Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 17
ský 17
sumum virtist að ríkisstjórnin væri feig, rétt
eins og raunin var.
Þegar kötturinn fer í burtu bregða mýsnar
á leik, segir máltækið. Þótt ýmsir teldu
ríkisstjórnina dauðadæmda frá upphafi var
friður farinn að færast yfir samstarfið þegar
hún sprakk. Þegar Benedikt Gröndal var
snemma í október vestur í New York á
allsherjarþingi sáu þingmenn Alþýðuflokks-
ins, þeir Sighvatur Björgvinsson og
Vilmundur Gylfason, sér leik á borði, fengu
Kjartan Jóhannsson í lið með sér og
samþykktu að slíta stjórnarsamstarfinu. Sú
ákvörðun krata var til lykta leidd á fundi
ríkisstjórnarinnar 9. október 1979, daginn
áður en Alþingi kom saman að nýju eftir
sumarhlé.
„Á svikaskeri í óshólmum“
„Stjórn sem segir af sér getur ekki rofið
þing,“ sagði Ólafur Jóhannesson í viðtali við
Morgunblaðið 10. október 1979 - en hann
baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Honum var í mun að Alþýðuflokksmenn
sæti uppi með vandamálið sem þeir höfðu
stofnað til. Útkoman varð minnihluta- og
starfsstjórn undir forystu Benedikts Gröndal,
sem varin var með hlutleysi Sjálfstæðis-
flokksins. Hún tók við völdum 15. október
og sat fram í febrúar árið eftir. Þá var
landslagið í íslenskri pólitík reyndar orðið
gjörbreytt því í desemberkosningunum 1979
vann Framsóknarflokkurinn afgerandi sigur
en báðir A-flokkarnir töpuðu.
Í ævisögu sinni segir Steingrímur
Hermannsson að sér virðist sem vinstri
stjórn Ólafs Jóhannessonar hafi verið
„dauðadæmd frá upphafi.“ Þau eftirmæli eru
athyglisverð. Í leiðara 10. október 1979
sagði Morgunblaðið að öll „fyrirheitin og
faguryrðin sem flaggað var með í
kosningabaráttunni í fyrrasumar, hafa nú
steytt á svikaskeri í óshólmum vinstri
stjórnarinnar ... Ólafur Jóhannesson skildi
við landið árið 1974 með yfir 50% verðbólgu
eftir blómaskeið Viðreisnar, en miklu verst er
ástandið nú, er hann skilur við það nú með
60 til 75% verðbólgu eftir því hvernig
reiknað er. Jörundur var hundadagakóngur
og var hann kenndur við þessa 40 hundadaga,
þótt hann „ríkti“ lengur, en þessi síðasta
ríkisstjórn hefur „ríkt“ eins og stjórnlaust
rekald í 400 daga. Það hafa verið 400
hundadagar.“
Í Dagblaðinu sagði Jónas Kristjánsson að
þingmenn Alþýðuflokksins hefðu tekið
rökrétta ákvörðun með því að taka ekki „....
frekari ábyrgð á langverstu ríkisstjórn, sem
þjóðin hefur mátt þola. ... Svona endaleysa
getur hvergi ríkt nema hér á landi.“
Fjórar vinstri stjórnir
Frá lýðveldisstofnun hafa Íslendingar haft
fjórar ríkisstjórnir vinstri flokka. Þær hafa
allar verið skammlífar. Vinstri stjórn
Hermanns Jónassonar sat frá 1956 til ársloka
1958, Ólafur Jóhannesson leiddi ríkisstjórn
Framsóknarflokks, Alþýðubandalags og
Samtaka frjálslyndra og vinstri manna frá
1971 til 1974 og þá stjórn Framsóknar og
A-flokkanna, sem segir frá hér að framan.
Engin þessara stjórna lifði út heilt kjörtímabil,
né heldur stjórn Gunnars Thoroddsens sem
hann myndaði með Framsóknarflokknum
og Alþýðubandalaginu gegn meirihluta
sjálfstæðismanna. Þriggja flokka ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar sprakk haustið 1988, en
þá tóku þeir Steingrímur Hermannsson og
Jón Baldvin Hannibalsson sig saman og
mynduðu ríkisstjórn undir forsæti hins
fyrrnefnda, þar sem þeir fengu
Alþýðubandalagið undir forystu Ólafs
Ragnars Grímssonar og síðar Borgaraflokk
til liðs við sig í ríkisstjórn sem lifði út
kjörtímabilið og hélt raunar meirihluta
sínum í kosningunum 1991, naumlega þó.
Enginn áhugi var á að halda því samstarfi
áfram að kosningum loknum.
Í öllum þessum fjórum ríkisstjórnum
glímdu ráðherrar við mikinn vanda í
efnahagsmálum þjóðarinnar, sem aftur
leiddu til erfiðleika í stjórnarsamstarfinu.
Hvort samstarf í ríkisstjórn vinstri flokka
gengi betur í dag, þegar efnahagsumhverfið
er orðið allt annað, skal ósagt látið og eins
hvort vinstri flokkunum tækist að viðhalda
þeim stöðugleika sem ríkt hefur frá
þjóðarsáttarsamningunum árið 1990. Að
fólk sé bærilega samstíga skiptir öllu svo
árangur náist og má þá einu gilda úr hvaða
flokki það kemur. Veldur hver á heldur, segir
máltækið og sagan og fjarlægð tímans er
glöggskyggn dómari.
Ítalskt og gott
Bo
rð
ap
an
tan
ir
í s
ím
a 4
61
-5
85
8
Njóttu lífsins
í hjarta Akureyrar
Hafnarstræti 92 - www.bautinn.is
r
t
ir
ím
a 4
61
-
Stjórnmál
sky
,