Ský - 01.02.2007, Síða 24
24 ský
„Það var mjög áhugavert að sjá hvernig
íslensk kvikmyndagerð fer fram og það var
mjög skemmtilegt að vinna með íslenskum
leikurum. Ég tel mig afar heppna að geta
upplifað marga ólíka heima, aðferðir,
hugmyndir og fólk. Ég reyni að drekka það í
mig eins og svampur, sem svo gerir hausinn
á mér virkari. Mér finnst spennandi að finna
krefjandi aðstæður en það gerir mér kleift að
læra enn meira,“ segir Aníta brosandi.
Á næsta leik
Aníta er ekki á leið heim í bráð, enda
nýtur hún velgengni í hinum stóra heimi
kvikmyndanna og vonast eftir fleiri og
ögrandi tækifærum innan hans.
„Ég held áfram að gera mitt hér í Los
Angeles en lífið er stundum svolítið tafl. Ég
held að ég eigi næsta leik og allt er á réttri
braut. Ég umgengst margt skapandi fólk og
nýt þess að kanna þennan kvikmyndaheim
og mína eigin sköpunargleði og þekkingu
á mínu sem og öðrum sviðum. Það leynast
margir gimsteinar í þessari borg ef maður
veit hvar á að leita. Ég er rétt að byrja að
hefja mína leit.“
Hvernig kviknaði hugmyndin að Kaldri Slóð?
Fyrsta hugmyndin að Kaldri slóð kom þegar
ég var að kvikmynda Njálu sumarið 2001.
Þá vorum við að mynda í sögualdarbænum í
Þjórsárdal og bjuggum í Búrfellsvirkjun. Þá
fór ég að hugsa um líf í virkjun.
Hvernig gengu tökur myndarinnar?
Taka myndarinnar var mjög skemmtileg en
skratti erfið eins og hægt er að ímynda sér, með
öll þessi tæki og allt þetta fólk uppi á hálendi
Íslands um hávetur. Eftirvinnslan fór fram í
London í nýrri tölvu sem gaf okkur kost á
að gera útlit myndarinnar mjög sérstakt. Það
liðu fjórtán mánuðir frá fyrstu æfingum til
frumsýningar en forvinnslan tók fjögur ár.
Ertu ánægður með þær móttökur sem myndin
hefur fengið?
Já, heldur betur. Myndin hefur fengið
frábærar viðtökur og rífandi aðsókn þannig
að það er ekki hægt að biðja um það betra.
Hvað er næst á dagskrá hjá þér?
Í kvikmyndagerðinni er maður alltaf með
nokkur járn í eldinum og er misjafnlega langt
á veg kominn. Það fer svo eftir fjármögnun
og ýmsu öðru hvað ég geri næst. En það er
enginn hörgull á hugmyndum.
HUGMYNDIN KVIKNAÐI
ÚT FRÁ NJÁLU
Björn B. Björnsson, leikstjóri myndarinnar,
segist hafa valið leikara eftir hæfni og að aðalleikarar
hennar hafi smellpassað í hlutverk sín.
leita meðal annars í London og Ástralíu. Ég fór
í prufu og tveimur dögum síðar var ég á leið til
Los Angeles þar sem ég fór í frekari prufur.“
„Ég las fyrir þá þrjú verkefni og hélt aftur
til London. Viku seinna sendu þeir eftir mér
aftur til að lesa fyrir þáttaröðina The Evidence.
Eftir prufu fyrir Warner Brothers og aðra fyrir
þessa hæst settu hjá ABC og síðan „screen test“
fékk ég rulluna. Serían gekk í nokkra mánuði
en er nú hætt. Þá var ég í góðri stöðu til að
skoða mig um í Ameríku og var laus til að gera
New Line-kvikmyndina Journey 3-D með
Brendan Fraser í aðalhlutverki sem er byggð á
Journey to the Center of the Earth eftir Jules
Verne. Myndin kemur út á næsta ári og það
verður spennandi að sjá útkomuna. Það var
mjög skemmtilegt að taka þátt í myndinni og
að kynnast amerískri kvikmyndagerð en svo er
þetta mjög góð viðbót við ferilskrána.“
Forréttindi og ferðalög
Aníta er svo lánsöm að geta lifað af leiklistinni
en stutt er síðan hún lauk námi.
„Það eru mikil forréttindi að geta komið að
svona mörgum ólíkum hliðum bransans því það
er alltaf eitthvað nýtt að læra. Kvikmyndaleikur
er eiginlega önnur starfsgrein en leikhús. Síðan
hef ég fengið að ferðast mikið og á síðustu
tveimur árum hef ég unnið í London, á
Íslandi, Barcelona, San Francisco, Vancouver
og Montreal með stoppum í Toronto, New
York og Los Angeles.“
Hlutverk á Íslandi
Þegar Aníta var komin að hjá ABC-
sjónvarpsstöðinni og fékk hið frábæra
tækifæri að leika í sjónvarpsþáttaröð fékk
hún símtal frá Íslandi og bauðst hlutverk í
kvikmyndinni Köld slóð.
„Björn leikstjóri hafði samband við mig og
bað mig að koma og lesa með Þresti. Maður
hafnar ekki svoleiðis boðum. Síðan steyptist ég
í tökur á The Evidence og sagði Birni að líklega
rækjust verkefnin saman svo að best væri að
hann fyndi sér aðra dömu í hlutverkið. Hann
sagðist ekki hafa áhuga á að „finna sér aðra
dömu“ eins og ég hafði orðað það og sagðist
taka sénsinn á að þetta myndi ganga upp. Þetta
small allt saman.“
Þátttaka Anítu í myndinni stóð aðeins
yfir í fjóra daga og hún var að leika á
móðurmálinu í fyrsta skipti í sjö ár.
Íslensk kvikmynd