Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1984, Side 75

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1984, Side 75
Bardttan um raunsteib framandleg í augum flestra lesenda við fyrstu sýn og raun ber vitni, ef þeir þekktu í þeim hið alkunna „yfirborð" veruleikans. Þess má geta að þegar Lukács gefur út bók sína Wider den mijiver- standenen Realismus tuttugu árum síðar er hann í flestu tilliti við sama heygarðshorn, nema nú fjallar hann um módernismann í víðara samhengi og notar Franz Kafka sem sérstakt dæmi um einkenni hans. Jafnframt biður Lukács lesendur sína að samþykkja Thomas Mann sem höfund er tekið hafi upp raunsæismerki Balzacs og Goethe og borið það með reisn á okkar tímum. Og beint er til lesenda þessari dramatísku spurningu: „Franz Kafka oder Thomas Mann?“ Sjaldan hefur umrædd tvíhyggja verið dregin skarpari línum og sjaldan hefur módernisminn verið málaður dekkri litum. I ritgerð sinni segir Ernst Bloch að kenningar Lukács byggi á „lokuðum, samhangandi veruleika . . . óslitinni heild,“ og bendir á rætur þeirra í gömlum „ídealískum“ hugmyndakerfum eins og klassísisma. Sé veruleikinn svona, segir Bloch, þá eru allar tilraunir expressjónista, montage-tæknin og öll viðleitni til að raska málbyggingu og hefðbundnum formgerðum, „innantómur leikur". I raun á sér stað þekkingarfræðilegur árekstur milli þessara tveggja fræðimanna; í stað „hlutlægs veruleika“ ræðir Bloch um „reynsluveruleika“ (,,Erlebniswirklichkeit“), og tekur m. a. fram að ef til vill felist „hinn raunverulegi veruleiki einnig í truflun."9 Skömmu eftir að deilunni lauk skiptust Lukács og þýska skáldkonan Anna Seghers á bréfum um ágreiningsefnið og birtust þau á prenti 1939. Seghers lætur m. a. í ljós þá skoðun sína að „raunsæi“ eigi að merkja „vit- undarvakning um raunveruleikann."10 Orð hennar og Blochs beina okkur að kenningum Brechts um framandgervingu. Sem kunnugt er áleit Brecht að til þess að vekja mann til vitundar um félagslegan veruleika hans þyrfti að trufla veruleikann; í stað þess að láta viðtakandann lifa þennan veruleika í nægilega kunnugri mynd skáldverksins, yrði að skekkja eða „afskræma" myndina nógu mikið til að viðtakandinn virti hana (og sjálfan sig) fyrir sér úr meðvitaðri og gagnrýninni fjarlægð (ekki samt til að sitja undir þessum ósköpum kaldur eins og steingervingur, eins og sumir halda sem illa þekkja til Brechts). Hann var því mjög á öndverðum meiði við Lukács sem taldi að skáldverk yrði að fela í sér listræna lífslýsingu sem hægt væri „að lifa upp á nýtt“.n Brecht taldi að slíkt biði upp á óvirka „neyslu“, og vildi þess í stað leggja áherslu á „framleiðsluna“; eins og margir aðrir módernistar vill Brecht gera viðtakanda meðvitaðan um að hann „semur“ sjálfur hluta verks- ins, fyllir út í það, ef svo má að orði komast. Verkið einkennist þá af trufl- andi (framandgerandi) „götum" og raunsæi þess felst í innsæinu sem þau veita okkur í þann veruleika sem við annars teljum sjálfgefinn. Að sjálf- sögðu eru markmið Brechts pólitískari en flestra annarra módernista, því 425
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.