Fjarðarpósturinn - 25.06.2015, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015
styrkir barna- og unglingastarf SH
Sundstund
gefur gull í mund Hjallahrauni 8 - 699 6393 www.studiodis.is
Passamyndir
Stofnað 1982
Dalshrauni 24
Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
reikningar • nafnspjöld • umslög
bæklingar • fréttabréf • bréfsefni
og fleira
Dalshrauni 24 • 220 Hafnarfirði • 555 4855 • steinmark.is • steinmark@steinmark.is
Stafræn prentun
Gormun/hefting
Samið um
rekstur
Bæjarbíós
til eins árs
Sami rekstraraðili
Menningar og ferðamálanefnd
hefur samið við Menningar og
listafélag Hafnarfjarðar um
rekstur Bæjarbíós til eins árs.
Hefur MLH séð um rekstur
bíósins undanfarið.
Nýi samningurinn var ekki
birtur í fundargerð nefndarinnar
og innihald hans því óþekkt.
Kvikmyndasafn Íslands hefur
viljað taka aftur yfir rekstur
bíósins en ekki náðist sam
komulag um það og hefur safnið
tilkynnt að það muni fjarlægja
sínar eignir úr bíóinu vilji
Hafnar fjarðarbær ekki kaupa
þær af safninu og er sýningar
tjaldið eitt þeirra.
Sjóðsstjórn
sagði af sér
Allir þrír stjórnarmenn í sjóði
Friðriks Bjarnasonar og
Guðlaugar Pétursdóttur hafa
sagt sig úr stjórninni. Sjóðurinn
var stofnaður í samræmi við
erfðaskrá þeirra hjóna og
sjóðnum er ætlað að efla
tónlistarlíf í Hafnarfirði, þó
einkum til eflingar sönglífs í
bænum og að styrkja nemendur
til tónlistarnáms og fræðimenn
í tónlist.
Sjóðurinn hefur verið van
máttugur undanfarin ár en skv.
skipulagsskránni er ekki heimilt
að veita úr sjóðnum árlega
meira en 90% af vöxtum af
eignum hans.
Bandalag kvenna í Hafnarfirði
stóðu fyrir hátíðarhöldum 19.
júní sl. í tilefni þess að 100 ár eru
liðin frá því konur fengu kosn
inga rétt til Alþingis.
Þann sama dag var íslenski
fáninn samþykktur af konungi
sem þjóðfáni Íslendinga en þess
var ekki minnst í Hafnarfirði
frekar en að þann sama dag
fengu um 40% kosningabærra
karla líka kosningarétt til
Alþingis.
Dagskráin hófst með
helgistund við kapellu heilagrar
Barböru í Kapelluhrauni þar sem
Agnes M. Sigurðardóttur biskup,
séra Sigríður K. Helgadóttir
fríkirkju prestur og séra Þórhildur
Ólafs þjónuðu. Nemendur
Tónlistar skóla Hafnarfjarðar
blésu í lúðra og sungu.
Hátíðardagskrá var svo í
Hásölum með tónlist og fl. Mjög
fjölmennt var og troðfullt í
Hásöl um.
Fjölmennt á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna
Hátíð kvenna fyrir konur í Hafnarfirði
Biskupinn og álverið í Straumsvík í bakgrunni.
Bjartey Sveinsdóttir söng.
Að ofan: Rósa Guðbjartsdóttir flutti ávarp.
Til vinstri: Þjóðbúningasýning Annríkis.
Gengið að kapellu heilagrar Barböru.
Andi gamalla tíma sveif yfir vötnum þjóðbúningar og kökur.
Lj
ós
m
yn
di
r:
K
ris
tja
na
Þ
ór
dí
s
Á
sg
ei
rs
dó
tti
r
Vertu með á:
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Smelltu á
LÍKAR VIÐ