Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 116

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 116
Tímarit Máls og menningar menningarlífi sé slík að gaman væri að skrifa um hana sem einn allsherjar- gjörning. Slíkt er ekki á mínu færi. Eg hef „bara“ lesið þessi orð sem ljóð. Eg hef verið einn með þeim á íhugulum vetrarkvöldum (og reyndar líka í strætó og við matarborðið á sólbjörtum sumarmorgni) — er ég kannski að svíkja einhvern byltingaranda í þessum ljóðum með því að skrifa um þau á þessum forsendum? Er þetta ein svika- myllan á vegum bókmenntastofnunar- innar: virt forlag gefur út úrval neðan- jarðarljóða á fínni bók og svo eru þau gagnrýnd eins og um „venjuleg" skáld- verk væri að ræða? Er þar með búið að koma undirheimasköpun Sjóns upp á yfirborðið og farið að þoka henni inn í hefðarveldi íslenskra bókmennta? Hér er nauðsynlegt að kippa fótun- um undan tveimur goðsögnum. Maður er aldrei einn með ljóði. I ljóðinu eru leifar af ótal öðrum textum og að sama skapi er fjöldi manns að lesa ljóðið yfir öxlina á okkur þótt við höldum okkur vera að finna í því merkingu sem er sér- eign okkar. Ennfremur verður ekki komist undan bókmenntastofnuninni, því það er hún sem gerir okkur fært að lesa ljóðið. En sem betur fer eru til skáldverk sem berjast gegn stöðnun þessarar stofnunar og fremja jafnvel á henni skemmtileg skemmdarverk. Sum ljóða Sjóns heyra til slíkra skemmdar- verka og fyrst ég hef kosið að skrifa um þau ritdóm verð ég að reyna að sýna róttækum módernisma þessara orða- gjörninga trúnað. Villtur texti Leið hins lýríska texta hefur legið frá náttúrunni og sveitinni, um torg borg- arinnar, í senn lífiðandi og auðnarleg, inn á vitundarvegi mannsins, til þeirrar „menningar" er virtist fjærst „náttúr- unni“. Þar er enn ófarið um blindgötur undirvitundar og hvar skyldi maður/ ljóð koma út aftur? Hvar, nema í nátt- úrunni. En þó ekki í sveitinni. Sjón er náttúruskáld. Skáld kynþrótt- ar, vissulega, en þó ekki síður smálegs augnayndis. Smávinir fagrir, foldarskart — Sjón er viss Jónas í samtímaskáld- skap okkar, Sjónas, og er þá ekki átt við hversu hátt hann rís, heldur er hann sájónas sem við eigum kost á nú á dög- um. En er hann Jónas á villigötum? Getur verið að sjón sé rangnefni? Ekki ber á öðru; fyrsta ljóðinu lýkur með þessum orðum: „Hvert stefnir?/ég geng eftir glerbrúnni." (7). Ljóðmælandinn er villtur. Líkt og annað skáld, Gyrðir El- íasson, yrkir Sjón iðulega um gler. Þótt þetta séu ólík skáld eru þau í gler(á) huga sínum bæði meðvituð um brot- hættu orða og ljóða í þeim glerfína úr- gangskúltúr sem sumir telja að við sökkvum nú æ dýpra í með sælubros á vör. Glerið er skermur orðanna sem að- skilur okkur frá hlutunum „sjálfum“, en um leið er gler merkingarljóri orða og boðskiptabrú á milli okkar. Við lif- um á tækniöld sem hefur orðið æ „sjón- rænni“. Að sjá er talið vera það sama og að skilja, og glerið er fínpússað þannig að við gleymum tilvist þess. — Gyrðir Elíasson er skáld á bakvið maríugler, sem er ekki fullgegnsætt og hlífir hon- um fyrir ofljósri merkingu; hann fer jafnframt varfærnislega með glerið, því þegar það brotnar sker það djúpt í við- kvæmt hold og ofurnæmt geð. Sjón hikar hins vegar ekki við að splundra glerinu. I Ijóðinu „Svefnrof" eru skyndilega „ekkert nema fiskar í veggjunum“ og „hann“ leggur „aðra 506
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.