Ský - 01.02.2007, Síða 6
sky
,
1. TBL. 2007
6 ský
Útgefandi:
Heimur hf.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Benedikt Jóhannesson
og Jón G. Hauksson
Útlitshönnun:
Heimur hf./Ágústa Ragnarsdóttir
Ljósmyndir:
Geir Ólafsson, Páll Stefánsson,
Páll Kjartansson og fleiri
Blaðamenn/greinarhöfundar:
Erla Gunnarsdóttir
Fríða Björnsdóttir
Hilmar Karlsson
Hrund Hauksdóttir
Lízella
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Sigurður Bogi Sævarsson
Auglýsingastjóri:
Vilhjálmur Kjartansson
Prentun:
Ísafoldarprentsmiðja
Heimur hf. – Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Heimur hf.
Borgartúni 23
105 Reykjavík.
Sími: 512-7575
Þjóðin er varla búin að jafna sig ennþá eftir æsispennandi handboltaleik Íslendinga og Dana. Einhverjir eiga eftir að upplifa síðustu mínútuna aftur og aftur. Það græðist þó lítið á því að hugsa hvað hefði getað gerst.
Hitt er mikilvægara að íslenska liðið sýndi að á góðum degi stendur það jafnfætis
bestu liðum í heimi. Í Skýjum veltum við oft fyrir okkur Íslendingum sem
hafa unnið sérstæð afrek. Sumir í listum, aðrir í íþróttum og ekki má gleyma
stjórnmálamönnum sem oft fá skammir en vinna sitt verk undir smásjá fjölmiðla
og almennings. Allir skapa söguna með verkum sínum.
Það er auðvelt að vera gagnrýninn á aðra og mjög oft á það vel við.
Listamenn sem fara ótroðnar slóðir eru oftar en ekki fordæmdir af sinni samtíð.
Íþróttamönnum er hampað þegar þeir koma heim með verðlaunapeninga en
fáir muna þá sem bara „tóku þátt“. Þeir stjórnmálamenn sem njóta einróma
aðdáunar um sinn eru oft fordæmdir síðar. Það er erfitt að gera svo öllum líki.
Eftir á að hyggja er meira spunnið í marga en menn sáu þegar þeir voru og
hétu.
Einn þeirra sem var hetja meðan hann var á lífi og er það enn er Jón Páll
Sigmarsson. Yfir honum var glaðværð og hann vann ótrúleg afrek á mörgum
sviðum. Hann var íþróttamaður ársins og gerði sér lítið fyrir að vinna bæði
vaxtarræktarkeppni Íslands og titilinn Sterkasti maður heims sama árið. Á
gerólíkum sviðum var hann bestur. Jafnvel þó að við vitum nú að hann neytti
lyfja sem ekki eru leyfileg minnkar það lítið hetjuljómann. Hann naut aðdáunar
barna og fullorðinna.
Dagur Sigurðarson var allt öðruvísi maður. Margir muna eftir honum á
götum borgarinnar. Á myndunum sem fylgja greininni um hann sjáum við
að hann var myndarlegur maður og hann var efnilegur listamaður en afar
umdeildur. En sitt er hvað, gæfa og gjörvileiki og hann féll frá árið 1994 án
þess að hafa uppfyllt þær vonir sem við hann voru bundnar. Þó að hann hafi að
mörgu leyti verið utanveltu eigum við samt að halda minningu hans á lofti því
að lífið var litríkara meðan hans naut við.
Til þess að undirstrika enn frekar hve margir hafa gert Ísland það sem það er
núna birtum við sérstaka grein um hetjur af ýmsu tagi. Þau eru ekki hetjur eins
og Egill Skallagrímsson eða Jón Páll. Ekki einu sinni allt frægt fólk. Samt hetjur,
sumir í bráð, aðrir í lengd. Meðal annars þeirra vegna erum við eins og við erum
í dag. Þess vegna finnst okkur við best.
Benedikt Jóhannesson Vinnufundir, árshátíðir eða hvaða tilefni
sem er. Þegar styrkja skal liðsheildina og
eiga góða stund saman eru hagstæðar
hópaferðir svarið.
Reykjavík, Akureyri, Egilsstaðir, Ísafjörður,
Vestmannaeyjar og Þórshöfn í Færeyjum.
Allar upplýsingar í síma 570 3075 og
hopadeild@flugfelag.is
HAGSTÆÐAR HÓPAFERÐIR
flugfelag.is
Egilsstaðir
Ísafjörður
Akureyri
Vestmannaeyjar
Þórshöfn í Færeyjum
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
58
60
0
1.
20
07
… MEÐ
HÓPINN
ÞINN
Hverjir
eru bestir?