Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 22
þar er hinu sjónræna umbreytt í hrynjandi fagurra orða, sá sem les eða hlustar lætur sér nægja að sjá fegurðina með innri augum. Þegar íslensk börn fengu loks í hendur myndabækur og myndskreyttar barnabækur tengdust þau þeim off miklum tilfmningaböndum. Ég hef beðið fullorðið fólk að lýsa einhverri myndskreytingu sem það muni eftir úr bernsku sinni. Enginn á í vandræðum með að kalla fram í hugann mynd sem hefur brennt sig svo fast í barnshugann að ekki þarf annað en að loka augunum til að kalla hana fram. Heimurinn sem mætir augum nútímabarnsins á fslandi er svo sannarlega annar en áður var. Sjónræn áreiti mótuð af mannahöndum skella sífellt á því. Myndir eru alls staðar; í auglýsingum, blöðum og bókum, á fatnaði og nytjahlutum af öllu tagi. Skýringarmyndir og merki eru notuð til að flokka, skilgreina og leiðbeina. Mest af þessu myndræna áreiti á það sameiginlegt að standa aðeins yfir skamma stund. Auglýsingaspjöld sjást úr bílglugga eða þegar gengið er hjá. Myndin á sjónvarpsskjánum hverfur á augnabliki og önnur kemur í staðinn. Blöðum, bæklingum og vörulistum er flett og síðan hent. Þær myndir sem eru varanlegar eru fyrst og fremst myndir á veggjum híbýlanna og myndir í bókum. Myndskreytingin í barnabókinni er því eftir sem áður mynd barnsins sjálfs; sú mynd sem barnið getur leitað til aftur og aftur ef það þarfnast einhvers sem hún getur veitt því. Hún er kyrr, stöðug og óbreytanleg — í veröld sem einkennist af brotakenndri upplifun. Það er ekki síst þess vegna sem hún er mikilvæg enn í dag. Ofgnótt myndefnis sem ekki hvetur til náinnar athugunar og innlifunar getur sljóvgað ekki síður en myndfátæktin sem áður fyrr réði ríkjum. Orðsins ríki ísland er enn í dag fyrst og fremst ríki orðsins. Við lítum á okkur sem þjóð ekki síður af því að við tölum sama mál heldur en af því að við byggjum sama land. Við reynum að standa vörð um tungumálið, endurnýja það með varúð, verja fyrir of miklum breytingum. Við ræðum um hvernig hægt sé að koma bókmenntaarfinum til skila til nýrra kynslóða. í þessu samhengi er sjaldan minnst á myndir, nema þá helst sem andstæðu við málið. Hinn sjónræni þáttur í menningararfinum og umhverfinu, í því sem gerir okkur að íslend- ingum, er sárlega vanmetinn. Á íslandi urðu aldrei til stéttir myndlistarmanna eða handverksmanna, engin yfirstétt var til í landinu sem gat borið uppi sérhæfða vinnu af því tagi. 20 TMM 1995:3 j
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.