Fjarðarpósturinn - 19.03.2015, Qupperneq 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Alls voru íbúar Hafnarfjarðar
27.875 þann 1. janúar sl. og hafði
þá fjölgað um 1,9% á einu ári.
Á sama tíma fjölgaði Reyk
víkingum um 0,5%, Kópa vogs
búum fjölgaði um 2,8%, Garð
bæingum um 1,9% og Mosfell
ingum um 2,5%.
Stærstu árgangarnir eru 4, 5 og
6 ára en 5 ára er stærsti árgang
urinn, 484 Hafnfirðingar. Á eftir
þeim koma svo 21 árs, 35, 24 og
42 ára þar sem allir árgangarnir
eru yfir 430 manns.
Aldursdreifing
09 ára 4.244
1019 ára 3.984
2029 ára 4.037
3039 ára 3.947
4049 ára 3.735
5059 ára 3.545
6069 ára 2.338
7079 ára 1.279
80100 ára 766
Heimild: Hagstofan.
Ásvallabraut
Samgöngubót eða
umhverfisslys
Á fundi Bæjarstjórnar Hafnar
fjarðar 21. janúar sl var samþykkt
að auglýsa nýtt deiliskipulag
sem felur aðallega í sér breytta
legu og forsendur fyrir
stofnbraut sem kallast
Ásvallabraut. Ég undir
ritaður ásamt fjöl mörg
um íbúum Áslands
mót mæli þessu skipu
lagi harð lega og teljum
við í raun umhverfis
og samgönguslys vera í
uppsiglingu. Stofn
braut in liggur allt of
ná lægt íbúðarhúsum í
Áslandi 3, sérstaklega við
Brekku ás og Furuás með tilheyr
andi hávaða, umhverfisraski,
loft mengun og slysagildrum
fyrir börn
10-15 þúsund bílar á
sólarhring
Í greinargerð VSÓ um fram
kvæmdina er áætluð umferð um
brautina árið 2025 talin vera um
1015 þúsund bílar á sólarhring
sem kallar á götuþversnið með
fjórum akreinum. Þetta um
ferðar ferlíki er ekki í takt við
kynn ingarbækling sem undir
ritaður og fleiri landnemar hér í
Áslandi 3 fengu í hendur fyrir 9
árum síðan. Þar stóð m.a „Svæð
ið liggur í hlíðum Ásfjalls milli
Kaldárselsvegar og fólkvangs.
Fólkvangurinn gefur íbúum á
þessu svæði einstaka möguleika
til útivistar“ Það er einmitt þetta
sem íbúar hverfisins hafa nýtt
sér. Á sumrin hefur holtið og
móinn verið notað sem áhyggju
laust leiksvæði barnanna sem
fela sig í lúpínum, tína ber, veiða
fiðrildi og byggja kofa og full
orðnir ganga, skokka og viðra
hunda. Nú skal kljúfa þenn an
möguleika til útivistar með
stofnbraut sem beinir um ferð
framtíðar byggingar svæða um
fólkvanginn spölkorn frá
byggðinni og inn á Kald ársselsveg
og hringtorg við enda hans sem er
nú þegar sprungið á álagstímum. Í
deiluskipulaginu frá 2006 var
reyndar teiknaður vegur en lítið úr
honum gert og talað um að
ofanbyggðavegur myndi taka
mesta umferðarþungann. Samn
ingar hafa ekki náðst við Garðabæ
um legu ofanbyggðavegar og nú á
að bregðast við lítilli eftirspurn
eftir lóðum í Skarðshlíð og lokka
fólk þangað með „bættum sam
göng un“ á kostnað okkar og
náttúr unnar.
Umhverfisáhrif
Í þrettánda kafla grein ar gerð
arinnar er talað um um hverfis
áhrif. Til teknir þættir eru metnir
og vægi þeirra gefinn
einkunn, já kvæð, nei
kvæð eða hlutlaus.
Áhrifin eru neikvæð á
landslag og ásýnd en
hlutlaus á útivist og
lýðheilsu? (hvernig
sem þeir fá það út!)
Einu jákvæðu áhrifin
eru á samgöngur þó
líklegast gleym ist að
taka inn í stóraukið
álag á hringtorg og götur sem
anna ekki núverandi umferð.
Reyndar segir orðrétt í greinar
gerðinni „Skipu lagssvæði Ás
valla brautar er 16 ha umfangs
mikið umferðar mannvirki sem
getur haft nei kvæð áhrif á ásýnd,
útivistargildi og hljóðvist. Talið
er að þrátt fyrir mótvægisaðgerðir
eru líkur til að áhrif breytingar
innar séu nokkuð neikvæð.“
Þetta er vond skyndilausn sem
leysir engan vanda og skilur eftir
sig sviðna jörð. Tenging við
Skarðshlíð og Velli frá Áslandi
er ekki nauð synleg á næstu árum
og þegar hennar verður þörf er
hægt að leggja þannig sunnan
við hesthúsin eftir að nauð syn
legar úrbætur á þröngum og illa
upplýstum Kald ársselsvegi hafa
átt sér stað.
