Ský - 01.02.2007, Síða 13
ský 13
Sigmar Freyr, Sara Bjarney og Brynjar Karl,
eigandi Gym 80. Með því ætlum við að freista
þess að safna fyrir styttu og minnisvarða en við
viljum að hún verði eign þjóðarinnar og í
almenningsgarði eins og til dæmis í
Laugardalnum en verið er að vinna í því að fá
það í gegn. Einnig erum við að framleiða boli í
samvinnu við Henson sem koma munu út
síðar á þessu ári þannig að aðdáendur hans
ættu að kætast. Mér finnst ákaflega ánægjulegt
að geta unnið að þessu 14 árum eftir að Jón
Páll féll frá og gaman að sjá hvað fólk er enn
áhugasamt um hann eftir allan þennan tíma,“
segir Jonna glaðleg á svip.
Stefna á erlendan markað
Hjalti Úrsus Árnason aflraunakappi á stóran
þátt í því að heimildamyndin um Jón Pál
varð að veruleika. Hann er ákaflega ánægður
með útkomu myndarinnar og þau góðu
viðbrögð sem hún hefur fengið.
„Ég kynntist Jóni Páli í Árbæjarhverfinu í
grunnskóla. Hann var ótrúlega agaður maður
sem tók fullt tillit til annarra. Jón Páll var
mikill húmoristi og ef hann ætlaði sér
eitthvað þá var ekkert sem gat stoppað
hann,“ útskýrir Hjalti og segir jafnframt:
„Jón Páll var einn af fáum íþróttamönnum
sem einnig tjáði sig með fleiru en
íþróttaafrekunum, hann öskraði, var með
leikræna tilburði og vitnaði í fornsögur
Íslendinga. Keppnin um sterkasta mann
heims var því góður vettvangur fyrir Jón Pál
þar sem hann naut sín vel og heimsbyggðin
fylgdist grannt með. Jón Páll var að mörgu
leyti líkur Muhammed Ali þannig að við
vorum aldrei í vafa um að áhugi væri á þessu
efni um ævi Jóns Páls.“
Myndin á Arnold
Schwarzenegger Classic-
sýninguna
Kvikmyndin rann sem fyrr sagði ljúft í
landsmenn og nú er önnur heimildamynd í
bígerð, um aflraunakappann Bill Kazmier
sem Jón Páll lenti oft í hörðum slag við.
„Það kom okkur ekki beint á óvart að
myndin yrði vinsælasta heimildamynd sem
sýnd hefur verið á Íslandi því Jón Páll var
hluti af þjóðarsálinni. Hátt í 12 þúsund
manns sáu hana í bíó og þriðja upplag er á
leið til landsins af DVD-mynddiskinum,“
útskýrir Hjalti og bætir því jafnframt við að
nú sé unnið að enskri útgáfu myndarinnar
fyrir alþjóðlegan markað eftir töluverðar
fyrirspurnir erlendis frá í gegnum Netið.
Útbreiðsla myndarinnar virðist því munu
aukast enn frekar og fjöldi forvitinna
áhorfenda bætast í hópinn.
„Við erum að reyna að koma myndinni
inn á kvikmyndahátíðir og í kynningar, til
dæmis á Arnold Schwarzenegger Classic
sem er árleg heilsuræktarsýning sem haldin
er í Bandaríkjunum og yfir 200 þúsund
manns keppa á og eru áhorfendur. Einnig
erum við á byrjunarreit með mynd um Bill
Kazmier sem var helsti keppinautur Jóns
Páls heitins. Hann hefur meðal annars keppt
í ruðningi, fjölbragðaglímu og einnig á
hann heimsmet í gullfiskaáti! Við reiknum
með að sú mynd verði tilbúin eftir rúmt ár,“
segir Hjalti Úrsus og er fullur tilhlökkunar
að hefjast handa við vinnu á nýrri
heimildamynd um enn einn litskrúðugan
og vinsælan aflraunakappa.
Ekkert mál
sky
,
SÖNGLEIKURINN LEG EFTIR HUGLEIK DAGSSON OG FLÍS
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
HVAÐ ER AÐ GERAST?
ER ALLT AÐ VERÐA VITLAUST?
SÝNINGIN S
EM BEÐIÐ E
R EFTIR!
FRUMSÝNING 8. MARS