Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Qupperneq 36

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Qupperneq 36
Tímarit Máls og menningar tók mið af öðru þjóðfélagi en því, sem þeir voru bornir í. Rétturinn til vinnu var framkvæmdur með þeim hætti, sem frægur varð að endemum, að stofnað var til hinna svonefndu vinnustöðva. Þetta var skipulögð kleppsvinna og henni var ætlað það hlutverk eitt að koma óorði á það, sem menn kölluðu sósíalisma og ala á óvild bænda og smáborgara á verkamönnum. í júnímánuði var vinnustöðvunum lokað og þá hófu verkamenn Parísar uppreisn. í fjóra daga börðust þeir við herinn, en 26. júlí gat franska stjórnin tilkynnt: Upp- reisnarmenn hafa verið bældir niður. Orustunni er lokið. Kyrrð og regla hefur borið sigur af stjórnleysinu. Lifi lýðveldið! Verkamenn höfðu framar öllum stofnað franska lýðveldið. Eftir ósigur þeirra riðaði þetta lýðveldi til falls. Frelsistrén, sem gróðursett höfðu verið í eftirlíkingu hinnar miklu frönsku byltingar, voru rifin upp með rótum, af húsaþökunum, á strætum og torgum var andlát sósíalismans auglýst, og einu ári eftir júníbardagana 1848, boðaði erkibiskupinn í Toulouse, Monseigneur d’Astros, í hirðisbréfi, að ójöfn lífskjör væru grundvallarlögmál þjóðfé- lagsins. En á þessum misserum og hinum næstu hrasaði franska lýðveldið úr einni ófærunni í aðra. Fyrir tilstilli hins almenna kosningarréttar gerðust þau furðutíðindi, að skuldugur ævintýramaður, Loðvík Napóleon, var kjör- inn forseti, og eftir mikinn viðbúnað framdi hann stjórnlagarof 2. des. 1851, ári síðar tók hann sér keisaranafn. Hin blóðugu átök er urðu í París í júnímánuði 1848 vöktu slíkt hatur meðal verkamanna á borgarastétt Frakklands, að þeir létu sig í raun og veru litlu skipta örlög lýðveldisins. í annan stað varð borgarastéttin haldin svo náfölum ótta við verkalýðinn, ekki sízt verkamenn Parísar, að hún var reiðu- búin að afsala sér beinum stjórnmálavöldum og leitaði trausts og öryggis í einræði manns, sem var sannarlega ekkert mikilmenni, en bar nafn mikils manns og frægast nafna í sögu Frakklands. Loðvík Napóleon var borinn til valda á öldu óttasleginnar stórborgarastéttar, óánægðra smáborgara, bænd- anna ekki sízt, og jafnvel verkamenn léðu honum lið og atkvæði af hatri til þeirrar valdstéttar, er hafði tekið þeim blóð á götum Parísar. Napóleon 3. varð því að vera vinur allra stétta og vera þeim öllum trúr — vandleikið hlut- verk, enda verður það sagt með nokkrum sannindum, að hann hafi brugðizt þeim öllum undir lokin. En á stjórnarárum hans tók borgaralegt þjóðfélag á Frakklandi geysistórt stökk á þróunarbraut sinni, í iðnaði, verzlun og fjár- málastarfsemi. Hrájárnsframleiðslan hefur tvöfaldast árið 1870, kolaiðjan nærri þrefaldast, járnbrautir orðnar 18 þús. km að lengd, en voru tæplega 2000 km tuttugu árum áður. Hvergi var þó gróskan meiri en í fjármálalíf- 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.