Ský - 01.02.2007, Page 28
28 ský
Sú bók - eða öllu heldur örbók - sem kom hvað mest á óvart í jólabókaflóðinu var fyrsta ævisaga
Óttars Martins Norðfjörð, Hannes - Nóttin
er blá, mamma. Þar, á fjórum blaðsíðum,
fer Óttar yfir fyrsta æviskeið Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar. Sú bók reyndist
vera fjórða mest selda bók ársins hjá Máli
og menningu og Eymundsson. Áður hefur
Óttar gefið út Barnagælur (skáldsögu sem
kom út 2005) og nokkrar ljóðabækur hjá
Nýhil. Best er þó að byrja á byrjuninni, en
ekki hvað - og forvitnast um Óttar Martin:
Hann er fæddur í Reykjavík, í lok janúar
árið 1980, sonur arkitektahjónanna Sverris
Norðfjörð og Alenu F. Anderlovu. Móðir
hans er upphaflega tékknesk en er íslenskur
ríkisborgari í dag: „Þegar ég var krakki talaði
ég tékknesku og íslensku fram að fimm
ára aldri en eftir því sem mamma kunni
meira í íslenskunni fór ég að detta út úr
tékkneskunni. Ég skil þó mikið í tékknesku,
hún talar við mig á tékknesku og ég svara á
íslensku. Ég á foreldrum mínum mikið að
þakka sem rithöfundur, bæði hvað varðar
tækifæri og innblástur.“
Hvaða nám hefurðu stundað?
„Ég er með BA- og MA-gráðu í heimspeki
frá Háskóla Íslands. Auk þess hef ég stundað
nám við Myndlistarskólann í Reykjavík og
tungumálanám í Heidelberg, Nice og Sevilla.
Þar að auki bjó ég um tíma í Köben svo ég
kann nokkuð í þó nokkrum tungumálum!“
Fyrir utan skriftir vann Óttar sem
ritstjóri Menningarblaðs DV og vann einnig
dágóðan tíma við Háskóla Íslands fyrir ólíka
prófessora. Hann segir þó skemmtilegast
hafa verið að baka pizzur á Eldsmiðjunni.
Hefurðu alltaf fylgst með Hannesi
Hólmsteini?
„Í svolitla stund. Viðhorf hans til heimsins
varð mér þó ljóslifandi þegar hann hélt
fyrirlestur í námskeiði sem ég sótti í MH
árið 1997, stjórnmálafræði 103. Mig minnir
að ein stelpa hafi gengið út.“
Hver var kveikjan að bókinni?
„Ég held að bækur eigi sér margar kveikjur,
sem renna loks saman og mynda hugmynd
að einni bók. Kveikjurnar að þessari bók voru
ýmsar, til dæmis allt grínið og hysterian sem
fylgir jólabókaflóðinu, ákvörðun Hannesar
að skrifa ævisögu um Halldór Laxness
þrátt fyrir andstöðu fjölskyldu Laxness,
hversu stofnanabundnar hugmyndir fólks
eru orðnar um fyrirbæri eins og ævisögur,
skáldsögur og ljóðabækur - fólk er með
fyrirfram hugmyndir um hvernig þær eiga
að líta út og það fer í taugarnar á mér. Þetta
var nú það sem gerjaðist í höfðinu á mér
áður en ég skrifaði Hannes - Nóttin er blá,
mamma.“
Hvað eru mörg bindi eftir?
„Tvö, „Hólmsteinn“ og „Gissurarson“!!“
Texti: Lízella Myndir: Geir Ólafsson
EYDDI
KLUKKUSTUND
Í RITSTÖRFIN
Jólabókin