Ský - 01.02.2007, Qupperneq 26
26 ský
Stutt og laggott
Skerpa, stofnuð: 1989
Fjöldi starfsmanna: 4
Snúningar á dag: 7200
Kaffitími: 15 mín.
Þín starfsemi skiptir okkur öll miklu máli
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
35
93
4
01
/0
7
Landsbankinn hefur á að skipa um 150 sérhæfðum
starfsmönnum í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta
að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu
og trausta fjármálaráðgjöf.
Þannig er minni og meðalstórum fyrirtækjum gert
kleift að dafna og ná settu marki og á sama tíma
stuðlum við saman að fjölbreyttu og kraftmiklu
viðskiptalífi á Íslandi.
Landsbankinn er með víðtækasta útibúanet á landinu.
Það tryggir viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu og
persónulega ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers
og eins.
Hafðu samband í síma 410 4000 eða með tölvupósti
á fyrirtaeki@landsbanki.is og sjáðu hvað við getum
gert fyrir þig.
Minni og meðalstór fyrirtæki gegna þýðingarmiklu
hlutverki í íslensku viðskiptalífi
Allt ferlið í kringum myndina var mjög ánægjulegt. Við byrjuðum snemma að lesa öll saman og í
rauninni nokkrum mánuðum áður en tökur
hófust sem er ekki algengt. Síðan unnum
við, kjarni leikaranna, í nokkrar vikur að
handritinu ásamt Birni leikstjóra og fleirum
sem að myndinni unnu og komum okkur
vel inn í hlutina, sem skilaði sér vel,“ segir
Helgi.
Frá Otkeli til Karls
Helgi er einn fjögurra aðalleikara í myndinni
og leikur Karl, sem er alíslensk persóna
sem hefur starfað í virkjuninni þar sem
aðalsögusvið myndarinnar er, í nokkurn
tíma.
„Það er best að spyrja leikstjórann að því
af hverju ég varð fyrir valinu sem einn af
leikurum í myndinni. Ég geri ráð fyrir að
Birni hafi fundist ég passa í hlutverkið og
að ég sé afspyrnu góður leikari,“ segir Helgi
og hlær við.
„Það getur líka komið til af því að ég lék
í Njálssögu árið 2005 sem Björn leikstýrði
en þar áttum við mjög gott samstarf. Í
þættinum í Njálssögu sem ég lék í var ég
Otkell en hann fjallar um samskipti hans
og Gunnars á Hlíðarenda. Otkell var ríkur
maður og leiðinlegur við Gunnar. Hann
neitaði að lána honum mat og vistir en á
endanum drap Gunnar Otkel ásamt mörgum
fleirum,“ útskýrir Helgi, um fyrra samstarf
sitt og Björns og þátt sinn í Njálssögu.
Margt á döfinni
Helga leist í upphafi vel á þá persónu sem
hann lék í Kaldri slóð og er mjög ánægður
með útkomuna. Segir vinnuna hafa verið vel
þess virði.
„Það er alltaf ákveðið krefjandi að leika
í kvikmyndum en þetta var góður hópur
MARGT Á DÖFINNI
Helgi Björnsson er nú búsettur í Þýskalandi
þar sem hann mun brátt seðja hungraða leikhúsgesti
í Berlínarborg með fjölbreyttum sýningum
í leikhúsinu Admiralspalast. Honum fannst afar
ánægjulegt að taka þátt í kvikmyndinni Kaldri slóð
en þetta var frumraun hans í spennumyndaleik.
Nafn: Helgi Björnsson
Stjörnumerki: Krabbi.
Hjúskaparstaða: Giftur Vilborgu
Halldórsdóttur.
Börn: Þrjú.
Áhugamál: Hestamennska.
Uppáhaldsleikari: Jón Sigurbjörnsson.
Mottó: Að brosa oft og mikið
og hafa gaman af lífinu.