Tímarit Máls og menningar - 01.03.1999, Síða 111
WILLIAM BUTLER YEATS, SKÁLDIÐ í MIÐJU STORMSINS
Collected Letters ofW.B. Yeats (íyrir árin 1896-1900)2 og einnig stóðu fram-
takssamir menn íyrir útgáfu hljómdisksins Now and in Time to be: A Musical
Celebration of the Works of W.B. Yeats. Þar má heyra nokkra af frægustu
hljómlistarmönnum f rlands syngja og leika tónlist við ljóð Yeats en rúsínan í
pylsuendanum er flutningur skáldsins sjálfs á hinu fræga The Lake Isle of
Innisfree en ljóð þetta vakti á sínum tíma verðskuldaða athygli á ungu og
efnilegu skáldi.3 Síðast en ekki síst vekur nokkra athygli að á vormánuðum
1997 komu út þrjár alls óskyldar ævisögur um William Butler Yeats.4
í þessu ritgerðarkorni er einungis ætlunin að glugga í verk Roys Fosters
W.B. Yeats: A Life. Volume I: The Apprentice Mage 1865-1914 en Foster, sem
gegnir prófessorsstöðu í Oxford, þykir meðal fremstu sagnfræðinga f rlands.
Biðu ffæðimenn bókar hans um Yeats með nokkurri eftirvæntingu enda eru
nú næstum fimmtán ár síðan Foster hóf rannsókn sína. Dvaldist hann
langdvölum á skjalasöfnum í Bretlandi og Bandaríkjunum og hafði aukin-
heldur frjálsan aðgang að gögnum í einkaeigu ættingja eða afkomenda
skáldsins.5 Vakti bókin verðskuldaða athygli enda lipurlega skrifuð og fag-
mannlega unnin. Bíða menn nú seinna bindisins, rétt eins og þess er beðið
með óþreyju að Guðjón Friðriksson ljúki rannsókn sinni á ævi Einars
Benediktssonar.
II.
William Butler Yeats fæddist í Dublin árið 1865. Foreldrar hans, John Butler
Yeats og Susan Pollexfen, tilheyrðu stétt aðfluttra mótmælenda sem um aldir
nutu mikilla forréttinda á f rlandi en ættarauðurinn var þegar hér var komið
sögu nánast að engu orðinn og hvarf síðasti landskikinn úr eigu þeirra árið
1888. John Butler Yeats var listamaður en reyndist erfitt að ljúka við málverk
sín og barðist fjölskyldan í bökkum. Ákváðu þau hjón að flytjast búferlum til
London þegar Yeats var tveggja ára og þar eyddi fjölskyldan næstu íjórtán ár-
unum þótt Yeats hinn ungi dveldi reyndar í frændgarði sínum í Sligo-sýslu á
vestanverðu írlandi á sumrin. Varð fagurt landslagið þar honum síðar yrkis-
efhi rétt eins og bróðir hans Jack, sem lagði málaralistina fyrir sig með tals-
vert betri árangri en faðir þeirra, fann þar drjúgan efnivið.
Þegar verulega tók að harðna í ári neyddist John Butler Yeats til að flytja
aftur til frlands með fjölskyldu sína og komu þau sér upp heimili í Dublin
árið 1881. Settist Willie Yeats þar fljótlega á skólabekk en innritaðist ekki í
Trinity College, eins og eðlilegt hefði verið fyrir pilt af hans uppruna, heldur
stundaði nám við Dublin Metropolitan School of Art árin 1884-1886. Fór
um þetta leyti að kvikna áhugi hans á fornum írskum goðsögnum og Yeats
hóf einnig að kynna sér andleg málefni, las sér meðal annars til um búddisma
TMM 1999:1
w ww. m m. ís
101