Ský - 01.02.2007, Síða 19
ský 19
Fyrri spurningunni er tiltölulega
auðsvarað; í dag eru það þeir Jón Björn
Ríkharðsson (aldrei kallaður annað en Jónbi
og verður kallaður svo hér eftir) sem sér um
trommuleik, Hörður Stefánsson (Höddi)
spilar á bassa, Búi Bendtsen spilar á gítar og
Jens Ólafsson þenur raddböndin. Þeir koma
allstaðar að af landinu; Jónbi er alinn upp á
Dalvík, Höddi fæddist á Húsavík en fluttist
ungur að aldri til Garðabæjar, Búi er af
Seltjarnarnesinu en Jenni frá Akureyri.
Í raun og veru má segja að Brain Police,
eða forveri hennar, Vírskífa, hafi „fæðst“ í
Myllunni, en þar unnu þeir Jónbi og Höddi
saman við bakstur og sameiginlegur áhugi
þeirra á tónlist varð ljós. Vinnufélagi þeirra
þar, Vagn Leví Sigurðsson, sá um söng
hjá Vírskífu og síðar Brain Police. Stuttu
síðar flutti Gunnlaugur Lárusson, æskuvinur
Jónba, til Reykjavíkur og saman stofnuðu
þeir Gunnlaugur, Jónbi og Höddi Brain
Police, og buðu Vagni Leví, í kjölfarið, að
vera með. Í dag eru Jónbi og Höddi einu
upprunalegu meðlimir sveitarinnar.
Vínilplötuhefð dró dilk
á eftir sér
Jónbi: „Nokkrum árum síðar, í kringum
2002, vantaði okkur söngvara og ég var
staddur í heimsókn hjá gömlum vini á
Akureyri. Þetta kvöld vorum við með okkar
reglulega vínylkvöld þar sem ég og Móði
vinur minn hittum aðra félaga okkar en þetta
var hefð hjá okkur að koma saman og hlusta
á vínylplötur eftir kúnstarinnar reglum. En
þar sem okkur vantaði plötuspilara akkúrat
þetta kvöld þá leyfðum við öðrum félaga
að slást í hópinn og hann tók með sér vin
sinn sem reyndist vera Jenni. Við Jenni
þekktumst ekkert þá en náðum vel saman
þetta kvöld og í kjölfarið buðum við honum
í Brain Police.“
„Nokkrum árum eftir þetta hætti
upprunalegi gítarleikarinn okkar og við
hófum leit að nýjum en leitin reyndist frekar
stutt. Við vissum af Búa þar sem við höfðum
spilað nokkrum sinnum með hljómsveitinni
hans, Manhattan, og buðum honum að taka
stöðu gítarleikara Brain Police sem hann og
þáði.“
Hafið þið lært á hljóðfæri?
Jónbi: „Ég hef farið á eitt námskeið
í trommuleik, annars er ég sjálflærður.
Það gæti verið gaman að læra á gítar í
framtíðinni.“
Búi: „Ég fór á eitt námskeið hjá honum
Birni Thoroddsen hérna í dentíð sem var
nokkuð gott.“
Jenni: „Ég er algjörlega sjálflærður á gítar
og söng en maður getur alltaf á sig blómum
bætt!“
Eruð þið í vinnu eða skóla meðfram
spilamennsku og upptökum?
Jónbi: „Allir erum við að vinna
meðfram spilamennsku enda erum við allir
fjölskyldumenn og ekki duga tekjurnar
sem fást fyrir spilamennsku til að sjá fyrir
fjölskyldunni því tekjur Brain Police eru
ekki upp á marga fiska. Það er mjög erfitt
og kostnaðarsamt að reka rokkhljómsveit á
Íslandi því markaðurinn er svo lítill.“
Aðspurðir við hvað þeir vinna segjast þeir
helst vilja eiga einkalíf utan tónlistarinnar
og nefna því ekki meir um maka og börn til
að gefa þeim það „nafnleysi“ sem mökum
og börnum annarra og „ófrægra“ er í raun
sjálfgefið. Ég get ekki orða bundist og dáist
að strákunum fyrir hversu heilir þeir eru hvað
þetta varðar. Við erum orðin svo vön öllum
söngvurum, gítarleikurum, ættingjum þeirra,
börnum, bílum og íbúðum á forsíðunni á
Séð og heyrt að þetta var alveg ný reynsla
fyrir mig sem blaðamann!
Hljómsveit sem vill ekki ota sínu einkalífi
ofan í lesendur! Nýtt og ferskt!
Hvernig gengur ykkur að sameina störf
ykkar, hljómsveit og einkalíf?
„Það gengur mjög vel að sameina þetta
allt saman. Við erum allir í góðri vinnu og
yfirmenn okkar eru mjög skilningsríkir á
allt þetta hljómsveitarstúss og styðja okkur í
að eltast við frægð og frama. Einnig má taka
fram að allir eigum við góðar og skilningsríkar
konur og fjölskyldur almennt.“
Með aðstoð Frank Zappa
Hvernig kom nafn hljómsveitarinnar til?
„Nafnið Brain Police er komið frá meistara
Frank Zappa. Það var þannig að þegar við
vorum að leita að nafni tókum við eftir því
að ein af okkar uppáhaldshljómsveitum,
Monster Magnet, hafði tekið nafn sitt frá
Zappa og okkur datt í hug að gera slíkt hið
sama. Þannig er að á fyrstu plötu Zappa sem
heitir „Freak out“ er lag sem heitir „Return
of the son of Monster Magnet“ og einnig lag
sem heitir „Who are the Brain Police“ og við
ákváðum bara að svara þeirri spurningu.
Í rauninni kom aldrei neitt annað
nafn til greina, allavega ekkert sem er
eftirminnilegt.“
Aðspurðir hvar þeir hafa spilað erlendis
svara þeir: „Haustið 2005 fórum við í okkar
fyrstu tónleikaferð erlendis og spiluðum á
tónleikum í Þýskalandi og Svíþjóð. Síðan
endurtókum við ferð okkar til Þýskalands
haustið 2006 og spiluðum í nokkrum
borgum, meðal annars Berlín, Köln og
Chemnitz, sem hét áður Karl Marxstadt, svo
eitthvað sé nefnt.“
Hverjar eru helstu fyrirmyndir ykkar í
tónlist?
Jónbi: „Mínar fyrirmyndir eru svo margar
en til að nefna eitthvað þá eru það tveir
trommarar, Ian Paice úr Deep Purple og
John Bonham úr Led Zeppelin.“
Höddi: „Það er af svo mörgu að taka en
ég nefni Scott Reeder og Jaco Pastorius“.
Búi: „Ég lít mikið upp til Jimmy Page og
Josh Homme er í mikklu uppáhaldi.“
Jenni: „Fyrirmyndir mínar eru John
Garcia, Chris Cornell og Mike Patton.“
Þegar ég spyr um fyrirmynd í einkalífinu
verður Höddi einn til svars: „Þar sem ég
er gamall kraftlyftingamaður þá nefni ég
að sjálfsögðu Jón Pál Sigmarsson sem er
goðsögn og var það í rauninni einnig í
lifanda lífi.“
Eigið þið eitthvert uppáhaldslag með Brain
Police?
„Ég held að við getum allir sagt að lögin
okkar eru svo frábær að það er ekki hægt
að velja eitthvert eitt úr! En yfirleitt er það
„nýja“ lagið sem er skemmtilegast að spila
þá og þegar því það er nýjast.“
Rokk