Barnablaðið - 27.12.2014, Page 4
BARNABLAÐIÐ4
Hvað er að frétta af ykkur bræðr-
um úr Esjunni?
Kertasníkir: Jú, það er bara allt
rosa fínt að frétta. Við erum búnir
að bíða spenntir eftir jólunum
í heilt ár. Það þurfti reyndar að
vekja Stekkjarstaur þarna í
byrjun desember. Hann
var næstum búinn að
sofa yfir sig.
Stúfur: Desember
er búinn að vera
ansi anna-
samur. Færðin
hefur ekki verið
okkur hliðholl.
Þetta tekur allt
sinn tíma. Það er
ekkert alltaf búið
að ryðja allar götur
þegar við erum á ferli.
En ég held að við höfum staðið
okkur ágætlega þetta árið.
Hafið þið þurft að gefa
í marga skó?
Kertasníkir: Já, þeir eru orðnir þó
nokkrir skal ég segja þér.
Stúfur: Þeim fjölgar á hverju ári.
Þetta eru alls konar skór, striga-
skór, bomsur, spariskór og fleira.
Eru margir sem fá kartöflu
í skóinn?
Kertasníkir: Það er alltaf einn og
einn.
Stúfur: Já, því miður eru alltaf ein-
hverjir sem hafa ekki verið nógu
þægir. Helst eru það tölvurnar sem
orsaka þetta en þær eru orðnar
ansi vinsælar á þessari öld.
Eru þið ekkert þreyttir eftir
svona vertíð?
Kertasníkir: Jú,
það er ekki
laust við það.
Fæturnir
eru orðnir
óttalega lúnir
svona undir
lok árs. En
þá tekur líka
við kærkomið
frí.
Stúfur: Ég er nú
svo léttur á mér að ég
finn lítið fyrir þessu. Ég er líka
duglegur í ræktinni og reyni að að
halda mér í góðu formi allan ársins
hring. Bræður mínir eru misdugleg-
ir að hugsa um heilsuna.
Hvernig ferðist þið á milli staða?
Kertasníkir: Við höfum notað
vélsleðann talsvert núna í ár.
Annars höfum við verið á ýmsum
farartækjum í gegnum tíðina.
Stúfur: Mér fannst nú skemmti-
legast þegar við gátum notað
golfbílinn sem Leppalúði á. Þá var
færðin góð og við vorum tímanlega
á ferðinni. Annars þurfti að sækja
Giljageir á þyrlu um daginn, hann
var að verða of seinn á jólaball og
veðrið var alveg snarbrjálað. Hann
rétt náði á ballið í tæka tíð.
Kertasníkir: Við erum eiginlega al-
veg búnir að leggja hreindýrunum.
Þau eru orðin ansi slöpp. Við erum
farnir að þurfa fleiri hestöfl enda
ansi löng leið sem við förum.
Hafið þið lent í einhverjum óhöpp-
um um hátíðarnar?
Kertasníkir: Ég var nú frekar hepp-
inn í minni ferð á aðfangadag. Það
munaði þó mjóu í einni blokkinni,
þegar ég var að klifra á milli svala.
Stúfur: Hurðaskellir fótbrotnaði á
einhverri jólaskemmtun um daginn
og þurfti að fá einhverja aðstoð.
Mig minnir að Gluggagægir hafi
aðstoðað hann með Vestfjarða-
kjálkann. Annars slapp þetta fyrir
horn. Þeir töluðu um að blaðber-
arnir hefðu verið komnir á ferðina
þarna undir morgun.
„Reynd-
ar hefur
Bjúgnakræ
kir eitt-
hvað verið
að þreifa
fyrir sér á S
napchat.
Ég skil það
apparat
reyndar ek
ki.“
Búnir
að bíða
spenntir
í heilt ár
Bræðurnir Stúfur og Kertasníkir
höfðu í nógu að snúast á aðfanga-
dag. Þeir ferðuðust um á vélsleða
enda þurfa þeir að komast hratt
yfir í öllum snjónum.
Emilía og Anton fengu skemmti-
lega heimsókn á aðfangadag.
Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
STÚFUR