Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 59

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 59
Krafa um afnám skóla — Aðrar menntaleiðir síst alla þá sem hafa farið halloka í keppninni um langa skólagöngu og prófskírteini sem veita aðgang að starfi hátt í launa- og virðingarstiga samfélagsins. Eg held að hollast sé fyrir alla, bæði þá sem starfa innan skóla og utan, að líta skólastarf og gildi þess raunsæjum augum. Ofmeta ekki möguleika skólans og hlutverk, hvorki til að þjálfa leikni, auka þekkingu eða móta viðhorf. Er eitthvað unnið við það að varpa sífellt meiri ábyrgð á námi og uppeldi barna og unglinga yfir á skóla? Verða þeir nokkurn tíma vel í stakk búnir til að axla slíka ábyrgð? Hve mörg börn læra t. d. að lesa fljótar og betur á eigin spýtur með aðstoð heima fyrir en að jafnaði gerist þegar treyst er eingöngu á skólakennslu? Raunar er nú af sem áður var þegar foreldrar voru beinlínis beðnir um að segja börnum sínum ekki til við lestur og láta sérfræðingana eina um hituna. I vor var t. d. greint frá því í einu dag- blaðanna að tekist hefði samstarf milli flestra grunnskólanna og foreldra í fátæku hverfi í London um að framkvæma „áætlun sem beindist að því að foreldrarnir verði aðal lestrarkennarar barnanna. . . Arangurinn er undra- verður. I fyrsta skólanum, sem framfylgdi áætluninni, jókst hlutfall þeirra barna, sem sköruðu fram úr sínum aldurshópi um 50% á tveimur árum og allmörg börn sprengdu viðmiðunarrammann.“, I framhaldi af þessu mætti spyrja sem svo: Hvort ætli sé vænlegra að treysta á heimili, vinnustað eða skóla þegar rækta skal með börnum og unglingum ábyrgðartilfinningu og virðingu fyrir hreinlæti, hollri næringu, vinnu, jafnrétti kynjanna og annað því um líkt? Eg hygg að margir séu tilbúnir til að viðurkenna vanmátt skóla í slíku hlutverki — en séu hins vegar fúsir til að viðurkenna nauðsyn samstarfs og góðra tengsla milli þessara aðila eigi vel að takast til. Eg tel réttmætar þær kröfur róttækra skólagagnrýnenda að reglur um skólasókn og skyldunám verði rýmkaðar og gefið aukið valfrelsi um hvað börn læra, hvar, hvenær og hvernig. Bæði í grunnskóla og framhaldsskóla ættu nemendur að fá leyfi frá skóla hvenær sem þeir og foreldrar þeirra æskja þess — ekki síst ef um ferðalög, íþróttaiðkanir eða aðkallandi verkefni fyrir fjölskylduna er að ræða. Ég er einnig á því að öll inntökuskilyrði í formi einkunna eigi að afnema bæði í framhaldsskóla og háskólanámi. Setja mætti skilyrði um lágmarksaldur en keppa síðan að því að halda öllum leiðum opnum fyrir þá sem vilja spreyta sig. Hverju er í rauninni fórnað með því að leyfa þeim sem vilja eyða tíma sínum og kröftum innan þessara stofnana að gera það? Þeir mundu áreiðanlega ekki verða þar lengi án þess að ná árangri. Stórfé mundi sparast með því að hætta að krefjast þess að fullorðið fólk, sem langar að hefja háskólanám, byrji á því að ganga í barndóm og ljúka stúdentsprófi. Þá mundu öldungadeildirnar fá réttlætan- 409
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.