Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Side 122
Tímarit Máls og menningar
var langt umfram það sem Þjóðhags-
stofnun áætlaði og notaði við mat sitt á
öðrum tillögum. Abl. heimtaði að Þjóð-
hagsstofnun notaði framleiðniáætlun
Abl. við mat á tillögum þess. A end-
anum lét Þjóðhagsstofnun undan og
Abl. fékk tillögur sínar metnar og
stimplaðar af Þjóðhagsstofnun til að
sýna almenningi, — nei, ekki út-
reikninginn, það hefðu þeir getað sjálf-
ir, heldur stimpilinn sem þeir sýndu
hróðugir. Þetta dæmi sýnir ljóslega
hvernig meðvitað er reynt að blekkja
almenning í umræðum um efnahagsmál.
Það er mikið verk að hreinsa til í öllu
því moldviðri.
Þessi umsögn um bók Birgis er bæði
löng og gagnrýnin. Það er þó langt í frá
að ég hafi týnt til allar þær athuga-
semdir sem mér komu í hug við lestur-
inn. Mér fannst nauðsynlegt að gera
nokkrum atriðum vandlega sk.il, bæði
vegna þess að ég tel það félagslega
skyldu mína og svo vegna þess að ég
vildi forða fólki frá því að eyða tíma í að
reyna að skilja hið óskiljanlega.
Svart á hvítu á heiður skilinn fyrir
hugrekkið að ráðast í útgáfu bókar af
þessu tagi. En hefði ekki verið betra að
láta handritið að bók Birgis ganga á
milli manna og forða þannig einhverju
af verstu villunum. Erlendis nota borg-
aralegir hagfræðingar sér óspart félags-
lega gagnrýni til að betrumbæta kenn-
ingar sínar, en íslenskar hetjur —jafnvel
áköfustu andstæðingar einstaklings-
hyggjunnar dingla í hvönninni eins og
Þorgeir Hávarsson forðum. Eg hefði
miklu frekar viljað skrifa þetta sem um-
sögn um handrit heldur en sem bókar-
umsögn.
Asgeir Daníelsson.
ANDMÆLI VIÐ RITDÓMI
ÁSGEIRS DANÍELSSONAR
TMM hefur gefið mér kost á að svara
ritdómi Ásgeirs Daníelssonar. Fram að
þessu hef ég ekki talið ritdóma um bók
mína, Frjálshyggjuna, vera þess eðlis að
nauðsyn væri að svara þeim. En þessi
ritdómur er sérstakur fyrir þá sök að
lesendur kunna að halda að Ásgeir setji
fram mikilvæg rök gegn efni bókarinn-
ar. Svo er þó ekki. Ritdómurinn er engu
að síður fróðleg kynning á kunnáttu og
vinnuaðferðum, sem ég varpa ljósi á í
þessu svari.
Efniskynning ritdómarans
I upphafi greinar sinnar byrjar Ásgeir á
því að gefa sér nokkrar grundvallarfor-
sendur sem greinilega eru að hans mati
hafnar yfir umræðu og gagnrýni. Hann
kynnir þannig sjálfan sig sem bylt-
ingarsinnaðan marxista en bókarhöf-
und kynnir ritdómarinn sem „vinstri
mann“, jafnvel sem áhanganda díalekt-
ískrar efnishyggju. Þó segir hann
mig hafa efnahags- og stjórnmálastefnu
sem „er hvorki sjálfri sér samkvæm,
skynsamlega rökstudd né jafnvel fram-
farasinnuð". Skilaboð Ásgeirs til lesand-
ans eru þannig skýr: lesandinn getur
treyst kunnáttu Ásgeirs í borgaralegri
og marxískri hagfræði, en skoðanir mín-
ar eru hættulegar þrátt fyrir að Ásgeir
telji mig eins og sjálfan sig vinstri mann.
Eg vona að ýmsar af tilvitnunum mín-
um í Ásgeir hér á eftir leiði í ljós skoð-
anir hans á frjálshyggjunni og útskýri
hvers vegna hann er svona ósammála
mér. I niðurlagi ritdómsins er mönnum
ráðið frá að eyða tíma í að lesa bókina.
Þegar um útgefendur ritsins er fjallað
kveður við annan tón. Þeir eru „hópur
róttæklinga" sem „á heiður skilinn fyrir
488