkennt að það þurfi að beina
augum að markaðssetningu fyrir
Hafnarfjörð. Það eru ekki mörg ár
síðan, þegar Pósturinn fór úr miðbænum og gamla
pósthúsið stóð autt lengi. Þegar spurt var hvort ekki væri
hægt að laða einhverja góða verslun í húsið voru svörin
hjá Hafnar fjarðarbæ; „Við eigum ekki þetta húsnæði“.
Sem betur fer hafa viðhorfin breyst og mikilvægt að
hugað sé að hag fyrirtækja í bænum. Þó mikilvægt sé að
laða ný fyrirtæki að bænum er ekki síður mikilvægt að
hlúa að þeim sem fyrir er og með samstarfi fyrirtækja er
hægt að kalla fram meiri samfélagsábyrgð og frumkvæði
frá fyrirtækjum.
Eitt af þeim málum sem komu upp í umræðu á
umræðufundi um Markaðsstofu Hafnarfjarðar sl.
þriðjudag voru umferðarmál. Var það allt frá umræðu
um flækjustig við að fjölga stæðum á Dalshrauni um
10 upp í áhyggjur af flæði umferðar að 700
bílastæðum við Flugvelli. Það hefur ekki borið á
mikilli pressu stjórnmálamanna í að fá mislæg
gatnamót á Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg þrátt
fyrir að þau séu mjög aðkallandi, bæði fyrir íbúa á
Völlum og á Hvaleyrarholti og ekki síður fyrir
iðnaðarsvæðið í Hellnahrauni og á Völlum. Slík
mislæg gatnamót eru ekki á áætlun fyrr enn 2018
2020 en formaður skipulags og byggingarráðs vakti
hjá mönnum vonir að hafist yrði handa við þau strax
á næsta ári en sagði þó engin loforð hafa fengið.
Upplýsti hann að fulltrúar bæjarins hafi fundað með
innanríkisráðherra, Vegagerð og fl. þar sem þrýst hafi
verið mjög á úrbætur. Reyndar nefndi hann úrbætur á
Reykjanesbraut að Kaplakrika einnig án þess að
skýra það nánar. Það er vonandi að árangur náist en
því miður hafa kurteisislegar og hljóðlátar umræður
um slík mál sjaldan gagnast mikið. Hávær þrýstingur
á stjórnmálamenn virðist alltaf hafa virkað betur.
Kannski það lærist líka með nýrri Markaðsstofu.
Það er mikilvægt að gott aðgengi sé að fyrirtækjum
eins og Icelandair en stór spurning er sett við það
hvort kosta eigi umferðarmannvirki til að þjóna 700
bíla stæði á flottasta byggingarsvæði bæjarins fyrir
atvinnustarfsemi. Það fást ekki miklir fasteignaskattar
af bílastæðum!
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 22. mars
Guðsþjónusta kl. 11
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs
Sunnudagaskóli kl. 11
í Hásölum Strandbergs safnaðarheimilis
Hafnarfjarðarkirkju.
Miðvikudagur 25. mars
Morgunmessa kl. 8.15
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs
Morgunverður í Odda. Athugið að þetta
er síðasta morgunmessa vetrarins.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 22. mars
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11
Skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna.
Hljómsveitin síkáta leiðir sönginn að vanda.
Allir velkomnir.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudaginn 22. mars
Messa kl. 11
Gídeonmenn kynna starf samtakanna.
Sunnudagsskóli á sama tíma.
Þar er gulur dagur í aðdraganda páska.
Aðalsafnaðarfundur
að messu lokinni.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Miðvikudagur 25. mars kl. 13.30-15.30
Starf eldri borgara
Sr. Halldór Reynisson kynnir Nýja dögun,
samtök um sorg og sorgarviðbrögð.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 22. mars
Fermingarmessa
kl. 10.30
Kór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar.
Halldór Reynisson þjónar.
www.vidistadakirkja.is
Actavis verður
Allergan
Sameining hefur gengið í garð
Sameining Actavis og bandaríska frumlyfjafyrirtækisins
Allergan sem tilkynnt var í Kauphöllinni í New York í
nóvember er gengin eftir. Verður Actavis eitt af 10 stærstu
alþjóðlegu lyfjafyrirtækjum í heimi með áætlaðar tekjur
yfir 23 milljarða dala á þessu ári. Hrukkulyfið Botox er
þekktasta lyf Allergan. Actavis keypti Allergan og er
kaupverðið metið á 70,5 milljarða dala.
Actavis stefnir á að taka upp nafn Allergan sem nýtt
alþjóðlegt heiti samsteypunnar en höfðustöðvar Actavis
eru í Dublin á Írlandi þar sem þetta var tilkynnt á
þriðjudaginn.
Vilja bætta nýtingu
neysluvatns
Fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar í stýrihópi um vatnsvernd
fyrir höfuðborgarsvæðið, Sigurður Haraldsson, lagði
fram eftirfarandi bókun f.h. Hafnarfjarðarbæjar á fundi
hópsins með framkvæmdastjórn vatnsverndar.
„Á höfuðborgarsvæðinu verði þess vandlega gætt að
íbúar, iðnaður og þjónusta búi við heilnæmt vatn og
hagkvæma neysluvatnsöflun. Þá verði markvisst stefnt
að því að vatnsöflun verði án utanaðkomandi orku eins
og frekast er mögulegt. Vatnsöflun verði eins sjálfbær
og kostur er. Fjárfestingar í vatnsbólum, aðveitum og
miðlunarmannvirkjum á höfuðborgarsvæði verði nýttar
áfram eins og mögulegt er og gerðar áætlanir um
miðlun neysluvatns á milli sveitarfélaga ef hættuástand
skapast. Verndun vatnsbóla og neysluvatns auð
lindarinnar verði sameiginlegt viðfangsefni og verndun
hennar og nýting markviss. Stefnt verði að bættri
nýtingu og meðferð neysluvatns innan höfuð borgar
svæðis ásamt aukinni samvinnu í rekstri vatnsveitna á
höfuðborgarsvæði.“
Stýrihópurinn vinnur að endurskoðun á vatnsvernd
fyrir höfuðborgarsvæðið og hefur samþykkt nýjar
tillögur til sveitarstjórna.