Ský - 01.02.2007, Page 12
Stutt og laggott
Viðburðaríkt og skemmtilegt tímabil
Jonna segir það hafa verið mikið álag bæði á sambandið og
fjölskylduna þegar Jón Páll var sem mest í sviðsljósinu en
miklar annir fylgdu áhugamáli hans og starfi.
„Hann fékk mikla athygli þar sem hann var á ferð og á
skemmtistaði var eiginlega ekki farandi vegna áreitis. Það var
ekki illa meint en þetta gat orðið svolítið mikið. Auðvitað var
þetta líka oft mjög skemmtilegt og viðburðaríkt en heimilislífið
snerist ansi mikið um æfingar og keppnir og svo þurfti
auðvitað að vera til mikill matur og ekkert ruslfæði,“ segir
Jonna og bætir við: „Það var mikill skellur þegar Jón Páll féll
frá, ég man enn hvar við vorum stödd og hvað við vorum að
gera. Auðvitað var það mikið sjokk fyrir mig að missa góðan
vin en erfiðast var að ganga í gegnum föðurmissi með
syninum. Ég sakna hans enn sem góðs vinar og ekki síst bara
sem manneskju sem ég ber virðingu fyrir eins og aðrir
aðdáendur hans.“
Minningarsjóður og minnisvarði
Í kjölfar heimildamyndarinnar um Jón Pál kom sú hugmynd
upp að opna vefsíðu um hann og eftir fjölda áskorana varð
það að veruleika með hjálp veffyrirtækisins Allra Átta ehf.
sem opnaði síðuna og heldur henni við í samvinnu við
Jonnu og Sigmar Frey.
„Eftir að myndin kom út voru margir í sambandi við mig
með ýmsar hugmyndir um hvernig væri hægt að halda minningu
Jóns Páls á lofti. Við stofnuðum minningarsjóð um Jón Pál; ég,
TÓKU ÁSKORUN
HJALTA ÚRSUSS
Ágúst Schmidt er sölu- og verkefnastjóri hjá Allra
Átta ehf. sem átti hugmyndina að gerð vefsíðu
um Jón Pál. Ágúst sér um alla efnisvinnslu,
uppfærslur, vinnslu á myndum og texta á
síðunni, sem og auglýsingar.
Hvenær var síðan sett í loftið?
Vefsíðan www.jonpall.is var sett í loftið í byrjun nóvember
2006.
Hver átti frumkvæðið að því?
Sú hugmynd kom strax upp hjá Jóni Trausta, eiganda Allra
Átta ehf., eftir að hann heyrði útvarpsviðtal við Hjalta Úrsus
varðandi heimildarmynd hans um Jón Pál Sigmarsson. Þar tók
Hjalti meðal annars fram að það væri afar áríðandi að koma
upp glæsilegri vefsíðu um Jón Pál heitinn og skoraði jafnframt
í leiðinni á alla vefsíðuhönnuði sem og vefsíðufyrirtæki að láta
það að veruleika verða. Upp frá því hafði Jón Trausti samband
við Hjalta svo og barnsmóður Jóns Páls, Ragnheiði Jónínu
Sverrisdóttur, og bauð fram ókeypis vefsíðuhönnun og alla
aðstoð til að láta vefsíðuna verða að veruleika.
Hver er tilgangur síðunnar?
Vefsíðan er tileinkuð og helguð minningu Jóns Páls Sig-marssonar,
þjóðarhetju okkar Íslendinga. Tilgangur síðunnar er meðal annars
sá að leyfa almenningi að fræðast um sögu Jón Páls í máli og
myndum á góðan og skemmtilegan hátt.
Hvernig viðbrögð hafið þið fengið við síðunni?
Viðbrögð við síðunni hafa verið mjög góð, miðað við að ekkert er
búið að auglýsa hana fyrir almenningi. Þrátt fyrir það voru til dæmis
heimsóknir inn á síðuna um þúsund manns í desembermánuði.
Stefnt er að því að fara út í að auglýsa hana á næstunni þannig
að það má búast við enn betri viðbrögðum og margfalt fleiri
heimsóknum inn á síðuna.
12 ský