Fjarðarpósturinn - 04.06.2015, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
Á golfnámskeiðinu verður farið yfir alla helstu þætti
golfleiksins, reglur og golfsiði á vikulöngum námskeiðum
Markmið golfleikjanámskeiðanna:
– eru fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 5 til 12 ára
– að fyrstu kynni af golfi eru jákvæð og það er gaman að leika golf
– farið verður í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga
– leiknar eru nokkrar golfholur á golfvelli- kennsla er gjarnan í formi
golfleikja ýmisskonar
– áhersla er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum
– iðkendur geta tekið fleiri en eitt námskeið
Dagsetningar:
8. - 12. júní 5 dagar (mán. - föst.)
15. - 19. júní 4 dagar (mán. - föst. frídagur mið. 17. júní)
22. - 26. júní 5 dagar (mán. - föst.)
29. júní - 3. júlí 5 dagar (mán. - föst.)
13. - 17. júlí 5 dagar (mán. - föst.)
Hægt er að velja um námskeið frá kl. 9:00 - 11:45 eða kl. 12:30 - 15:15
Haldin verða tvö námskeið á dag í 5 vikur. Hægt er að fá lánaðan golfbúnað
meðan á námskeiði stendur. Allir eiga að mæta með hollt og gott nesti.
Fimm daga námskeiðin kosta kr. 10.000. Fjögurra daga námskeiðin kosta kr. 8.000.
Veittur er 20% systkinaafsláttur og einnig ef viðkomandi sækir fleiri en eitt námskeið.
Krakkarnir kynnast einnig leikjum og æfingum með svokölluðum SNAG búnaði,
en hann hentar sérlega vel til að auðvelda iðkendum að ná betri tökum á íþróttinni
og að auka skemmtanagildið.
Umsjónarmenn golfleikjaskólans hjá Keili eru þeir Karl Ómar Karlsson PGA golfkennari
og grunnskólakennari og Axel Bóasson afrekskylfingur úr Keili ásamt golfleiðbeinendum.
Allir krakkar sem ljúka námskeiðinu fá aðild að Sveinskotsvelli og verða skráð í Keili
Námskeiðum lýkur með pylsuveislu og afhendingu viðurkenningarskjals frá GK
Búið er að opna fyrir skráningu á slóðinni keilir.felog.is
Ef fólk lendir í vandræðum þá eru leiðbeiningar á heimasíðu Keilis, keilir.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna inn á keilir.is
Golfklúbburinn Keilir mun
í samstarfi við Golfklúbb
Setbergs bjóða uppá
golfnámskeið á báðum
völlum í ár
Myndir á Strandstígnum
Hafnarfjörður frá sjónarhóli kvenna
Byggðasafn Hafnarfjarðar
hefur sett upp nýja ljósmynda-
sýningu á sýningarstöndum
sínum við Strandstíginn.
Þetta er sýningin „Hafnarfjörð-
ur frá sjónarhóli kvenna“ en á
henni eru ljósmyndir, frá fyrri
hluta 20. aldar, eftir þær Ólafíu
G. Jónsdóttur og Sigríði Erlends-
dóttur. Á sýningunni sem nær
allt frá Fjörukránni, meðfram
höfninni og vestur Herjólfsgötu
eru 56 ljósmyndir á 20 skiltum.
Ein af myndunum sem sjá má á sýningunni.Sýningarstandar við Strandstíginn.
Fjölgreina
deildin
starfar til
áramóta
Óvíst um framhaldið
Mjög misvísandi svör hafa
verið gefin í fræðsluráði um
stöðu fjölgreinadeildarinnar sem
Lækjarskóli rekur í gamla Lækj-
arskóla en þar eru unglingar sem
rekast illa í öðrum skólum. Hefur
þessi starfsemi blómstrað og
ekki vitað annað en almenn
ánægja sé með hana, a.m.k. er
henni hampað á hátíðisdögum.
Nú hefur komið í ljós að þrátt
fyrir loðin svör sem vísuðu í að
það hafi verið í skoðun hjá fyrri
meirihluta að loka fjölgreina-
deildinni, er það nú í skoðun hjá
núverandi meirihluta að loka
fjölgreinadeildinni.
Í minnisblaði fræðslustjóra frá
30. maí kveður aðeins við annan
tón en áður um umræðu á síðasta
kjör tímabili en þar stendur: „Á
síðasta kjörtímabili voru um -
ræður um hvort ætti að halda
þessu úrræði áfram eða leggja
deildina niður og að hver skóli
myndi þá sinna þessum nem-
endum. Væri það meira í anda
skóla án aðgreiningar.“
Úttekt á sérúræðum
Til stóð að vinna úttekt á sér-
úrræðum í grunnskólum Hafn-
arfjarðar en það dróst m.a. vegna
þess að beðið er eftir viðmiðum
Sambands íslenskra sveitarfélaga
um sérúrræði og sérdeildir sem
nýlega var sett inn í reglugerð.
Tillögur um næstu áramót
Í þessu nýja minnisblað
fræðslustjóra segir að í ljósi þess
að forsendur hafi breyst, án þess
að getið sé hvaða forsendur það
séu, sé lagt til að áðurnefnd
grein ing verði unnin á haust-
mánuðum og tillögur um skipan
sérúrræða í grunnskólum Hafn-
ar fjarðar liggi fyrir eigi síðar en
um næstu áramót. Þar til verði
fyrirkomulagið óbreytt.
Fjölgreinadeildin hefur
vakið athygli víða
Fjölgreinadeildin saman stend-
ur af nemendum sem hafa illa
rekist í almennum skólum og
hafa fengið að blómstra í þessari
deild þar sem kennslan miðast
við þarfir nemendanna. Hefur
deildin hlotið fjölda viður-
kenninga og skrifað hafa verið
um hana ritgerðir í háskólum.
Leiðrétting
Sílamávur
Í stuttri frétt með mynd í
síðasta blaði var sagt að á
myndinni væri svartbakur. Það
mun ekki rétt að sögn sérfróðra.
Var myndin af sílamáv sem lík-
ist svartbak en er allmiklu
minni og nettari. En svartbakur
er hann síla mávur inn!