Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1999, Blaðsíða 32

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1999, Blaðsíða 32
JÓN SIGURÐSSON menntafræði bera þessum sjónarmiðum skýrt vitni. Um þetta má vísa til ff á- sagnar Kristins sjálfs (Kristinn E. Andrésson, 1971) og til ritverks Arnar Ólafssonar um Rauðu pennana (Örn Ólafsson, 1990). Ekki þarf reyndar lengi að leita gagna til að fá staðfest hversu andstæð þessi sjónarmið eru og hafa verið öðrum ráðandi nútíma-straumum í bók- menntum síðustu kynslóða. Er óþarft að rekja lengi áhrifamiklar kenningar um „listrænt ffelsi", um „listina fyrir listina“, um að höfundur og listamaður beri aðeins ábyrgð gagnvart eigin samvisku og eigin innblæstri, að list og skáldskapur lúti sínum eigin lögmálum og tengist mannlífinu með allt öðr- um hætti og meira eða minna ótengt hugmynda- og hagkerfum, þjóðerni, trúmálum eða stjórnmálabaráttu. Jón Óskar víkur ítrekað að þessum um- ræðum í endurminningum sínum (Jón Óskar, 1969, 1979). III Fjölbreytni og róttækar umbreytingar á ljóðstíl og ljóðformi, tungutaki og skáldskaparmáli, hugsunartúlkun og yrkisefnum eru megineinkenni á skáldferli Jóhannesar úr Kötlum. Þar skiptast á stöðug þróun og skyndileg umbylting, og hann sagði sjálfur offar en einu sinni að þessi framvinda væri viðbrögð við umbreytingum mannlífsins og samfélagsins - vegna þess að ljóðin ættu að vera hluti þeirrar ff amvindu og ættu að leika hlutverk í henni, mótast af henni og hafa jafnffamt áhrif á hana. Um þetta má nefna mörg dæmi. í grein í tímaritinu Rétti 1947, sem áður var vitnað til, segir Jóhannes: „Listamaðurinn á því aðeins um tvennt að velja: annaðhvort að einangra sig ff á lífi fólksins með því að láta undan ófrjó- um formdýrkunarkröfúm... eða gera baráttu fólksins að sinni eigin baráttu ... (Vinaspegill, bls. 12). I ræðu árið 1952 segir hann: „I innsta eðli sínu hefur listin aldrei verið neitt einkafyrirtæki, þaðan af síður forréttindamunaður, enda þótt versleg og geistleg völd hafi gert hana það, heldur leit mannsand- ans að meiri fegurð og barátta hans fýrir auðugra lífi.“ (Vinaspegill, bls. 152) Og í erindi sem gefið var út 1959 segir hann um stöðu og þróun ljóðlistarinn- ar: „Atómkveðskapurinn er öðrum þræði uppreisn gegn þessari hættulegu stöðnun, á svipaðan hátt og uppreisn Jónasar gegn rímnastaglinu á sínum tíma. . . . Hér við bætist að aðstaða ljóðlistarinnar í þjóðlífinu hefur ger- breytzt. Öldum saman og allt ff am á okkar daga var hún meginþráður í and- legri menningu Islendinga . . . Hlutverk ljóðlistarinnar hefur því dregizt gífurlega saman og hljóta þær takmarkanir að leiða til mjög aukinnar sér- hæfmgar.... Ljóðlistin er nú að reyna að hasla sér völl við nýjar aðstæður í gerbreyttum heimi. Mörgum mun mistakast í þeirri viðleitni, aðrir munu sigra. Jafnt viðfangsefni sem búningur munu taka miklum stakkaskiptum: 30 www.mm.is TMM 1999:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.