Fréttablaðið - 29.05.2015, Side 18
29. maí 2015 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Elskuleg kona mín og systir okkar,
FRÍÐA ÓSKARSDÓTTIR
Írabakka 10,
lést þann 19. maí síðastliðinn. Útför hennar
fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
1. júní kl. 13.00.
Kolbrún Gunnarsdóttir
Karl Óskarsson
Kolbeinn Magnússon Sigurbjörg Guðjónsdóttir
Sigrún Óskarsdóttir
Esther Terrazas Joe Terrazas
Óskar Óskarsson May Margrét Zapanta
Erna Arnardóttir
Elsa Óskarsdóttir Sæmundur Þór Jónsson
Hjörtur Jacobsen Sylvía Marta Borgþórsdóttir
Helga Óskarsdóttir Guðmundur Friðriksson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ERLINGUR HELGASON
fyrrverandi forstjóri,
Strandvegi 9, Garðabæ,
lést á lungnadeild Landspítalans 19. þ.m.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag,
29. maí, kl. 15.00.
Þórunn Beinteinsdóttir og fjölskylda.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SKÚLI ALEXANDERSSON
fyrrverandi alþingismaður,
frá Hellissandi,
lést á Landspítalanum laugardaginn 23. maí.
Útför hans fer fram frá Ingjaldshólskirkju sunnudaginn 31. maí kl.
14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Menningarsjóðinn
Fegurri byggðir. Reikningur í Landsbankanum
nr. 190-15-380429, kt. 681011-0130.
Hrefna Magnúsdóttir
Ari Skúlason Jana Pind
Hulda Skúladóttir
Drífa Skúladóttir Viðar Gylfason
barnabörn og barnabarnabörn.
Sonur minn og bróðir okkar,
MAGNÚS ROLAND KJÆRNESTED
viðskiptafræðingur,
lést í Helsingfors 21. maí sl.
Borgþór Kjærnested
Ann-Marie Kjærnested
Sólveig Fríða Kjærnested
Pétur Friðfinnur Kjærnested
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR HJALTASONAR
rennismiðs,
Víðilundi 20, Akureyri,
sem lést föstudaginn 8. mars síðastliðinn. Sérstakar þakkir fær
starfsfólk lyfjadeildar Sjúkrahússins á Akureyri fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Kristín Gunnarsdóttir
Svava Hrönn Guðmundsdóttir Hreggviður Norðdahl
Gunnar H. Guðmundsson Elín Konráðsdóttir
Guðmundur Logi Norðdahl Gréta Jakobsdóttir
Rannveig Albína Norðdahl Atli Rafnsson
Anna Kristín Gunnarsdóttir
Guðmundur S. Gunnarsson Katelin Marit Parsons
og langafabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
PÉTUR EGGERTSSON
fyrrverandi póstfulltrúi,
Fornhaga 15, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli miðviku-
daginn 27. maí.
Halldór G. Pétursson Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Eggert Pétursson Hulda Hjartardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir samúð og
hlýjar kveðjur vegna andláts og útfarar
elskulegrar frænku okkar,
ÓSKAR JÓNSDÓTTUR
frá Grímsey,
Snorrabraut 32, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á fjórðu hæð á hjúkrunarheimilinu
Skjóli fyrir góða umönnun og séra Sigurður Jónsson
sóknarprestur í Áskirkju. Guð blessi ykkur öll.
Systrabörnin
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
PÁLHEIÐUR EINARSDÓTTIR
Gyðufelli 8,
Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir
sunnudaginn 24. maí. Útför hennar fer fram
frá Seljakirkju þriðjudaginn 2. júní kl. 13.00. Þeir sem vildu
minnast hennar vinsamlegast láti Félag aðstandenda
Alzheimersjúklinga, Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík eða
önnur líknarsamtök njóta þess.
Kristján Þórarinsson
Hafdís Ósk Kristjánsdóttir Eggert Friðriksson
Einar Kristjánsson Anna María Ríkharðsdóttir
Anna María Kristjánsdóttir Sigurður Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndisleg eiginkona, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HJÖRDÍS SIGURÐARDÓTTIR
Markarvegi 15,
sem lést á Spáni 19. maí, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
3. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Hjartavernd.
Ásgeir Hjörleifsson
Sigurður Þór Ásgeirsson Fríða Kristín Gísladóttir
Hjörleifur Ásgeirsson Maria Purificacion Luque Jimenez
Kristinn Ingi Ásgeirsson Linda Hrönn Einarsdóttir
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir
Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir Xavier Rodriguez
barnabörn og barnabarn.
