Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 10
að 14 ár séu liðin frá andláti Jóns Páls starfar
Jonna enn að ýmsu sem varðar hann og afrek
hans eins og minningarsjóði, hlutdeild í
heimasíðu og að fá reistan um kappann
minnisvarða.
„Jón Páll var afar sérstakur maður og fór
sínar eigin leiðir. Hann missti ekki sjónar á
markmiðum sínum. Hann vissi strax fimm
ára gamall hvað hann vildi og ætlaði sér.
Hann ætlaði að verða sterkasti maðurinn í
heiminum og stóð við það,“ segir Jonna sem
er Herbalife-dreifingaraðili og einkaþjálfari.
Kynntust í Hollywood
„Við kynntumst í gegnum stúlku sem heitir
Elísabet Eyjólfsdóttir en hún vann með Jóni
Páli á Hótel Borg en við Elísabet unnum svo
aftur á daginn saman í tryggingafélaginu
Sjóvá. Hún sagði mér sögur af þessum stóra
og sterka manni sem meðal annars borðaði
svo rosalega mikið. Mér fannst þetta afar
áhugavert og gerði mér ferðir niður á Borg
að kíkja á manninn. Síðan hittumst við í
Hollywood og já, byrjuðum saman eftir
það,“ útskýrir Jonna með bros á vör.
Sigmar Freyr, sonur Jóns Páls og Jonnu,
fæddist 7. september árið 1983 og lýsir
Jonna Jóni Páli sem einstaklega góðum
föður.
„Ég gekk viku fram yfir og ætlaði reyndar
að fæða hann í heiminn 3. september, á
afmælisdegi Skúla Óskarssonar. Ég hljóp
upp og niður stigana á
Nönnugötu 16 þar
sem við bjuggum
en þá er ég að
tala um fjórar
Fyrrum samb‡liskona Jón Páls og barnsmó›ir, Ragnhei›ur Jónína Sverrisdóttir, me› börnum
sínum Söru Bjarneyju og Sigmari Frey, syni Jóns Páls.
Ekkert mál
10 ský