Ský - 01.02.2007, Qupperneq 29
ský 29
Hannes sagði í viðtali að þú hefðir ekki
skrifað ævisöguna í samráði við hann en var
engu að síður sáttur við framtakið. Áttirðu
von á því?
„Bæði og. Ég hafði heyrt útundan mér
að hann væri húmoristi og tæki þessu
hugsanlega bara vel. Hann sagði reyndar í
öðru viðtali síðar að bókin væru húmorslaus
og að þess vegna hefði hann ekki húmor
fyrir henni. Ég veit því ekki alveg hvar hann
stendur með þetta allt saman.“
Gafstu Hannesi bók?
„Að sjálfsögðu, sendi honum eitt fyrsta
eintakið, áritað og allt.“
Ertu með aðra í sigtinu sem þig langar að
skrifa um?
„Svona örævisögu? Já, eftir að ég sá hversu
vel þetta féll í fólk þá hef ég nú verið að fikra
mig áfram, leita að nýjum fórnarlömbum.
Er reyndar nú þegar búinn að skrifa aðra,
um kærustuna mína sem hún fékk í jólagjöf.
Gjöfin féll vel í kramið hjá henni!“
Hann segir tímann sem fór í vinnuna
við bókina um Hannes hafa verið um
klukkustund en því er ekki að neita að
húmor rithöfundarins fer ekki framhjá
manni við lesturinn. Finnst þér sjálfum
mikilvægt að sjá húmor höfundar í þeim
bókum sem þú lest?
„Já, ef bókin er á annað borð hugsuð sem
grín eða glettin. Ég geri samt enga kröfu
til bóka að þær séu fyndnar, mér finnst
alveg jafngaman að lesa Sjón og Hallgrím
Helgason.“
Þú lést allan ágóða af bókinni renna til
Mæðrastyrksnefndar, sem er aðdáunarvert
framtak. Fannst þér erfitt að finna
líknarfélag eða góðgerðarsamtök til að láta
ágóðann renna til?
„Nei, alls ekki. Hugmyndin um að gefa
peninginn kom upphaflega frá vinkonu
minni og fyrst þetta var jólabók þótti mér
tilvalið að velja Mæðrastyrksnefnd, enda eru
hún áberandi fyrir jólin. Þær taka við öllu frá
öllum og voru því ánægðir með styrkinn.“
Endanleg upphæð sem mun renna til
Mæðrastyrksnefndar er ekki enn komin í
ljós en það ætti að skýrast þegar fer að líða á
febrúarmánuð. Óttar segist hlakka til að gefa
nefndinni peningana sem safnast hefur.
Ætlarðu að styrkja önnur góðgerðarsamtök
með næstu bókum eða fara að starfa sem
rithöfundur í fullu starfi?
„Ég á enn eftir að ákveða það, mig
grunar þó að ég muni gefa einhverjum
góðgerðarsamtökum peninginn en greiða
mér lágmarkslaun fyrir vinnuna, enda
reyndist vinnan við þetta fyrsta bindi miklu
meiri en ég hafði gert ráð fyrir.“
Hvernig sér þessi ungi, greindi og bráðfyndni
upprennandi rithöfundur framtíðina fyrir sér?
„Maður heldur bara áfram að skrifa og reyna
láta sér detta í hug sniðug viðfangsefni sem
hrista aðeins upp í heiminum, enda þykja mér
þannig bækur skemmtilegastar - sem brúa
það bil að vera skemmtilegar aflestrar en vekja
fólk þó vonandi til smáumhugsunar.“
Óttar með brandarann sem varð metsölubók.
Jólabókin
sky
,