Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 79
SAFN GRIPIR niður bringuna á þeim eins og risastórar perlur sem hefðu losnað úr hálsfestum. Svo kyrr kjör lengi vel. Birtan seytlar úr sjóndeildarhringnum, uns sólin hættir að ylja sviðnum kirkjuturninum. Ég geng að störfum mínum og reyni að þoka málum áfram. Upp- bygging ferðaþjónustu er eitt aðalverkefnið og þá í samstarfi við ferða- málasamtökin. Þróunarfélagið er þó frekast á starfskrafta mína og marga kvöldfundina höldum við í stofu Faktorshússins, enda Andi einnig virkur í félaginu. Okkur kom allajafna vel saman, en stöku sinn- um greindi okkur á. Þetta haust gengumst við í félaginu fyrir allmörgum menningarvið- burðum. Það kom því eins og reiðarslag þegar fregnir bárust af því að nýja bæjarstjórnin hygðist leggja menningarráð niður, en það hafði styrkt okkur dyggilega. Hvað ertu að láta þessa hreppapólitík fara í taugarnar á þér, sögðu vinir mínir fyrir sunnan og voru með allan hugann við efnahags- ástandið og takmarkað fjármagn til menntamála almennt. Drífðu þig í bæinn áður en þú dagar uppi þarna. Er þetta nokkuð betra hjá ykkur? Fer ekki bara allur tíminn í eitt- hvert pot? Það er hér sem hlutirnir gerast. Er ekki alls staðar eitthvað að gerast? spurði ég. Meira að segja þar sem enginn býr? Það fór að snjóa, eins og til staðfestingar orðum mínum. Það snjó- aði þegar ég fór á fætur, það snjóaði meðan ég var í vinnunni, það snjó- aði þegar ég fór að sofa, það snjóaði meðan ég svaf. Tröllin stóðu náföl í þessari drífu, stillt fyrst, en tóku síðan að berja sér til hita. Hvítt fargið missti fótanna og skreið og brunaði niður yfír gæsahúð og kalbletti og allt sem á vegi þess varð. Einum of oft, einum of langt. Vetfangið ff aus. Ég gekk um mitt byggðasafn eins og lamb sem hef- ur týnt mömmu sinni. Andi varð fyrirferðarlítill á loftinu, rétt eins og hann væri ekki þarna, en fyrir vikið var ég óvenjumikið með hugann við hann. í hríðinni miðri braust hann þó út og flaggaði í hálfa; í gegn- um ofurlitla geil í snjóinn horfði ég á hann tuskast við þrílitan dúkinn. Að öðru leyti hegðaði hann sér eins og hann væri grafinn í fönn. Þegar auglýst var eftir sjálfboðaliðum bauð hann sig að vísu fram, en var gerður afturreka. Þeir hristu bara hausinn, sagði hann og féll þungt að TMM 2000:4 malogmenning.is 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.