Fréttablaðið - 16.06.2015, Page 2
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Risahvannir eru
fjarlægðar um leið og þær
uppgötvast. Ef ég man rétt
hefur hún fundist á 14
stöðum, þar af rúmlega
helmingurinn í görðum. Það
hefur fengist leyfi hjá öllum
garðeigendum nema einum.
Róbert Arnar Stefánsson,
forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands
VEÐUR
SJÁ SÍÐU 26
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Tenerife
Frá kr. 110.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá kr. 110.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá kr. 129.900 m.v. 2 fullorðna í stúdíó.
20. júní í 14 nætur
44.950
Flugsæti frá kr.
Tamaimo Tropical
Suðaustlæg átt í dag og víða dálítil
væta. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast fyrir
norðan.
FINNLAND Þrjátíu og sex ára gömul
kona var í gær dæmd í lífstíðar-
fangelsi í Finnlandi fyrir að bana
fimm nýfæddum börnum sínum
á árunum 2005 til 2013 og fela í
frystikistu. AFP greinir frá.
Upp komst um glæpi konunn-
ar í júní í fyrra þegar nágrannar
kvörtuðu undan vondri lykt í fjöl-
býlishúsinu sem konan var nýflutt
í með manni sínum.
Í ljós kom að konan hafði falið
lík barnanna í ruslapokum í kjall-
ara hússins. Konan neitaði sök í
málinu. - ngy
Banaði fimm börnum sínum:
Í lífstíðarfang-
elsi fyrir morð
NÁTTÚRA Risahvannir, sem geta
valdið alvarlegum bruna, dreifa
sér nú hratt á Akureyri. Grasa-
fræðingar við
Akureyrar-
setur Náttúru-
fræðistofnun-
ar Íslands vilja
að risahvönn-
inni þar verði
útrýmt.
„ Þ a ð e r
nýbúið að kort-
leggja staðina
þar sem risahvönn vex á Akur-
eyri og hún er mjög víða,“ segir
dr. Starri Heiðmarsson grasa-
fræðingur en hann hefur ásamt
dr. Pawel Wasovicz grasafræðingi
fylgst með þeim tveimur tegund-
um risahvanna sem náð hafa fót-
festu á Íslandi, það er bjarnarkló
og tröllahvönn.
Starri segir risahvannir
plöntur sem líklegt er að verði
ágengar. Þær séu víða á Reykja-
víkursvæðinu en einnig annars
staðar á landinu.
„Fólk er með þetta sem fallega
plöntu í görðum. Það gerist lítið
fyrst en svo dreifa risahvann-
irnar sér hratt þegar þær hafa
náð fótfestu og hver fullþrosk-
uð planta gefur af sér mikið af
fræjum. Það er enn möguleiki að
bregðast við dreifingu þeirra og
útrýma þeim á Íslandi en þá þarf
að bregðast hratt við.“
Safi risahvannar inniheldur
mikið magn efnasambandsins
fúranókúmarín, að því er Starri
greinir frá.
„Komist safinn í snertingu við
húð getur myndast alvarlegur
bruni en efnasamböndin virkjast
þegar þau verða fyrir sólarljósi.
Sérstaklega skal varast að safinn
komist í snertingu við augu en
slíkt getur valdið tímabundinni
og jafnvel varanlegri blindu.“
Hann bendir á að þótt ýmsar
aðrar innlendar og erlendar
plöntur innihaldi svipuð efna-
sambönd þá séu risahvannirnar
sérstaklega hættulegar vegna
mikils styrks efnasambandanna
og vegna stærðar þeirra.
„Fólk hefur fengið brunasár af
risahvönn en börn eru náttúrlega
í sérstakri hættu ef þau eru að
leik þar sem risahvönn er.“
Í Stykkishólmi hófust aðgerð-
ir gegn risahvönn sumarið 2010.
Felast þær í því að plantan er
fjarlægð þar sem hún vex utan
garða og það sama er gert í görð-
um þar sem samþykki garðeig-
enda fæst.
„Risahvannir eru fjarlægðar
um leið og þær uppgötvast. Ef ég
man rétt hefur hún fundist á 14
stöðum, þar af rúmlega helming-
urinn í görðum. Það hefur fengist
leyfi til eyðingar hjá öllum garð-
eigendum nema einum. Risa-
hvönnin var ekki orðin útbreidd.
Það er erfitt að eiga við hana ef
hún er farin að dreifa sér. Þá
verður þetta miklu stærra vanda-
mál,“ segir Róbert Arnar Stef-
ánsson, forstöðumaður Náttúru-
stofu Vesturlands.
Grasafræðingar við Náttúru-
fræðistofnun Íslands vilja fylgj-
ast með útbreiðslu risahvanna og
má tilkynna um fund tegundanna
á netfangið: agengartegundir@
ni.is. ibs@frettabladid.is
STARRI
HEIÐMARSSON
BJARNARKLÓ Á AKUREYRI Bjarnarkló telst til risahvanna eins og tröllahvönn.
