Fjarðarpósturinn - 22.04.2015, Blaðsíða 15
www.fjardarposturinn.is 15FJARÐARPÓSTURINN | MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Nýir þjálfarar hjá Haukum í handbolta
Annar kemur úr Eyjum og hinn skiptir um kyn!
Handknattleikslið Hauka í
meistaraflokki fá nýja þjálfara
fyrir næstu leiktíð. Bæði karla
og kvennaliðið hefur átt góðu
gengi að fagna í vetur, kvenna
liðið komst í úrslitakeppnina og
karlaliðið er í góðum málum
með að komast í úrslitaleikinn og
búið að vinna tvo leiki í röð gegn
Val og gat tryggt sig áfram með
sigri í gær eftir að Fjarðar
pósturinn fór í prentun.
Gunnar Magnússon, sem
þjálfað hefur ÍBV með góðum
árangri, tekur við karlaliðinu af
Patreki Jóhannessyni og Óskar
Ármannsson, sem verið hefur
aðstoðarþjálfari karlaliðs Hauka
svo lengi sem elstu menn muna,
tekur við kvennaliðinu og má því
segja að hann hafi aðeins skipt
um kyn. Gerður var 3ja ára
samningur við Gunn ar en
gárungar telja að Óskar sé
æviráðinn hjá Haukum.
Handbolti:
23. apríl kl. 16, Ásvellir
Haukar - Valur (ef þarf)
úrvalsdeild karla - 4 liða úrslit
26. apríl kl. 16, Hlíðarendi
Valur Haukar (ef þarf)
úrvalsdeild karla - 4 liða úrslit
18. apríl kl. 16, Ásvellir
Haukar - Valur
úrvalsdeild karla - 4 liða úrslit
21. apríl kl. 19.30, Hlíðarendi
Valur Haukar
úrvalsdeild karla
Handbolti úrslit:
Karlar:
Valur Haukar: (þriðju.d.)
Haukar Valur: 2119
Valur Haukar: 2432
Körfubolti úrslit:
Karlar:
Haukar Tindastóll: 6269
Körfubolti karla
Haukar úr
leik
Tindastóll sló Hauka út í
úrslitakeppni karla í körfu
knattleik. Haukar sigruðu
nokkuð örugglega í þriðja leik
liðanna en Tindastóll gerði út
um vonir Hauka með sigri í
fjórða leiknum á Ásvöllum á
laugardaginn, 6962.
Tindastóll mætir KR í
úrslitum.
Íþróttir
Hefur
áhyggjur af
framtíð
Iðnskólans
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
lýsir yfir áhyggjum af framtíð
Iðnskólans í Hafnarfirði í ljósi
þeirra viðræðna sem nú eru
farnar af stað um hugsanlega
sameiningu við Tækniskólann.
Kemur þetta fram í ályktun
sem bæjarstjórn samþykkti á
fundi sínum í síðustu viku. Þá
segir ennfremur:
„Iðnskólinn hefur mikilvægu
hlutverki að gegna í skóla
samfélaginu í Hafnarfirði og
þjónar ekki einungis þeim
fjölda hafnfirskra ungmenna
sem þar stundar nám heldur
einn ig nemendum annars staðar
að af höfuðborgarsvæðinu og
land inu öllu. Bæjarstjórn Hafn
arfjarðar leggur þunga áherslu á
mikilvægi fjölbreytts fram
halds náms, og þá ekki síst iðn
náms, í bæjarfélaginu og óskar
eftir upplýsingum og samráði
um framtíð Iðnskólans í Hafn
ar firði. Bæjarstjórn leggur
áherslu á að starfsemi Iðn skól
ans í Hafnarfirði verði áfram í
bænum.“
Ekki hefur verið upplýst hver
hagræðing á að verða af sam
einingu skólanna.
Óskar Ármannsson t.v. og Gunnar Magnússon t.h. ásamt Þorgeiri
Haraldssyni formanni handknattsleiksdeildar Hauka.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Vor ganga
Skóg ræktar
félagsins
Á laugardaginn kl. 11 stendur
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
fyrir skógargöngu um Gráhellu
hraun. Mæting er við hesthúsin
í Hlíðarþúfum við Kaldár
selsveg. Gangan tekur um eina
og hálfa klukkustund.
Boðið verður upp á kaffisopa
í Þöll að göngu lokinni. Nánari
upplýsingar í síma 555 6455
eða á www.skoghf.is.