Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 6
Tímarit Máls og mentiingar
Lon Nol. Kampútsíumenn snerust þá til lítt skipulagðrar andspyrnu, og 1973
var svo komið að andspyrnuhreyfing stefndi að höfuðborginni Fnom Pen. Þá
ákváðu þeir Nixon og Kissinger að sýna afl tortimingarinnar í verki einnig í
Kampútsíu. Sumarið 1973 létu þeir flugsveitir sínar, m.a. þjálfaðar i herstöðinni
ginnheilögu á Miðnesheiði, kasta yfir nágrenni höfuðborgarinnar meira
sprengjumagni en yfirráðasvæði japana hafði orðið að þola í gervallri heims-
styrjöldinni síðari; flugmönnunum var fyrirskipað að myrða allt sem sæist kvikt
og sundra hverju mannvirki. Andspyrnumenn þoldu ekki þessar tortímingar-
árásir; þeir sem af lifðu hopuðu inn i frumskóga og tóku að hugsa ráð sitt.
Niðurstaðan af bollaleggingum þeirra var sú að allt illt kæmi frá Vestur-
löndum. Það ætti ekki aðeins við um valdstefnu og tortimingartækni heldur og
um allt sem þróast hefði, raunvísindi, skipulagsmál ríkja, samgöngur, læknis-
visindi, allt sem nafngreint verður. Þegar völdin lágu á lausu eftir lokaósigur
bandariska risaveldisins tóku frumskógamennirnir þau í Kampútsíu, örvænt-
ingarfullir ungir menn en staðráðnir í því að stefna til fortíðarinnar; markmið
þeirra var að endurheimta eldfornt kmeraríki sem þeir sáu fyrir sér í róman-
tískum hillingum. Þeir hófust þegar handa um að uppræta „vestræna spill-
ingu“, ráku allt fólk úr borgum og bæjum út í sveitir þar sem handaflið átti að
tryggja viðurværi, tortimdu tækjum og tækni, bundu endi á skipulegar sam-
göngur og orkuvinnslu, lögðu niður skóla og heilbrigðiskerfi, tættu sundur
fjölskyldur og komu börnum fyrir í sérstökum búðum þar sem kenna átti þeim
harðan hug fornkmera. Nú er æði mikið vitað um afleiðingar þessarar stefnu.
• Gervöll Kampútsía varð að þrælaríki með miklum tortímingarbúðum.
• Af rúmlega sjö miljónum landsmanna voru 2—3 miljónir myrtar á
svipaðan hátt og dýrum var slátrað til forna á blóðvelli; þannig var þriðji
hver kmeri sviptur lífi á hálfu þriðja ári.
• Tortímingunni var einkanlega beint að þeim sem fengið höfðu „vestræna"
menntun. Af 550 læknum eru 50 eftir í landinu öllu. Af 11000 háskóla-
stúdentum eru 450 eftir. Af 2300 kennurum við æðri skóla eru 450 eftir. Af
21000 almennum kennurum eru 2700 enn á lífi. Af 200 lyfjafræðingum eru
15 eftir. Þessari ógnarlegu tölfræðiþulu væri hægt að halda lengi áfram.
• Nú vofir yfir þeim sem eftir lifa alger hungursneyð. Ekki er annað sjáanlegt
en kmera bíði hliðstæð örlög og indíána í Ameríku eða frumbyggja í
Astralíu.
Þó væri mjög skammsýnt að fella einhliða siðferðilegan dóm um rauða kmera
svokallaða og Pál Pott leiðtoga þeirra. Örvæntingarfull og tryllingsleg viðbrögð
þessara ungu kmera voru afleiðing af nýlendukúgun frakka og gereyðingar-
380