Fjarðarpósturinn - 02.07.2015, Blaðsíða 7
www.fjardarposturinn.is 7FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Knattspyrna:
2. júlí kl. 16, Helsinki
SJK - FH
Evrópudeild karla
2. júlí kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - Þróttur R.
1. deild karla
5. júlí kl. 20, Frostaskjól
KR - FH
bikarkeppni karla
7. júlí kl. 19.15, Ísafjörður
BÍ/Bolungarvík - Haukar
1. deild karla
8. júlí kl. 20, Fjölnisvöllur
Fjölnir - FH
1. deild kvenna
Knattspyrna úrslit:
Karlar:
Fjölnir - FH: 1-3
Selfoss - Haukar: 0-1
Konur:
HK/Víkingur - Haukar: 5-0
FH - Víkingur Ó.: 1-0
Íþróttir
Actavis tilkynnti á mánudaginn
að ákvörðun hefur verið tekin
um að færa framleiðslu lyfjaverk-
smiðjunnar í Hafnarfirði til ann-
arra framleiðslueininga sam-
stæð unnar. Þetta er gert í hagræð-
ingarskyni og er sagt vera liður í
því að tryggja samkeppnishæfni
fyrirtækisins á alþjóðavettvangi.
Engar breytingar eru fyrirhug-
aðar á starfseminni á næstunni
og mun þessi ákvörðun ekki hafa
áhrif á störf hjá framleiðslu-
einingunni að svo stöddu en
fyrstu breytinga fer að gæta í
árslok 2016 þegar fyrstu áfangar
í flutningi framleiðslunnar hefj-
ast. Gert er ráð fyrir að starfsemi
verksmiðjunnar á Íslandi verði
lögð niður um mitt ár 2017.
Önnur starfsemi á Íslandi
verður óbreytt en hérlendis er
fjöl breytt alþjóðleg starfsemi,
m.a. á sviði lyfjaþróunar fyrir
alþjóðamarkaði, skráningarsvið
sem ber ábyrgð á skráningum og
viðhaldi markaðsleyfa út um
allan heim, alþjóðlegt gæðasvið
og fjármálasvið, auk sölu- og
markaðs sviðs sem sinnir Íslands-
markaði, sem og ýmis stoðsvið.
Þá eru hér í Hafnarfirði höfuð-
stöðvar Medis, dótturfélags
fyrir tæk isins, sem selur lyf og
lyfja hugvit Actavis til annarra
lyfja fyrirtækja. Um það bil 300
starfsmenn eru hjá framleiðslu-
einingunni í Hafnarfirði og um
þriðjungur þeirra búsettur í
Hafnarfirði.
Robert Stewart, forstjóri sam-
heitalyfjasviðs og alþjóða fram-
leiðslu samstæðunnar segir:
„Ég vil taka sérstaklega fram
að þessi ákvörðun endurspeglar
ekki frammistöðu starfsmanna
enda hefur framleiðslueiningin á
Íslandi skilað framúrskarandi
árangri undanfarin ár og verið til
fyrirmyndar þegar kemur að
gæðastjórnun, öryggismálum og
þjónustu við viðskiptavini. Við
munum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að koma til móts
við starfsfólk okkar til að
auðvelda aðlögun að breyttum
aðstæðum.“ Robert leggur
áherslu á að fyrirtækið sé ekki að
fara frá Íslandi – „Við munum
halda áfram að byggja upp þær
öflugu einingar sem hér starfa
svo sem á sviði þróunar, skrán-
inga, gæðamála, fjármála og
sölu- og markaðsmála. Þá verða
höfuðstöðvar Medis áfram hér á
landi.“
Frá stækkun verksmiðju Actavis í janúar 2011.
300 manns missa vinnu sína hjá Actavis
Framleiðsla lyfjaverksmiðjunnar verður flutt frá Hafnarfirði 2017
Við hjá LaufLétt erum að
bjóða upp á garðaþjónustu.
Til 15. júlí bjóðum við
20% afslátt á garðslætti,
trjáfellingu, trjáklippingu,
beðahreinsun og stétta
hreinsun. Við erum stundvís,
vandvirk og vinnum hratt.
Uppl. í síma 852 3929
lauflett.gard@gmail.com
facebook/lauflett
LaufLétt
garðaþjónusta
Síðasta blað
fyrir sumar
frí er 9. júlí
Næsti Fjarðarpóstur er síðasta
blað fyrir sumarfrí en fyrsta
blað eftir sumarfrí kemur út
fimmtudaginn 13. ágúst.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Til sölu við Álfaberg
290m² Verð 58,9 millj.
Afar glæsilegt og vel búið parhús á rólegum og fallegum
stað. Húsið er í mjög góðu ástandi. Aðalhæðin er 145,5 m².
Innbyggður 59,8 m² bílskúr. Á jarðhæð er einnig 84 m² rými.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Tómas sölufulltrúi
í síma 895 9120 eða á netfanginu; bjarni@fstorg.is
Opið hús í dag, fimmtu-
daginn 2. júlí kl. 17 - 17.30
* Dagana 2. 3. og 4. júlí 2015.
Gildir ekki um vörur á sérverðum.
Dalshrauni 13, Hafnarfirði | Sími 544 4414
Málningardagar
í Flügger litum Hafnarfirði
Allar vörur
á hálfvirði
AFSLÁTTUR
50%
fimmtudag, föstudag og laugardag*
08:00–18
:00 fimm
tudag og
föstudag
10:00–15
:00 lauga
rdag
Afgreiðs
lutími á m
álningar
dögum
Kleinur og kaffi á könnunni