Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2000, Síða 80

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2000, Síða 80
ÁRNl BERGMANN breyta heiminum svo um muni, en hann á sér alltaf von í lesanda, einum eða átta eða mörgum, sem kunni honum þakkir fyrir verk sem varð þeim gleði- gjafi eða aflgjafi, breytti í einhverju lífi þeirra. VIII í þessum þverstæðum lifir skáldskapurinn og af þeim spretta bæði góð tíð- indi og ill af afstöðubókmenntum og gagnrýni og viðtökum lesenda. Þau illu tengdust því einatt að lágkúru í pólitískri umræðu sló saman við langlífa meinsemd í bókmenntalífi: hinn fræga skáldaríg. Stundum spruttu af þessum samslætti stórskemmtilegar uppákomur, gleymum því ekki. Erlendur Jónsson greinir frá því í endurminningum sín- um, að þeir Indriði G. Þorsteinsson og Jóhann Hjálmarsson hafi farið saman í upplestrarferð í skóla á Norðurlandi. í heimavistarskóla einum er illa á móti þeim tekið og þegar skáldgestir finna bækur eft ir Thor Vilhjálmsson í hillu í stofu skólastjóra en engar eftir sjálfa sig, þá þykjast þeir vissir um að þeir séu „staddir á pólitísku rauðatorgi og vissara að vera við öllu búnir.“ Skólastjóri hljóti reyndar að vera kommúnisti „og það af ósvífnara taginu.“ Þetta reynd- ist svo mesti misskilningur, skólastjórinn var víst góður og gegn hægrimaður - en atkvæðalítill, “ef ekki rola hreint og beint.“43 Kenningar um ofsóknir kommúnista, yfirgang vinstrimanna, eða þá um skaðræðisáhrif stjórnmála á bókmenntaheiminn, gátu allar komið í góðar þarfir. Höfundur fær ekki þá viðurkenningu sem hann dreymir um og finn- ur sér þá nokkra huggun í því að það sé pólitísku andstreymi að kenna - um þetta eru nokkur dæmi sem áður var á minnst. En svo er annað: pólitíkin var þægilegur blóraböggull í víðari skilningi. Það var freistandi að kenna henni um allt sem miður fór í sambýli skálda. Indriði G. Þorsteinsson segir í grein um Guðmund Hagalín (Lesbók Mbl. 10.11.1998) að það hafi verið honum ný reynsla að „pólitísk slagsmál“ væru látin ná til bókmennta á íslandi „þar sem skáld höfðu fengið að vera skáld í friði.“ Þetta er rangt. Skáld voru ekki skáld í friði. Nítjánda öldin var tími þjóðskálda sem oftar en ekki ætluðu hvert annað lifandi að drepa vegna þess blátt áfram að þau voru hvert fyrir öðru, „hinir“ eru alltaf að hrifsa til sín verkefni og ffægð, „trana sér ffam“.44 Og um aldamótin næstsíðustu ramba þeir Þorsteinn Gíslason og Einar Benediktsson, skáldritstjórar báðir tveir, blindir af heift á milli pólitískra svívirðinga og hnútukasts um það hve aumt skáld andstæðingurinn sé.45 Til er skemmtileg ffásögn Davíðs Stefánssonar af því þegar hann, korn- ungur maður, lendir í samkvæmi skálda á Akureyri - hann sest að sumbli 78 malogmenmng.is TMM 2000:3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.