Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Síða 105

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Síða 105
UM ENEASARKVIÐU Tróju"), kemur aftur gullöld eins og í árdaga, „Mærin (sem sé réttlætisgyðj- an Astrea) snýr aftur, Satúrnus ríkir á ný“. Þótt „Búnaðarbálkur“, sem var að mestur leyti ortur áður en Octavianus var búinn að vinna lokasigur yfir Ant- oniusi, sé á yfirborðinu e.k. „fræðslurit“ um landbúnað, er hann í raun og veru heimspekiljóð um baráttu mannsins við harðneskjuleg náttúruöflin, um líf og dauða, þar sem svartsýni og bjartsýni skiptast á í undarlegum skuggaleik, því enginn sigur yfir náttúruöflunum er endanlegur, menn kunna ekki að haga lífi sínu á réttan hátt og tímarnir eru viðsjárverðir. I Eneasarkviðu er sjóndeildarhringurinn enn stærri og skáldið kafar dýpra í uppgjörinu við þann heim sem það lifði í. Til þessarar miklu hólm- göngu þurffi Virgill víðtækari yfirsýn yfir tímann en þá sem bundin var við líðandi augnablik eitt saman, og hann þurffi að styðja sig við alls kyns fyrir- myndir í skáldskap, bæði eldri og yngri. Hvað sem segja má um skáldskapar- tækni hans og ljóðmál í þessu söguljóði, er ljóst að Eneasarkviða tengist beint veröld Hómerskvæða, sem ort voru einum sex eða sjö öldum áður: hún segir ffá sömu atburðum, sem sé Trójustríðinu og brottför þeirra sem þar börðust, og að nokkru leyti þeim sömu persónum sem allir þekktu úr kvæðum sagna- skáldsins blinda. Fjöldamörg atriði í verkinu vísa beint til þeirra, og má nefna eitt klassískt dæmi: lýsingin á smíði skjaldar Eneasar í 8. bók Eneasarkviðu er byggð á „vopnsmíðarþætti“ í 18. bók Ilíonskviðu. En við þessa fornu hetju- öld bætir Virgill einu, sem alls ekki var að finna í kvæðum Hómers og ger- breytir öllu: það er söguspekin. Þegar Virgill hófst handa við að yrkja Eneasarkviðu, tveimur árum eff ir orustuna við Actium, var hann sannfærð- ur um að sagan hefði ákveðna merkingu og ákveðinn tilgang: það var vilji ör- laganna, að öll „heimsbyggðin“ skyldi að lokum sameinast í einu ríki, Rómaveldi, og það var sögulegt hlutverk Rómverja að vera verkfæri þessara örlaga, leggja undir sig heim allan, stofna þetta ríki og koma á varanlegum friði. En þetta kostaði harða og mjög off tvísýna og sársaukafulla baráttu, og um það snerist saga mannsins. Til þess að setja fram þessa söguspeki þurfti Virgill sjónarhól, þar sem hann gat horft yfir alla veraldarsöguna eins og menn þekktu hana, frá gullöldinni og hetjuöldinni og allar götur ffam að orustunni við Actium, og yfir þann hluta „heimsbyggðarinnar“ sem verið hafði meginsvið þessarar sögu. Slíkt víðsýni fann hann ekki í neinum þeim bókmenntum sem ritaðar höfðu verið á grísku eða latínu á undan honum, en hann gat notað hetjuver- öld Hómerskvæða sem e.k. stökkpall til að mynda sér sjónarhól af því tagi sem nauðsynlegur var. Öfugt við það sem menn hafa sagt er Eneasarkviða því ekki „stæling“ eða „afturhvarf1 til Hómerskvæða heldur nokkurs konar „endurvinnsla“ hinna fornu hetjukvæða til að setja fram hugsun sem er al- veg ný, gæða hið forna ljóðmál nýrri merkingu. TMM 2000:4 malogmenning.is 103
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.