Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Síða 127

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Síða 127
MEÐ ELD í ÆÐUM skrifborðið. Myndin var mjög óskýr. Þrír menn í stórum anorökkum horfðu í myndavélina. Hettur og treflar huldu andlitin á þeim. Þetta var mynd frá heimskautasvæðunum. Bandarískum fána hafði verið stungið í snjóinn rétt fyrir aftan þá. „Herra Dealy,“ sagði ég. „Þetta er mynd af einhverjum djöfulsins heimskautaleiðangri.“ Hann teygði sig fram og fálmaði í átt að mér. Ég rétti honum mynd- ina. Hann sýndi hundinum hana. Hundurinn þefaði nett af henni og fór að klóra sér. Blindi maðurinn skrifaði: „Ég bað hana um mynd af henni til að hafa í veskinu mínu. Hún er stríðnispúki. Ég skal fá mynd af henni og senda þér hana í pósti.“ „Það verður ekki nauðsynlegt. Ég reikna með að hún sé eina konan sem býr í húsinu.“ Hann kinkaði kolli. „Þá parkera ég bara fyrir fram- an húsið þitt á morgun og elti hana þegar hún fer. Ég get byrjað á morgun.“ Hann kinkaði affur kolli. „Nokkur hundruð gætu dugað í fyrirffamþóknum.“ Hann fann aftur til veskið sitt og tók út seðlabúnt. Hann nuddaði efra hornið til hægri á hverjum seðli áður en hann lagði þá á borðið hjá mér. Ég leit á seðlana. Þeir höfðu verið stungnir með nál í hornið, líklega til að þekkja þá í sundur. Snjallt. Ég sagði „allt í lagi, herra Dealy - “ en þá fór hann að vélrita aftur. „Kallaðu mig Ken. Hundurinn heitir Turk.“ „Fínt,“ sagði ég. „Fínt.“ Þetta var byrjun. Þetta var eitthvað. Þetta var kúnni sem borgaði. Kannski gæti ég lifað á þeim öðruvísi og skrýtnu og hinsegin þangað til ég fengi heyrnina aftur. Andskotinn, ég gæti jafnvel þróað sérhæfða tækni. Þannig leið mér næstum því ágætlega þegar ég tók lyftuna upp eftir hádegismatinn, og jafnvel enn betur þegar ég hélt að ég sæi annan kúnna. Gamall gaur í regnfrakka stóð í ganginum fyrir utan skrifstof- una mína. Ég skoðaði hann gaumgæfilega á leiðinni inn. Hann virtist falla inn í nýju kúnnaskilgreininguna: tóm augu, opinn munnur, hendurnar á iði í frakkavösunum. Hann hreyfði varirnar í áttina að mér. Ég benti á skiltið á hurðinni og sagði: „Afsakaðu, ég - “ og þá tók hann upp byssuna. Hann sagði: „Allt í lagi, ég skal gefa þér heyrnina aftur hérna á ganginum.“ TMM 2000:4 malogmenning. is 125
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.