Risahvannir er að finna víða á Reykjavíkursvæðinu og einnig annars staðar úti um
landið.
Vilja útrýma risa-
hvönn á Akureyri
Risahvönn er farin að dreifa sér víða á Akureyri. Komist safinn úr hvönninni í snert-
ingu við húð geta myndast slæm brunasár, segir grasafræðingur. Í Stykkishólmi
hófust aðgerðir gegn risahvönn fyrir sex árum. Eru fjarlægðar um leið og þær sjást.
5 MÁN.9. DAGUR8. DAGUR7. DAGUR6. DAGUR5. DAGUR
BRUNASÁR AF VÖLDUM RISAHVANNA GRÓA HÆGT OG SKILJA EFTIR SIG
DÖKKA HÚÐ. MYNDIR: BOB KLEINBERG/NYSDEC
SUÐUR-AFRÍKA Omar Hassan al Bashir Súdansforseti fór með einka-
þotu sinni frá Suður-Afríku í gær án þess að þarlend yfirvöld reyndu
að stöðva hann.
Hæstiréttur landsins hafði farið fram á að hann yrði kyrrsettur
vegna þess að Alþjóðlegi sakadómstóllinn í Haag hafði farið fram á
framsal hans vegna ásakana um stríðsglæpi.
Bashir kom til Suður-Afríku til að taka þátt í leiðtogafundi Afríku-
bandalagsins um helgina. Suður-Afríka á aðild að stríðsglæpadóm-
stólnum, en segir að leiðtogar Afríkubandalagsríkjanna njóti friðhelgi
á fundum þeirra. - gb
Súdansforseta tókst að flýja í þotu sinni frá Suður-Afríku:
Náði að komast undan framsali
OMAR AL BASHIR Súdansforseti er ásakaður um stríðsglæpi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HEILBRIGÐISMÁL Lyfjateymi Emb-
ættis landlæknis hefur skilað inn
tillögum um breytt viðmiðunarverð
til að bæta ávísanir ávanabindandi
lyfja. Til að sporna við óhóflegum
ávísunum þessara lyfja er það til-
laga teymisins að töfluverð sem
flestra ávanabindandi lyfja verði
því sem næst óháð pakkningastærð,
segir í frétt á vef embættisins.
Á Íslandi er notkun svefnlyfja,
verkjalyfja, róandi og kvíðastillandi
lyfja og þunglyndislyfja sú mesta á
Norðurlöndunum.
Forsenda tillögunnar er sú stað-
reynd að munur á töfluverði vissra
lyfja í mismunandi pakkningum er
verulegur. Það veldur því að mun
meira er selt af 30 stykkja pakkning-
um en 10 stykkja sem er oft á skjön
við ráðlagða notkun þeirra. Engin
almenn greiðsluþátttaka er fyrir
svefnlyf af hálfu Sjúkratrygginga
Íslands og því er hagur sjúklinga ein-
göngu háður verði úr apótekum og
þar með viðmiðunarverðskrá.
„Eðlilegast væri að læknar væru
ekki settir í þá stöðu að semja við
sjúklinga um ávísanir ávanabindandi
lyfja eftir því hvað þau kosta,“ segir
embættið. - shá
Pakki með 30 töflum af svefnlyfi kostar má kalla það sama og 10 töflur:
Vilja sporna við óhófi í sölu lyfja
SVEFNÞURFI Mun ódýrara er að kaupa
meira magn vissra lyfja.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
ÖRYGGISMÁL Ríkisendurskoðun
hvetur innanríkisráðuneytið til að
hafa eftirlit með því að verkefni
Landhelgisgæslunnar erlendis
komi ekki niður á getu hennar til
að sinna lögbundnum skyldum
sínum hér við land, segir í nýrri
eftirfylgniskýrslu.
Ríkisendurskoðun telur óljóst
með hvaða hætti innanríkisráðu-
neytið hyggst sinna eftirliti með
áhrifum erlendra verkefna Land-
helgisgæslunnar á lögbundna
starfsemi hennar. Ábending um
að það sé skýrt er því ítrekuð. - shá
Ítreka ábendingu sína:
Eftirlit sé með
starfi erlendis
MENNTAMÁL Háskóla Íslands bár-
ust liðlega átta þúsund umsókn-
ir um grunn- og framhaldsnám
fyrir komandi skólaár. Alls eru
umsóknir um grunnnám tæplega
5.000 en að auki bárust skólanum
rúmlega 3.000 umsóknir um að
hefja framhaldsnám næsta haust.
Miðað við fjölda umsókna og ef
mið er tekið af reynslu síðustu ára
má búast við að nemendafjöldi við
Háskóla Íslands verði hartnær sá
sami og haustið 2014, eða á fjór-
tánda þúsund nemenda. - shá
Á 14.000 nemar í vetur:
Átta þúsund
sóttu um í HÍ
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
C
-0
7
0
C
1
6
2
C
-0
5
D
0
1
6
2
C
-0
4
9
4
1
6
2
C
-0
3
5
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K