Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2000, Side 42

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2000, Side 42
ODDVÖRJOHANSEN biblíulestur, predikun og sálmasöng. í Færeyjum gerðist nokkuð sem ég hallast helst að að kalla harmleik. í stað þess að nota hið gamla færeyska tungumál í kirkju og stjórnsýslu var ákveðið að nota dönsku; í stjórnsýsl- unni, í réttinum, í verslunum og skólum. Þingbækurnar voru jafhframt samdar á dönsku. í fjórar aldir var danskan þannig eina löglega tungumálið og þetta hafði afdrifaríkar afleiðingar fýrir þróun færeyska ritmálsins. Afleiðingar sem að mínu mati eiga þátt í því að fýrstu rituðu fagurbókmenntirnar á færeysku litu ekki dagsins ljós fyrr en í byrjun tuttugustu aldar. Það var einfaldlega ekki til neitt ritmál. Og jafnvel vel menntað fólk eins og til dæmis hinn þekkti vísindamaður og náttúruffæðingur Jens Christian Svabo taldi ekki ástæðu til að rækta færeyskt ritmál. Árið 1782 skrifar hann: „Mér virðist það langt- um skynsamlegra að við reynum að innleiða tærari dönsku hér en fyrri tíma mönnum hefur tekist og sem síðari tíma menn munu viðhalda.“ Ef maður skoðar málið í öðru samhengi þá höfðu Færeyingar misst trúna á að hið fœreyska (í þessu tilviki tungumálið) væri nothæft til annars en kvæðaflutnings og orðaskipta um hið hversdagslega dægurþras. En það hafa alltaf verið til eldhugar sem eru á undan sínum tíma. Eldhug- ar sem eru ffamsýnni en aðrir. Slíkir menn hljóta oft vanþökk að launum, eða eitthvað þaðan af verra. Einn slíkur eldhugi var presturinn V. U. Hammershaimb. Hann byggði upp færeyskt ritmál í lok 19. aldar og það framtak hlaut ekki aðeins meðvind. Langt fram eft ir 20. öldinni voru til dæmis öll færeysk blöð skrifuð á dönsku og færeyska var fyrst leyfð við kennslu í barnaskólanum árið 1939. Það er mín skoðun að þetta hafi verið mjög lamandi fyrir nútímabókmenntir á fær- eysku og höfunda þeirra. Eins og menn vita fæddist William Heinesen árið 1900. Hefði hann verið borinn í heiminn tuttugu árum síðar hefði hann vafalaust skrifað á færeysku. Móðir Williams líktist á margan hátt móður sinni ffá Kaupmannahöfn. Þær voru báðar liprir píanistar og tóku báðar þátt í tónleikum og spiluðu undir á leiksýningum hjá áhugaleikurum. En off er það svo að andstæðurnar heilla. Karólína Heinesen mætti ör- lögum sínum í heillandi skipsstjóra sem hafði báða fætur á jörðunni. Hann var sonur stoltra bænda frá Vogey og hafði örugglega verslunarvit, sem smám saman þróaðist í blómstrandi íýrirtæki verslana, skipa og saltfisk- útflutnings. Einn af frændum Williams, jafhaldri hans Thorleif Restorff, skrifar í minningum sínum um æskuheimili Heinesens: „Heimili Heinesens var í sérflokki. Þetta var gamalt hús sem Heinesen hafði byggt við. Fyrir mig var 40 malogmenning.is TMM 2000:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.