Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Síða 108

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Síða 108
RITDÓMAR og „Hvítt pils“ sem bæði eru minnisstæð og vel gerð. Fjórði hluti Ljóðtímaskyns nefnist Svart-hvítt og þar dregur skáldið gjarnan upp ítrustu andstæður eins og í ljóðunum „Hið svarta land“ og „Millistig“. Sem dæmi um listfengi Sigurðar í knöppu ljóðformi tek ég ljóðið „Trjágöng um vetur“: Það snjóar á ljósin í göngunum götuljósin Trjágöngin enda handan við sjónmál Það dimmir og svartir fuglar sitja á svörtum greinum Fimmti og síðasti hluti bókarinnar heitir Stundir og inniheldur tækifæriskvæði og eru þau hvert öðru fallegra. Sem dæmi má taka fyrsta ljóðið „Thor sjötugur“, fyrstu erindin tvö eru svohljóðandi: „Mánasilfur mjúkt / Inn um gluggann // Skáld í bláu myrkri / Með gull í hjarta / Safnar ljósi“ Ljóðtímaskyn er afar vönduð bók og áreiðanlega ein jafhbesta ljóðabók Sigurð- ar Pálssonar. Það má greina ákveðna stíg- andi í bókum hans og þróun í átt til yfir- vegunar og einföldunar. En sem betur fer heldur hann sköpunarkrafti sínum og dirfsku, hann skoðar heiminn af ástríðu og kann að meta það sem gefur lífinu gildi, í Ljóðtímaskyni eru það fyrst og ffemst hinar upphöfnu stundir og leiðslan sem sefa angist mannsins. Jafnframt heyrist nýr tónn í sumum ljóðum t.d. „Tvíhleypa" þar sem lýst er í hnotskurn þýðingu dymbil- vikunnar fyrir heiminn. Hún vekur „Nýj- an söng sem lengi hafði beðið / í brumandi liminu". En þegar allt kemur til alls er það fjölbreytt sjónarhorn og víðsýni sem er að- all Sigurðar Pálssonar sem ljóðskálds. Guðbjörn Sigurmundsson Launstafir einmanaleikans Bragi Ólafsson: Hvíldardagar. Bjartur 1999.192 bls. Stundum er sagt að Islendingar telji vinnusemi til æðstu dyggða og séu sístritandi. Hvað sem hæft kanna að vera í því er sá landi okkar sem segir ffá í fyrstu skáldsögu Braga Ólafssonar einn af þeim sem telja hag sínum best borgið með mikilli vinnu og hún er helsta at- hvarf hans í lífinu. Hann hefur ekki tekið sér hvíld ff á störfum af fúsum vilja árum saman, en þegar sagan hefst hefur hon- um verið þröngvað til að fara í þriggja mánaða sumarff í. Það er skemmst ff á því að segja að þeir hvíldardagar reynast honum ofviða og hann missir alla fót- festu í lífinu. Bókin er erfið aflestrar. Hún reynir á þolrif lesandans, vekur bæði óþolin- mæði og gremju, jafhvel depurð. Þetta stafar þó ekki af því að stíll hennar sé erfiður eða tyrfinn. Hann er þvert á móti lipur og tær. Ástæðurnar eru einkum þrjár. 1 fyrsta lagi er ffamvindan afar hæg, það gerist fátt í bókinni og flest af því sem boðað er fer út um þúfur. Les- andinn er hafður að leiksoppi með því að fá hann tfl að vænta einhvers sem aldrei kemur. í öðru lagi er fyrstu persónu ffá- sögnin mótsagnakennd og óáreiðanleg, staldrar við hluti sem virðast engu máli skipta, en ýjar aðeins að þeim atburðum sem virðast hafa þýðingu fyrir það hvernig komið er fyrir sögumanni. Les- andinn á erfitt með að fóta sig og er sífellt að hnjóta um eitthvað sem vekur spurn- ingar en á sér engar nærtækar skýringar. I þriðja lagi er sögumaður lokaður inni í sínum eigin heimi, forðast samneyti við aðra og finnst umheimurinn ógna ör- yggi sínu. Smám saman magnast upp andrúmsloft ótta og kvíða sem litar alla ffásögnina. Lesandinn fær þó umbun erfiðis síns eftir því sem snjöll bygging 106 www.malogmenning.is TMM 2000:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.