Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 72
Tímarit Máls og menningar að hvorki Walter Scott né E. T. A. Hoffmann hefðu getað skapað persónu sem líktist „því sem félagsleg náttúra Parísar hefur leyft sér að búa til í þessum manni, ef Samanon er þá yfirleitt maður.“ (bls. 428). Þar sem hið dýrslega er alltaf svo nærri má vísindaleg athugun ekki standa ein sér, henni verða að fylgja siðferðilegar vangaveltur sögumanns, hann á ekki að fara í launkofa með afstöðu sína: Pess er að gsta að sumar sálir sem eru sannarlega skáldlegar en viljalitlar, uppteknar af hreinræktaðri skynjun og því að tjá þá skynjun í myndum, skortir í eðli sínu þá siðgæðisvitund sem verður að fylgja hverri athugun. (bls. 413) Sögumaður Balzacs hefur þessa siðgæðisvitund í ríkum mæli, og lætur hana oft í ljós með margs konar athugasemdum við það sem fram fer. I þriðja lagi tilheyrir það bókmenntaskilningi Balzacs að höfundurinn hafi til að bera hugarflug, sköpunarmátt sem gerir honum kleift að gefa athugunum „lifandi form“ einsog hann hefur orðað það á einum stað.14 Manngildishugsjón Balzacs birtist því líka í hugmyndum hans um hæfileika rithöfundarins. Skáldsögur verða að sameina anda, vilja og form. Þar með verður sögumaður — hjá Balzac iðulega alvitur og allt sjáandi — síðasta athvarf manngildis, sem mannkynssagan er að kasta á sinn stóra haug. I þessu er þverstæðan fólgin; frásögnin heiliast af upplausninni sem peningarnir valda í því vandlega hólfaða samfélagi sem sögumaður aðhyllist. Lucien þráir þá frægð og þann frama sem hann getur aðeins öðlast fyrir til- stilli peninga. Og þessi þrá hans er aflvaki frásagnarinnar og réttlæting. Þverstæðan sem Engels, og margir í kjölfar hans, telja vera milli sögulegs raunsæis í skáldsögum Balzacs og íhaldssamrar hugmyndafræði hans er því innbyggð í raunsæisformið sjálft. Þau gildi sem móta samfélagsmynd Brost- inna vona og orðuð eru í athugasemdum sögumanns, eru áhrifalaus í framvindu frásagnarinnar. D’Arthez er vissulega andstæða Luciens, hrein- skiptinn og viljafastur höfundur andspænis manni sem selur sál sína og skáldskaparhæfileika fyrir fé og frama. En d’Arthez er að mestu leyti ,úr sögunni*, frásögnin fylgir Lucien, rétt einsog David á ekki lengur heima í skáldsögu eftir að hann er orðinn hugdjarfur skordýrasafnari. Og sé saga Luciens dæmisaga um mann sem gengur of langt í metnaði sínum, fórnar of miklu, gengur hún heldur ekki upp, því framvindan sýnir að hann var ekki nógu tillitslaus, og skorti fé og fjármálavit til að ná sínu fram. Höfundurinn leggur í þessa sögu hugmyndafræði sína og siðgæðismat annars vegar, hæfileika sína til að heillast og sjá hins vegar. Þetta tvennt stefnir ekki að sama marki, en myndar í sameiningu raunsæisform verksins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.