Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Qupperneq 13

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Qupperneq 13
Flateyjarbók safn og bera vitni um rausn og bókmenntaáhuga VíÖidalstungubónda. Flat- eyjarbók var nokkuð aukin á 15. öld, að líkindum á Reykhólum, bætt við 23 blöðum. En í þann hluta bókarinnar, sem Jón Hákonarson lét rita, hafa farið 100 kálfskinn, og er það samt smáræði í samanburði við alla þá vinnu, sem annars fór í að gera skinnin til bókfells og skrifa hana alla. Líklegt er, að efni í bókina hafi verið að miklu leyti sótt í bókasafn Þingeyraklausturs og sumt að Breiðabólstað í Vesturhópi, hvort sem meira eða minna er skrifað á þess- um stöðum eða heima í Víðidalstungu. En við það fræga höfuðból væri rétt- ast að kenna bókina, þó að nafninu Flateyjarbók verði ekki breytt héðan af, enda fer það betur í munni en Víðidalstungubók. Flateyjarbók hefur verið metin svo dýrmætur gripur, að tvívegis hefur verið synjað um að lána hana úr landi: þegar hún var gefin út í Kristianíu 1859—1868 og þegar Bandaríkjamenn báðu um að fá hana á heimssýninguna í Chicago 1893 og buðust til þess að senda herskip eftir henni. En bókin þótti of dýrmæt til þess að eiga nokkuð á hættu. Þetta er því í fyrsta sinn sem Flat- eyjarbók er flutt landa á milli, síðan hún komst í eigu konungs. Og skulum við vona, að það verði líka í síðasta sinn — og íslendingar beri gæfu til að varð- veita hana sem sjáaldur auga síns um ókomnar aldir. Að lokum skal eg segja ykkur litla sögu til gamans. Norska skáldkonan Sigrid Undset kom til íslands 1931, með Nóvu norður um land til Akureyrar. Þegar eg hitti hana þar, sagði hún mér, að eitt af því, sem henni hefði fundizt merkilegast á þessu ferðalagi, var að sjá Flatey. Auðfundið var, að hún hafði starað hugfangin á þessa eyju, eins og heilagan stað. Eg varð sannleikans vegna að segja henni, að Flateyjarbók væri ekki kennd við Flatey á Skjálf- anda, heldur samnefnda ey á Breiðafirði. „Og eg hef þá sóað tilfinningum mínum á ranga eyju,“ sagði Sigríður, og lá við, að rynni út í fyrir henni, svo vel sem hún venjulega kunni að dylja það, sem henni bjó í skapi. — Nú gefst ykkur kostur á að sjá með eigin augum þá bók, sem slíkum ljóma varpaði á eina litla íslenzka eyju í augum hinnar miklu skáldkonu. 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.