Setjum mikilvægari verkefni
í forgang
Ég og aðrir íbúar hér sættum
okkur ekki við þetta deiliskipulag
og höfum ekki sagt okkar síðasta
orð. Við teljum mun meiri þörf á
allsherjar átaki í viðgerð gatna
um allan bæ sem eru á mörgum
stöðum í hræðilegu ástandi og að
bætt verði við tengingu frá Valla
svæði yfir á Reykjanesbraut til að
leysa úr umferðarvanda þar.
Íbúar Valla verða ekki bætt ari
með að bíða í biðröðum í Ás
land inu. Einn ig viljum við að
bæjar stjórnin girði sig í brók og
gangi frá samningum um nauð
synlegar úrbætur í Áslandsskóla
sem mun stytta skóladag barn
anna okkar og minnka álag á
göturnar og minnka loftmengun.
Í dag þarf nefnilega að keyra öll
börn í rútum í íþróttir og sund því
að sú aðstaða bíður tilbúinn á
teikni borðinu meðan bæjar
stjórnin vill fresta framkvæmd
um.
Höfundur er íbúi við Furuás.
Ásgeir
Stefánsson
1,9% fjölgun í Hafnarfirði
Fjölgaði um 518 í Hafnarfirði á síðasta ári
Karlalið Hauka í körfuknattleik
hefur átt mjög gott tímabil og
endaði í 3. sæti deildarinnar í ár.
Er þetta besti árangur liðsins í 12
ár og náði liðið að sigra öll liðin
í deildinni, að minnsta kosti einu
sinni, og þarf að leita ansi langt
aftur til að finna sambærilegan
árangur.
Markmið liðisins í vetur var að
enda í fjórum efstu sætum deild
arinnar og tryggja heima vallar
rétt í úrslitakeppninni. Það náðist
í jafnri deild og enduðu Haukar
jafnir af stigum og Njarðvík. En
Haukar áttu betra innbyrðis
stigaskor á Njarðvíkinga og
enduðu þeir því ofar á töflunni.
Ungt lið
Haukar eru með ungt lið,
flestir eru á aldrinum 1723 ára,
strákar sem uppaldir eru hjá
félaginu. Þeir stigu sín fyrstu
skref í úrslitakeppninni 2011
þegar liðið tapaði 12 fyrir
Snæfell og voru svo komnir í
leiðtogahlutverk fyrra þegar liðið
var slegið út af Njarðvík 03 í
afar jöfnum leikjum í 8 liða
úrslitum.
Heimaleikur við Keflavík á
morgun á Ásvöllum
Framundan er úrslitakeppnin
þar sem Haukaliðið spilar á móti
Keflavík en lokaleikur liðsins í
deildinni var einmitt gegn þeim
þar sem Haukar sigruðu nokkuð
örugglega. Keflavík endaði í 6.
sæti deildarinnar og hafa Haukar
því heimavallarréttinn gegn
þeim í 8 liða úrslitum. Leikar
hefjast á Ásvöllum á morgun,
föstudag kl. 19.15 og það lið sem
fyrr vinnur þrjá leiki fer áfram í
undanúrslit.
Sigri Haukar í viðureigninni
við Keflavík mætir liðið líklega
Tindastól, sigri þeir Þór Þ. sem
verður að teljast líklegt. KR sem
ætti ekki að klúðra sinni
viðureign við Grindavík mætir
þá annað hvort Njarðvík eða
Stjörnunni en liðin sem komast í
undanúrslit raðast eftir núverandi
stöðu í deildinni.
Hafnfirðingar eru hvattir til að
mæta og sýna Haukaliðinu
stuðn ing í viðureigninni gegn
Keflavík og það er alveg hægt að
lofa skemmtilegum körfubolta.
Haukur Óskarsson einbeittur.
Besti árangur Hauka í 12 ár
Karlalið Hauka endaði í 3. sæti úrvalsdeildarinnar í körfubolta
Lj
ós
m
.:
A
xe
l F
in
nu
r
Aðalfundur
Félags eldri borgara í Hafnarfirði
verður haldinn fimmtudaginn 26. mars kl. 14
í Hraunseli, Flatahrauni 3.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál.
Frítt kaffi og meðlæti
og væntanlega tónlist og söngur.
Stjórn FEBH
Sólvangur
Fá ekki að
fjölga
rýmum
Velferðarráðuneytið hefur
með bréfi dags. 24. janúar sl.
svarað bréfi Hafnarfjarðarbæjar
dags. 12. maí 2014 þar sem
óskað er eftir fjölgun dag
dvalarrýma um tvö rými í
dagdvölinni sem rekin er að
Sólvangi.
Þar sem ekki er gert ráð fyrir
fjárveitingum til fjölgunar
dagdvalarrýma í fjárlögum
ársins 2015 telur Velferðar
ráðuneytið ekki unnt að verða
við beiðni um ný dagdvalarrými.
Eflaust hefur hin langa töf á
afgreiðslu erindisins orðið til
þess að slík fjölgun var ekki
einu sinni til umræðu við
fjárlagagerð.
Ráðuneytið baðst velvirð
ingar á síðbúnu svari.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Nú er rétti tíminn
fyrir trjáklippingar!
Áður en trén vakna úr vetrardvala
Fellum einnig stór tré og fjarlægjum úr görðum
Gerum föst tilboð
Áratuga reynsla og fagmennska
Grænu karlarnir ehf.
Kristján Bjarnason garðyrkjufræðingur s. 8482418