Ský - 01.02.2007, Page 27
ský 27
Stutt og laggott
og gott handrit og það var einstaklega gott
að vinna með Birni. Það er alltaf krefjandi
að leika og getur verið erfitt að leika í
kvikmyndum. Þá þarf að endurtaka hluti og
ná fram sömu stemningunni aftur og aftur.
Það getur oft verið mikil bið en jafnframt
þarf maður alltaf að vera tilbúinn þegar
að manni kemur. Maður þarf að vera vel
vakandi og með kveikt á öllum kösturum,“
segir Helgi brosandi.
Helgi hefur verið búsettur í Þýskalandi í
nokkurn tíma vegna vinnu sinnar en kemur
alltaf reglulega heim og er langt frá því að
vera sestur að úti eins og hann orðar það.
„Ég er búsettur í Berlín og er að koma
upp og reka leikhús hér, Admiralspalast,
sem er ákaflega spennandi verkefni og margt
að gerast þar. Fljótlega kem ég þó aftur
heim til Íslands í stutt stopp því Síðan
Skein Sól heldur 20 ára afmælistónleika í
Borgarleikhúsinu síðasta vetrardag. Ég er
einnig svolítið að fást við tónlist hér úti í
Þýskalandi og syng með þýsku stórbandi
hér þannig að það er margt á döfinni
og skemmtilegt að lifa,“ útskýrir Helgi,
ánægður með lífið og tilveruna.
Skerpa, stofnuð: 1989
Fjöldi starfsmanna: 4
Snúningar á dag: 7200
Kaffitími: 15 mín.
Þín starfsemi skiptir okkur öll miklu máli
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
35
93
4
01
/0
7
Landsbankinn hefur á að skipa um 150 sérhæfðum
starfsmönnum í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta
að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu
og trausta fjármálaráðgjöf.
Þannig er minni og meðalstórum fyrirtækjum gert
kleift að dafna og ná settu marki og á sama tíma
stuðlum við saman að fjölbreyttu og kraftmiklu
viðskiptalífi á Íslandi.
Landsbankinn er með víðtækasta útibúanet á landinu.
Það tryggir viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu og
persónulega ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers
og eins.
Hafðu samband í síma 410 4000 eða með tölvupósti
á fyrirtaeki@landsbanki.is og sjáðu hvað við getum
gert fyrir þig.
Minni og meðalstór fyrirtæki gegna þýðingarmiklu
hlutverki í íslensku viðskiptalífi
Helgi leikur Karl
Karl er eiginlega alíslenskur persónuleiki og maður hefur
hitt þá ýmsa eins og hann í gegnum lífið og í gegnum ferðir
manns um landið og miðin. Hann er svolítill sveitamaður í sér
og svona ekta fyrir sig. Karl er stoltur af sér og sínum en hann
hefur búið í virkjun í þó nokkurn tíma og er því í einangruðu
samfélagi sem er frekar andsnúið ókunnugum en hitt.sky,