Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Síða 139
Höfundar efnis í þessu hefti
Arni Bergmann, f. 1935. Riihöfundur og ritstjóri.
Asgeir Beinteinsson, f. 1953. Yfirkennari í Sandgerði.
Bjöm Th. Bjömsson, f. 1922. Listfræðingur.
John F. Deane, írskt skáld og ritstjóri tímaritsins Tracks sem The Dedalus Press í
Dublin gefur út. Hann samdi þessa grein sérstaklega fyrir Tímarit Máls og
menningar. Því miður fengust ljóðin ekki þýdd í tíma og eru lesendur beðnir
velvirðingar á því að þau skuli birtast á frummálinu.
Einar Ólafsson, f. 1949. Skáld. Síðasta bók hans heitir Sólarbdsúnan og kom út fyrir
síðustu jól.
Friðrik Rafnsson, f. 1959. Nemi í bókmenntafræði í París og þýðandi.
Guðmundur Andri Thorsson, f. 1957. Gagnrýnandi.
Gunnar Harðarson, f. 1954. Heimspekingur, skáld og ritstjóri Tenings.
Peter Hallberg, f. 1916. Sænskur bókmenntafræðingur.
Halldór Guðmundsson, f. 1956. Utgáfustjóri Máls og menningar.
Heimir Már, f. 1962. Skáld. Síðasta bókin hans er Myndbrot, 1986.
Helga Kress, f. 1939. Dósent við Háskóla íslands.
ísak Harðarson, f. 1956. Skáld.
Danilo Kis, f. 1935. Júgóslavneskur rithöfundur. Sjá inngang að viðtali við hann á
bls. 171. Sagan er úr Alfrœðibók hinna dauðu, París 1985.
Kristín Geirsdóttir, f. 1908. Hún býr ásamt Fanneyju systur sinni á bænum
Hringveri á Tjörnesi.
Már Jónsson, f. 1959. Sagnfræðingur, starfar á fréttastofu útvarps.
Ólafur Gunnarsson, f. 1948. Rithöfundur.
Ólafur Jónsson, 1936—1984. Einn þekktasti gagnrýnandi sem starfað hefur hér á
landi. Fyrir síðustu jól kom út safn af greinum eftir hann undir nafninu
Leikdómar og bókmenntagreinar.
Sigríður Matthíasdóttir, f. 1965. Islenskunemi við HI.
Sigurður A. Magnússon, f. 1928. Rithöfundur.
Sindri Freysson, f. 1970. Nemi við MH.
Steinunn Sigurðardóttir, f. 1950. Rithöfundur.
Þorleifur Friðriksson, f. 1952. Sagnfræðingur.
Þorsteinn frá Hamri, f. 1938. Skáld.