Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 75

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 75
Um íslenzk þjóðfrœði Þó að kostir segulbandstækja séu þannig augljósir, eru ákveðnir annmarkar á notkun þeirra. Sá er helztur, að margir eru feimnir í návist segulbands- tækis, feimnari en við skriffæri. Mörg dæmi man ég þess, að þaulvanir sagna- menn hafa nærri því verið miður sin, þegar það hefur átt að hljóðrita eftir þeim, en ekkert verið mótfallnir því, að skráð væri eftir þeim. Þrátt fyrir þetta eru segulbandstæki ómissandi hjálpartæki og sú líkn hefur líka lagzt með þraut, að menn hafa vanizt þeim furðufljótt. Söfnun með segulbands- tækjum hefur líka þann kost, að söfnunin gengur miklu fljótar og þau auð- velda söfnun í fjölmenni. Ef hljóðritað er uppihaldslaust að nokkrum við- stöddum, má fá sagna- og kvæðamenn til að segja frá og kveða á líkan hátt og þeir væru eingöngu í hópi áhugasamra áheyrenda. Handritastofnun ís- lands á nokkrar hljóðritanir af því tagi. Við þessi skilyrði geta safnarar líka komið því vel við að athuga viðbrögð áheyrenda. Þó að segulbandstæki séu æskilegust, halda aðrar söfnunaraðferðir sínu gildi að ýmsu leyti, og væri illa farið, ef einhver skildi orð mín svo, að nú dygði ekki lengur að skrá þjóðsögur, ævintýri og ýmiss konar bundið mál að gömlum sið. 011 handrit eru Handritastofnun íslands kærkomin, og á hún þegar nokkur handrit af þessu tagi í fórum sínum. Það hefur verið söfnun þjóðfræða ómetanlegur styrkur allt frá upphafi, að áhugamenn hafa ekki látið sinn hlut eftir liggja. Vonandi fer sá stuðningur fremur vaxandi en minnkandi, og má raunar segja, að söfnun þjóðfræða sé lítt gerleg nema með virkri aðstoð áhugamanna. Sem stendur er höfuðverkefni íslenzkrar þj óðsagnafræði að safna af sem mestu kappi og nákvæmni þjóðsögum og ævintýrum, en eigi að fást heildar- mynd af frásagnarlist hinna eldri íslendinga nú á dögum, verður að safna einnig ýmsum sagnaflokkum, sem ég gat um hér að framan, t. d. draumum, frásögnum af dulrænum fyrirbrigðum og endurminningum, þó að þær séu ekki blandnar neinu yfirnáttúrlegu efni. Líka er fróðlegt að rannsaka jafn- framt áhrif bókmennta á sagnaskemmtunina. Það er vitað, að efni rímna var sagt í óbundnu máli að mestu, — aðeins skotið inn vísu og vísu —, íslendingasögur voru stundum sagðar, og að sögn eins heimildarmanns mins virðist hann hafa sagt í æsku sögur, sem voru að einhverju leyti lagaðar eftir skáldsögum Jóns Thoroddsens. Umfram allt verður að safna sem fjöl- breyttustum og traustustum heimildum bæði um sagnaskemmtunina nú á tímum og í nálægri fortíð, því að slíkt efni er meðal annars nauðsynlegt til að átta sig vel á því, sem skráð hefur verið af þjóðsögum og ævintýrum á 19. öld og fyrri hluta þessarar aldar. 5 TMM 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.