Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Blaðsíða 17
Úr Andránni (0ieblikket)
Stutt og laggott
1.
Kristindómurinn tekur framförum, allt stefnir fram á við, nú hefur
hann náð fullkomnun. Hinu þráða markmiði, sem jafnvel í frum-
kristni náðist ekki nema að takmörkuðu leyti, að kristnir menn væru
allir prestar, því hefur nú verið náð að fullu, einkum meðal mótmæl-
enda, einkum í Danmörku.
Því ef það sem hjá okkur kallast prestur er að vera prestur - nú, þá
erum við öll prestar!
2.
í hinni íburðarmiklu dómkirkju gengur hinn hávelborni, háæru-
verðugi Geheime-General-Ober-Hof-Predikant fram, hinn útvaldi
ljúflingur fyrirfólksins, hann gengur fram fyrir útvalinn hóp útval-
inna, og predikar hrærður yfir textanum sem er útvalinn af honum
sjálfum: „Guð hefur útvalið hina snauðu og smáðu í heiminum" - og
enginn hlær.
3.
Þegar einhver er með tannpínu, segir heimurinn „aumingja maður-
inn“, þegar kona einhvers heldur framhjá honum, segir heimurinn
„aumingja maðurinn“, þegar einhver er í peningavandræðum, segir
heimurinn „aumingja maðurinn“. - Þegar Guði þóknast að þjást í þess-
um heimi í líki fátæks þjóns, segir heimurinn „aumingja maðurinn“,
þegar postuli á Guðs vegum hefur þann heiður að þjást fyrir sann-
leikann, segir heimurinn „aumingja maðurinn“: aumingja heimurinn!
4.
„Gegndi Páll postuli nokkru embætti?“ Nei, Páll gegndi ekki neinu
embætti. „Aflaði hann sér á annan hátt mikils fjár?“ Nei, hann aflaði
sér ekki neins fjár á annan hátt. „Hann var þó að minnsta kosti
TMM 2000:4
malogmenning.is
15