Fjarðarpósturinn - 07.05.2015, Side 7
www.fjardarposturinn.is 7FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2015
Handbolti:
8. maí kl. 19.30, Ásvellir
Haukar - Afturelding
úrvalsdeild karla - úrslit
11. maí kl. 19.30, Mosfellsbær
Afturelding - Haukar
úrvalsdeild karla - úrslit
13. maí kl. 19.30, Ásvellir
Haukar - Afturelding
úrvalsdeild karla - úrslit (ef þarf)
Knattspyrna:
9. maí kl. 14, Ólafsvík
Víkingur Ó. - Haukar
1. deild karla
10. maí kl. 14, Ásvellir
Haukar - Víkingur Ó.
Bikarkeppni kvenna
10. maí kl. 19.15, Kaplakriki
FH - Keflavík
úrvalsdeild karla
Handbolti úrslit:
Karlar:
Afturelding - Haukar: (miðv.)
Knattspyrna úrslit:
Karlar:
KR - FH: 1-3
Íþróttir
Garpar Sundfélags Hafnar-
fjarðar urðu Íslandsmeistarar í
sundi öldunga sem haldin var í
Vestmannaeyjum dagana 24. og
25. apríl síðast liðinn. Það voru
15 galvaskir garpar sem fóru til
Eyja og syntu til sigurs og er
þetta 19. árið í röð sem þeir verða
Íslandsmeistarar í sundi. Fékk
SH 1.074 stig og sunddeild
Breiðabliks varð í öðru sæti með
883 stig. Karlarnir fengu 793 stig
en Breiðblik var í öðru sæti með
432 stig. Breiðablik fékk hins
vegar flest stig kvenna, 405 stig
en SH var í öðru sæti með 251
stig.
Kór Flensborgarskólans, sem
var á ferð í Vestmannaeyjum
þessa helgi, söng þjóðsönginn í
upphafi mótsins. Einnig sungu
þau í lokahófi mótsins við góðar
undirtektir.
Sigurlið Sundfélags Hafnarfjarðar. Sumir kepptu í mörgum greinum og uppskáru vel.
Eldri SH-ingar miklir sundgarpar
19. Íslandsmeistaratitillinn í röð!
Þann 13. maí næstkomandi
verða liðin 87 ár síðan Dýra-
vernd unarfélag Hafnfirð inga var
stofnað í Góðtemplarahúsinu.
Markmiðið með stofnun félags-
ins var að bæta aðbúnað dýra í
umdæmi Hafnarfjarðar og vera
málsvarar velferðar þeirra.
„Margt hefur unnist á þessum
tíma sem liðin er frá stofnun
félagsins en tímarnir og aðstæður
hafa breyst svo og áherslur,“ seg-
ir Helga Þórunn Sigurðar dóttir,
stjórnarmaður í félaginu, en
félagið var endurvakið af Þyrni-
rósarsvefni fyrir skömmu. For-
maður félagsins er María Þor-
varðar dóttir. Einkunnarorð
félags ins eru „Allir jafnir“.
Á árum áður tengdist starf
Dýraverndunarfélags Hafn-
firðinga að miklu leyti búfénaði
sem nú er að mestu horfið úr
umdæminu. „Það sem ekki hefur
breyst er sá mikilvægi þáttur í
starfi félagsins að hlúa að dýrum
sem þess þurfa og t.d. gefa smá-
fuglunum þegar harðir vetur eru
og æti fyrir þá af skornum
skammti. Í dag er gæludýrahald
mun útbreyttara en áður og
þörfin þar fyrir Dýraverndunar-
félagið hefur berlega komið í ljós
á síðan félagið var endurvakið í
febrúar sl.,“ að sögn Helgu.
Fyrir skömmu var stofnaður
innan félagsins Óskasjóður
Púkarófu, sem Helga segir að sé
kenndur við hina fallegu Frú
Púkarófu, ættmóður margra
villikatta í Hafnarfirði. Hlutverk
sjóðsins er að hjálpa villikisum
og vergangs köttum bæjarins um
dýralæknis þjónustu, matargjafir,
skjólkassa. Neyðarnúmer
Óskasjóðs Púka rófu er 8596646.
Þá er Guðmundur Fylkisson
með verkefnið Project ,,Henry“
innan vébanda félagsins en það
snýr að því að huga að lífsgæðum
fuglanna á tjörninni.
Helga hvetur alla dýravini
bæjarins að skrá sig í Dýra-
verndunar félag Hafnfirðinga á
facebook eða í síma 662 5258 en
ársgjaldið er aðeins 500 kr.
Stóll til leigu
Til leigu er stóll á Hársnyrtistofunni Hár.
Upplýsingar gefur Aldís í síma 555 3955 og 662 6653.
Hársnyrtistofan Hár
Hjallahrauni 13, Hafnarfirði • sími 555 3955
87 ár frá stofnun
Dýraverndunarfélagsins
Endurvakið af Þyrnirósarsvefni í febrúar sl.
Á laugardaginn verður upp-
skeruhátíð rytmískrar deildar
Tónlistarskólans í Hafnarfirði í
Hallsteinssal við Skólabraut. Þar
koma fram hópar nemenda undir
stjórn kennara sinna og leika lög
af ýmsum toga. Starf rytmísku
deildar tónlistarskólans hefur
verið með ágætum undanfarin ár
og hafa margir hlotið góða þjálf-
un og lokið prófum fyrir frekara
nám í tónlistarskóla FÍH. „Ber að
þakka kennurum fyrir þeirra
ötula starf að menntun nemenda
sinna,“ segir Stefán Ómar
Jakobs son, deildarstjóri í Tón-
listar skólanum. Tónkvísl er mik-
il miðstöð nemenda Tónlistar-
skólans sem sjálfstætt starfa að
hugmyndum sínum í tónlist og
hafa fengið aðgang að húsnæðinu
og tilsögn kennara til æfinga.
„Þetta er sannarlega hvatning
sem hefur borið ávöxt,“ segir
Stefán Ómar. Eru bæjarbúar
hvattir til að líta á starfið í
Tónkvísl, gamla leikfimishúsinu
á laugardaginn sem hefst með
opnu húsi kl. 13 og tónleikum kl.
13.30. „Það verður enginn
svikinn af því og allir fara glaðari
út í vorið,“ segir Stefán Ómar.
Rytmísk uppskera
í Hallsteinssal
Bæjarbúum boðið í heimsókn
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ungir tónlistarmenn fylgjast með „Papa Blues“, Guðmundi
Steingrímssyni sem spilaði með krökkunum í Tónkvísl í febrúar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n