Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 124

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 124
Tímarit Máls og menningar fræðing. Það þarf áreiðanlega ekki að kalla á sagnfræðing til að segja til um menntun mína, eins og glópslegar dylgj- ur Hannesar sýna. Umfjöllun um málfar ogfleira Asgeir Daníelsson skýrir lesendum sín- um frá því, að íslensku- og bókmennta- fræðingar þreyttust aldrei á að senda honum tóninn. Honum Ásgeiri finnst Frjálshyggjan torlesin og hann heldur því fram að hún sé „skrifuð á óskiljan- legu máli“. Sumpart kvartar hann yfir málnotkun minni og sumpart yfir til- teknu orðavali. Ritdómarinn tekur eftir- farandi setningu sem dæmi um óskiljan- legt málfar: „kapitalistarnir héldu að sér höndum í fjárfestingum“. Setningar af þessu tagi geta varla vafist fyrir nokkrum manni. Eg trúi því ekki að Ásgeir sem er langskólagenginn skilji ekki hvað þetta merkir. En það er ekki fjallað oft um hagmál á íslensku frá þessum sjóndeildarhring, þannig að sum hugtökin eru dálítið óþjál og fram- andleg. En úr því mun sjálfsagt rætast, þegar byltingarsinnaðir og samvisku- samir marxískir hagfræðingar fara að skrifa bækur. Hannes Hólmsteinn kemur fram með sams konar gagnrýni á málfar mitt og segir bókina „á óíslenskulegu máli“. Að svo miklu leyti sem það er rétt á það rætur að rekja til þess að lítið sem ekk- ert hefur verið skrifað um þessar fræði- legu hliðar málsins. Sum hugtökin eru þess vegna ný í íslensku máli eða nýleg, en það er alrangt að segja að þau séu (þar með) óíslensk. Annars gildir al- mennt í fræðiritum að hugtök fá yfir- leitt nákvæmari og afmarkaðri merk- ingu en þau kunna að hafa í daglegu máli. Átelur Ásgeir mig fyrir að taka hagfræðilegar skilgreiningar fram yfir daglegt mál. Hann segir: „Ekki bætir það úr skák að Birgir notar mörg algeng orð í annarri merkingu en þeirri sem algeng er“. Og Ásgeir gagnrýnir mig sömuleiðis fyrir að rita hagfræði með skáletri og skilgreina sem frjálshyggju- hagfræði til aðgreiningar frá hag- fræðinni almennt. Eg veit ekki hvort hann ann nokkrum þess að búa til nýjar skilgreiningar. En það er ekki í verka- hring ritdómara (í lýðfrjálsu landi) að segja öðrum til um það hvaða hugtök er leyfilegt að búa til. En Ásgeir lætur sér ekki nægja þessa gagnrýni heldur skammar mig fyrir notkun á orðum með langa hefð í íslenskri tungu, til dæmis orðin „einsleitur“, „lífslengd", „formval", „staðkvæmd" og orðið „vöru- valsfrelsi" sem hefur gagnsæja merkingu í málinu. Eftir lestur á texta með slík hugtök og málfar „fer allt að snúast í höfðinu" á Ásgeiri. Rangfærslur ritdómarans Rangfærslurnar í ritdómi Ásgeirs Daní- elssonar eru fjölmargar. Má ætla að um sumar þeirra sé hann sér alveg ómeðvit- aður um og vil ég þess vegna útskýra nokkrar þeirra sæmilega vel. En aðrar rangfærslur eru þess eðlis að Ásgeir hlýtur að vita sjálfur að honum skjátl- ast. Engu að síður tel ég það skyldu mína að útskýra þessi atriði. Mun ég í tveimur undirköflum fjalla um þessar rangfærslur, fyrst um þær er lúta að bókinni sérstaklega og síðan um þær er varða rangtúlkanir á almennum hag- fræðihugtökum og hagkenningum. Hann afhjúpar eigin vankunnáttu sam- tímis því að hann brigslar mér um rang- færslur. Rangfærslur varðandi efnisatriði Frjálshyggjunnar Ásgeir heldur því fram í ritdómnum, að 490
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.