Hjartkær föðurbróðir minn,
ÁSGEIR AUÐUNSSON
verður jarðsunginn frá Skarðskirkju
laugardaginn 30. maí kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Auðunn Ágústsson
Stóri leikskóladagurinn verður hald-
inn í sjöunda sinn í dag með fjöl-
breyttri dagskrá. Mikill áhugi er
meðal leikskólastarfsfólks fyrir þess-
ari fagráðstefnu og hyggjast margir
leikskólar nýta daginn til símenntun-
ar. Á þriðja tug leikskóla munu kynna
starfsemi sína og sérstök þróunar-
verkefni á sýningu sem sett verður
upp í Tjarnarsal Ráðhússins. Þá munu
leikskólabörn koma fram og syngja
og dansa. Gestasveitarfélag að þessu
sinni er Akureyri og munu tveir leik-
skólar þaðan kynna læsisverkefni og
útinám. Þá verður boðið upp á fyrir-
lestra í Tjarnarbíói.
Einn þeirra leikskóla sem kynna
sína starfsemi er leikskólinn Bjarta-
hlíð. „Við höfum verið að vinna
þróunar verkefni, sem kallast vís-
indaleikir, í ellefu ár í samstarfi við
Háskóla Íslands. Haukur Arason, dós-
ent við Háskóla Íslands, Kristín Norð-
dahl náttúrufræðingur og Sverrir
Guðmundsson, sem vann meistararit-
gerð um stjörnufræðikennslu í Björtu-
hlíð, þróuðu verkefnið og unnu í sam-
starfi við okkur,“ segir Anna María
Aðalsteinsdóttir, leikskólakennari í
leikskólanum Björtuhlíð.
Hildur Skarphéðinsdóttir, skrif-
stofustjóri á leikskólasviði, átti frum-
kvæði að verkefninu og hafði sam-
band við Hauk og Kristínu í kjölfarið.
Í þessu þróunarverkefni var unnið
að því að þróa leiðir til að vinna með
eðlisfræðileg viðfangsefni með leik-
skólabörnum.
Meginnálgun verkefnisins er að
námsathafnirnar séu skapandi leik-
ur frá sjónarhóli barnsins en til-
raunir og athuganir á sviði náttúru-
fræða frá sjónarhóli leikskólakennara.
Meðal annars voru þróaðir tveir vís-
indaleikir fyrir leikskólabörn á sviði
stjörnufræði. Annar leikurinn fjallar
um sólina og ferð hennar á himninum
og hinn um kvartilaskipti tunglsins.
Markmið þessara leikja er að börnin
læri um tengsl dægraskipta og árs-
tíðaskipta við gang sólar og um nátt-
úrufræðilegar skýringar á breytilegu
útliti tunglsins auk þess að stuðla að
almennum þroska þeirra. „Krakk-
arnir hafa mikinn áhuga á þessu og
við höfum kynnt þetta verkefni mjög
víða. Það eru fleiri skólar að fara að
taka þetta upp,“ bætir Anna María
við.
Leikskólakennararnir leggja grunn
að hugtakanámi barnsins með því að
beina athygli þess að lykilþáttum í
leikjunum, með því að spyrja spurn-
inga og með því að hvetja barnið til
að tjá reynslu sína. Lögð er áhersla á
að tengja þessa tjáningu listrænu og
skapandi starfi. Þessir vísindaleikir
hafa höfðað vel til flestra barnanna og
virðast jafnframt hafa áhrif á skiln-
ing þeirra á fyrirbærunum sem unnið
var með.
„Það er breytilegt eftir aldri hvað
lagt er upp fyrir börnin. Yngstu
börnin eru meira í skynjun á ljósi og
skugga í gegnum efni. Svo er stígandi
í vísindastarfinu og svo þegar börnin
eldast bætist við segull, rafmagn og
stjörnufræði. Þetta er svo gaman, en
við förum svo með útskriftarbörnin í
Orkuverið Jörð sem er mjög skemmti-
legt.“ gunnarleo@frettabladid.is
Leikskólar kynna starf-
semi sína í Ráðhúsinu
Stóri leikskóladagurinn er haldinn í dag í sjöunda sinn. Á þriðja tug leikskóla mæta.
MIKIL SPEKI Leikskólabörnin í Björtuhlíð kunna vel við verkefnið.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
3
-D
1
C
C
1
6
3
3
-D
0
9
0
1
6
3
3
-C
F
5
4
1
6
3
3
-C
E
1
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K