Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 28
Tímarit Máls og menningar í þeim efnum. Og þó söguefnið komi manni stundum svolítið ókimnuglega fyrir sjónir í fyrstu, af því það er svo langt liðið síðan allt þetta gerðist, þá hygg ég alténd að ertingar andskotans við Antoníus helga í öræfunum eða sjóferðarsaga Máríu egypzku þá er hún fór til Jórsala til hins helga kross, grípi mitt arma hjarta sízt ófastara en sagan af hinni þrotlausu ein- veru eða slímusetur hland- og þrekkskáldanna á kamrinum. Það væri gagnslítið í pistilskorni sem þessu að fjölyrða um allan þann aragrúa bóka sem til eru á georgisku máli frá miðöldum, enda brestur höf- undinn til þess vit og kunnáttu. Ég læt mér duga að minna á eina heilagra manna sögu, en að vísu þá sem líklega hefur hlotið einna mesta frægð allra rita í þessari bókmenntagrein. Ég á vitaskuld við Barlaams sögu og Jósafats, eða Sabrdzní Balavarísa (Balavarianí) svo sem hún nefnist á georgisku máli. í sögu þessari segir frá indverskum konungssyni, Jósafat að nafni, og þeirri speki og guðhræðslu sem hann nemur að Barlaam, kristnum einsetumanni. Sagan er fyrir öndverðu komin frá Indlandi, og innir í raun réttri frá upp- vexti Búddu, en hefur verið snúið upp á kristinn sið. Varla er um það að ræða að farið hafi verið eftir neinu einstöku indversku riti, a. m. k. er það þá ekki lengur til, heldur hefur smátt og smátt verið safnað saman í eina sögu ýmsum þáttum sem í upphafi hafa gengið um Búddu. Þetta verk virðist mega rekja til Maníka í miðlöndum Asíu, og hefur þá sagan orðið til sem guðsorðabók í þeim söfnuði. Síðan hefur henni verið snúið á persneskt mál, og þaðan hefur hún haldið áfram ferð sinni til þjóða í Asíu vestanverðri; en mjög er torvelt að rekja þann feril. Einhvern tima á tímabilinu milli 8ndu og lltu aldar hefur sagan verið lögð út á grísku, en enginn veit með vissu hver það hefur gert, né hvar eða hvenær það hefur orðið. Á latínumál var henni þvínæst snarað úr grísku, og svo þaðan aftur á allar helztu mennta- tungur vesturlanda, þar á meðal á norrænt mál í kringum 1250. í nokkrum handritum grísku útleggingarinnar er þess getið að sögunni sé snúið á grísku úr georgisku af Evþýmíosi, georgiskum munki á Aþusfjalli (eitthvað um 1000), og slíkt hið sama segir í æfisögu Evþýmíosar. Önnur handrit eigna grísku gerðina Jóhannesi frá Damaskus (í broddi lífsins um 700). Nú eru til á georgisku máli tvær gerðir þessarar sögu, önnur styttri hin helmingi lengri, og mun styttri gerðin vera dregin saman úr hinni lengri. Líklega hefur georgisku sögninni verið snúið úr serknesku, en óvíst er hvar umbreytingin úr sið Maníka í kristinn sið hefur orðið, hvort heldur hjá Georgíumönnum eða hjá einhverjum kristinna manna söfnuði á Serklandi. Margt bendir þó fremur til þess að Georgíumenn hafi hér um vélað, og sé 18
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.