Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Page 120

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Page 120
Tímarit Máls og menningar gömlu embættismannastéttarinnar sem tókst að hrifsa til sín forystu lýð- veldisins skömmu eftir stofnun þess. Þjóðernissinnar féllust á að gera æðsta yfirmann keisarahersins, Yuan Shikai, að forseta lýðveldisins til að koma í veg fyrir blóðugt borgarastríð. Hann lýsti yfir stuðningi við byltinguna en strax og hann tók við embætti fór hann að styrkja persónuleg völd sín með aðstoð embættismannastéttarinnar og ríkra landeigenda, sem óttuðust eignaupptöku. Hann lét leysa upp her þjóðernissinna en efldi einkaheri sem voru undir forystu íhaldssamra herforingja eða herfursta. Yuan Shikai undirbjó meira að segja stofnun eigin keisaraættar en við það missti hann stuðning herfurstanna sem lýstu margir yfir sjálfstæði stjórnsvæða sinna tæpum fimm árum eftir stofnun lýðveldisins. Það var ekki fyrr en eftir langvarandi innanlandserjur að þjóðernissinnum tókst að sameina meirihluta Kína aftur undir stjórn sinni árið 1928, þremur árum eftir að Sun Yatsen féll frá. Róttæklingar og kommúnistar, sem störfuðu innan flokks þjóðernissinna á árunum 1925 til 1927, höfðu þá verið hreinsaðir úr forystu þjóðernissinnaflokksins auk þess sem raunveruleg völd á mörgum svæðum voru enn í höndum herfursta sem höfðu aðeins lýst yfir málamyndastuðningi við þjóðernissinnastjórnina. Leiðtogar þjóðernis- sinna, sem margir voru atvinnuhermenn, héldu áfram að fresta stórum hluta þjóðfélagsumbótanna, sem þeir höfðu á stefnuskrá sinni, af ótta við nýtt innanlandsstríð. Þeir létu sér nægja að styðja við bakið á innlendum iðnaði og efla menntun en vanræktu skiptingu lands á milli bænda og uppbyggingu raunverulegs lýðræðis. Atvinnuleysi var gífurlegt, iðnverkalýður borganna bjó við örbirgð og vinnudeilur voru algengar og stundum blóðugar. Loforð þjóðernissinna um að losa Kínverja við þessa fylgikvilla kapítalískrar iðnvæðingar stóðust greinilega enganveginn. Þjóðernissinnar nutu fjárhagslegs stuðnings iðnrek- enda en margir þeirra voru í rauninni landeigendur sem höfðu fjárfest í iðnaði. Innrás Japana í Kína á fjórða áratugnum var enn ein hindrunin í veginum fyrir því að þjóðernissinnar gætu hafið skipulega uppbyggingu draumaþjóð- félagsins sem Sun Yatsen hafði lofað þjóðinni. Reyndar var hugsjónaeldur þjóðernissinna þá mjög farinn að dofna og margir leiðtogar þeirra töldu eitt höfuðmarkmið flokksins vera að tryggja að Kína yrði ekki kommúnisman- um að bráð. Kapítalismi eða kommúnismi? Sá áróður kommúnista að þjóðernissinnar væru hlaupatíkur auðherra, erlendrar heimsvaldastefnu og landeigenda fékk góðan hljómgrunn meðal fátækra bænda og verkalýðs og atvinnuleysingja í borgunum. Kommúnistar 110
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.