Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Blaðsíða 99

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Blaðsíða 99
Suma daga var plássleysið þrúgandi. Þeim hélt við köfnun. En einu gilti hvemig þau fiktuðu við veggi þessara tveggja herbergja, hvort þau brutu þá niður, bjuggu til ganga, skápa, geymslurými, upphugsuðu snjöll upphengi, dreymdi um að leggja undir sig nærliggjandi íbúðir — þau enduðu jafnan í því sem var þeirra hlutskipti: 35 fermetrar. Auðvitað mátti hugsa sér snjallar uppstillingar: skilrúm fengi að víkja, við það græddist stórt vannýtt horn. Hlussulegri mubblu mátti skipta út fyrir aðra minni. Það var hægt að hugsa sér samstæðu af skápum. Með því einu að mála, skrúbba, leggja sálina í uppröðun mátti gera þessa íbúð ómótstæðilega. Glugginn með rauðu gardínunni var ekki ljótur og svo var annar ekki síðri með grænni, langa eikarborðið ögn tvístígandi sem þau keyptu á Flóamarkaðnum og var komið fyrir undir stórfallegri endurprentun af gömlu sjókorti. Borðinu var skipt í tvö vinnusvæði með litlu skrifpúlti með fellihurð í stíl Annars keisaradæmisins, það var úr mahoní og haldið saman með kopamöglum sem vom famir að týna tölunni. Sylvía var á vinstri hönd og Jérome á hina og borðpláss beggja var þakið með samskonar rauðri þerrisvuntu, sömu bréfpressu úr gleri, samskonar krús fyrir blýanta; gamall vasi smeltur tini þjónaði sem lampi, tunna með járngjörðum var bréfakarfa, stólamir vom hvor úr sinni áttinni, tágastólar, skammel. Og frá þessari heild í hugkvæmri röð og reglu hefði getað stafað vinalegum yl, þægilegu andrúmslofti iðju og samlífs. Ein saman tilhugsunin um verkefnið fram undan skaut þeim skelk í bringu. Þau hefðu þurft að slá lán, spara, fjárfesta. Þau komu sér ekki til þess. Auk þess skorti sannfæringuna — fyrir þeim var það annað hvort allt eða ekkert. Annað hvort yrðu bókahillumar úr ljósri eik eða ekki. Þær vom ekki. Bækumar hrúguðust upp á tveimur hillum úr skítugum borð- fjölum og lögðu auk þess undir sig tvær hillur í skáp sem hefði átt að þjóna undir annað. í þrjú heil ár var rafmagnsinnstunga í lamasessi án þess að þau kæmu í verk að kalla á rafvirkja en veggirnir útvaðnir í samansplæstum leiðslum og klúðurslegum framlengingarsnúmm. Það tók þau sex mánuði að skipta um gardínustreng. Og smávægilegasti misbrestur í daglegum tiltektum hótaði að framkalla á einum sólarhring óreiðu sem værðarleg nærvera trjánna og nærliggjandi garða gerði enn óbærilegri. Millibils- og óbreytt ástand ríktu hér alráð. Aðeins kraftaverk gæti TMM 1991:2 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.