Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 22
Tímarit Máls og menningar anna; hún er eitt af þremur fornum menningarmálum kristinna manna í Kákasuslöndum, og eru til á henni bókmenntir allt frá því á 5tu öld e. Kr. b. í afskekktum fjallabyggðum norðanlands í Georgíu gengur svanska; sú þjóð sem hana talar er nú fámenn og lítils háttar, eitthvað um 20 þúsundir manna; en í fornöld virðast Svanir hafa verið mikil þjóð og tunga þeirra gengið um miklu víðlendara svið en nú er. Vestur við Svartahaf, þar sem Grikkir kölluðu forðum í Kolkis, var í fyrri daga töluð zanska, sem Georgíumenn svo nefna, eða mingrelólazneska. Sú þjóð hefur þó smátt og smátt orðið að þoka fyrir georgisku fólki sem fluzt hefur austan úr landi, þaðan sem Grikkir nefndu Íberíu, vestur að sjó; nú hafa Zanir kvíslazt í tvær þjóðir, Mingreli að norðan, Laza að sunnan og vestan, og reka Georgíumenn svo sem fleyg á milli þeirra. Lazneska gengur nú einkanlega á Tyrklandi norðaustanvert, fram með ströndum Svartahafs, og verður illa að henni komizt með því að tyrkneskum valdsmönnum er lítið gefið um hnýsna lærdómsmenn. Á þessum stöðvum hafa Lazar lengi verið í nábýli við Grikki, allt þar til að Kemal Atatúrk lét uppræta þá þjóð í löndum sínum árið 1922, og fjöldi manna hefur þá verið hér tvítyngdur og mælt bæði á grísku og laznesku; þegnar gríska keisarans í Trapezúnt í lok miðaldanna hafa efunarlaust verið að miklu leyti lazneskir að kyni. Fyrir norðan landamærin búa Georgíumenn nú nálega einir, nema hvað í Adjaríu við Batúmí eru nokkur laznesk þorp og svo ein- hver reytingur af grísku fólki í sj óplássunum. En á þeirri tíð er Jason var hér á ferð hefur zönsk tunga eða mingreló-laznesk verið mál landsmanna, og ég hef það fyrir satt að þær frænkur Kirka og Medea hafi mælt á zanska mállýzku; en að vísu hefur þá verið svo lítill munur á kartvelsku málunum að tal manns austan úr landi hefur hæglega skilizt vestur við Svartahaf. Hvorki Lazar, Mingrelir né Svanir eiga sér ritað mál svo heitið geti; um Laza þarf ekki að fjölyrða, þeir búa á Tyrklandi; Svanir eru lítil þjóð og lífernishættir þeirra hafa löngum verið fábrotnir. En Mingrelir eru fjölmenn þjóð eftir því sem hér gerist, líklega eitthvað 3—4 hundruð þúsunda, og En væri ekki hægt að halda áfram ítölsku afbökuninni og nefna þjóðina á íslenzku Gyrgi eða Gyrginga og landið Gyrgland eða Gyrgingaland; lýsingarorð yrði þá gyrgskur eða gyrgverskur (sbr. gyðverskur um þann hlut sem heyrir Gyðingum), gyrgversk tunga. Og mætti með því losna við endinguna -iskur í orðinu georgiskur, en hún er mesta ólán. Ekki er heldur vanalegt að nefna heiiar þjóðir -menn á íslenzku, nema þá um er rætt ósiðaðar skrælingjaþjóðir sem skjaldan ber á góma hjá menntuðu fólki (Banda- ríkjamenn, Búskmenn og þar frameftir); — Norðmenn eru hér alveg sér á parti. Aftur má vitaskuld hafa orðið menn að viðskeyti þá nefndir eru innansveitarmenn einhvers staðar: Hreppamenn, Aþenumenn; en af þeim orðum er engin lýsingarorð hægt að draga. 12
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.