Ský - 01.02.2007, Qupperneq 25
Einhverra hluta vegna þarf alltaf eitthvað að vesenast í hárinu á mér fyrir hlutverk sem ég fer í. Ég sá alltaf
Freyju fyrir mér ljóshærða en útlitshönnuðir
myndarinnar vildu mig dökkhærða þannig
að hafist var handa við hárlitanir. Fyrst var
ég lituð dökkhærð, síðan brúnhærð, svo var
ég orðin rauðhærð og endaði ljóshærð.“ Elva
Ósk bætir því við að einnig hafi hún verið
beðin að fita sig örlítið fyrir hlutverkið og að
það hafi reynst sér leikur einn.
Stutt í sveitalubbann
Elva Ósk segir það hafa verið mjög skemmtilega
reynslu að taka þátt í að gera kvikmyndina.
„Það var að sjálfsögðu töluverður
undirbúningur fyrir persónusköpun en ég er
jú leikkona og kann að vinna með tilfinningar.
Ég er alin upp úti á landi þannig að stutt var að
kafa eftir sveitalubbanum í mér“
„Bíóbransinn er ekki stór hér á landi þannig
að flestir þekkjast innbyrðis og hafa unnið
saman áður. Ég var þó að kynnast Birni
Brynjólfi leikstjóra. Þar er mikill öðlingur á
ferð og sama má segja um Víði tökumann.
Aðstoðarleikstjóri var engin önnur en Garún
og hún er frábær.“
Aðstæður á tökustað reyndu oft og tíðum
mikið á leikarana.
„Oft voru erfiðar aðstæður en ég varð
aldrei hrædd vegna þess að vel var staðið að
öryggismálum. Þegar hæðin var mikil, eins
og þegar tekið var upp á mjórri göngubrú í
Búrfellsvirkjun, vorum við leikararnir settir í
líflínu. Eins var björgunarsveit viðstödd tökur
við Háafoss en þar vorum við tengd í líflínur við
að leika slagsmálaatriði úti á hengibrún þar sem
200 metra þverhnípi var niður í grýtta jörð.“
Leikhúslíf og plötusamningur
Elva Ósk er afar sátt við útkomu myndarinnar
og segir að það hafi tekist sem lagt var af
stað með, það er að búa til alvöru íslenska
spennumynd.
„Ég lék í spennuþáttaröðinni Erninum en
var aldrei stödd þar í miðri spennuhringiðunni
þannig að Köld slóð er fyrsta spennumyndin
sem ég leik í. Hraðinn og spennan í myndinni
hentar mér vel og ég gæti alveg hugsað mér
að leika í fleiri spennumyndum. Í sjálfu sér
er ekkert öðruvísi að vinna spennuhlutverk
og dramahlutverk. Allt er þetta af sama
meiði og þarf að koma frá hjartanu,“ segir
Elva Ósk og aðspurð um hvað sé framundan
hjá henni svarar hún: „Ég er að byrja að æfa
verk í Þjóðleikhúsinu eftir Eric-Emmanuel
Schmitt. Leikritið heitir Hjónabandsglæpir
og Edda Heiðrún Backman mun leikstýra
því. Síðan er ýmislegt spennandi á borðinu
sem ég er að skoða og get ekki tjáð mig
um enn sem komið er. Við í hljómsveitinni
Heimilistónum gerðum nýlega tveggja plötu
samning og gefum út disk í vor þannig að það
er nóg að gera!“
LEIKURINN KEMUR FRÁ HJARTANU
Elva Ósk Ólafsdóttir fer með burðarhlutverk í kvikmyndinni Kaldri slóð
sem Freyja er býr á afskekktum sveitabæ nálægt virkjuninni þar sem aðaldramatík myndarinnar
fer fram. Þetta er fyrsta spennumyndin sem hún leikur í en skemmst er minnast þess að Elva
Ósk lék aukahlutverk í dönsku spennuþáttaröðinni Örninn.
Nafn: Elva Ósk Ólafsdóttir.
Stjörnumerki: Meyja.
Hjúskaparstaða: Draumaprinsinn
er þarna úti einhvers staðar.
Börn: Tvö.
Gæludýr: Boris, norskur
skógarköttur.
Áhugamál: Tónlist, fólk og
náttúran.
Uppáhaldsleikari: Allt of margir.
Mottó: Að njóta og lifa í núinu.
ský 25
Elva leikur Freyju
„Ég leik Freyju sem býr með veikri móður sinni á
afskekktum sveitabæ nálægt virkjun. Freyja vinnur
við að flytja póst og kost upp í virkjun. Hún er sterk
kona og algjör töffari. Þegar Baldur (Þröstur) ræður
sig til vinnu í virkjuninni sér Freyja um að koma
honum þangað. Með þeim tekst góður vinskapur
og ýmislegt meira sem ég vil ekki segja frá.“
Íslensk kvikmynd