Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 34
34 ský
Gunnar Hjálmarsson, Dr. Gunni
Lög sem hafa dvalið með
mér frá því í bernsku
„Að skrifa topp 10 lista yfir bestu Bítlalögin er eiginlega
algert glapræði því nánast öll lög þessarar langbestu
sveitar síðustu aldar eru frábær og flest meira en það.
Lögin sem ég valdi hafa því öll einhverja persónulega
skírskotun. All you need is love er fyrsta lagið sem ég æfði
með hljómsveit (hljómsveitinni Hraun), eitt dreymdi
mig mjög skýrt nýlega (No reply), Yellow Submarine er
eina lagið sem ég syng í karókí (sem Dj Stalin) og eitt
var uppáhaldslag okkar félaganna á fylliríum í marga
mánuði í grárri forneskju (Baby you’re a rich man). Öll
hafa lögin dvalið með mér frá því í bernsku, eða síðan
ég fékk Bítlaæði um 1976 samfara því að „rauðu og bláu
safnplöturnar“ komust einhvern veginn inn á heimilið.
Bítlar að eilífu!“
1. All You Need is Love
2. Strawberry Fields Forever
3. Baby You’re a Rich Man
4. Good Day Sunshine
5. No Reply
6. I Feel Fine
7. Getting Better
8. Day Tripper
9. Helter Skelter
10. Yellow Submarine
Pálmi Sigurhjartarson
Hefði getað sett fram nokkra lista
„Að setja saman lista með tíu uppáhalds Bítlalögunum er í raun og veru ekki mjög sanngjarnt gagnvart einstaklingum sem hafa frá unga aldri
verið haldnir „bítlaæði“ þar sem úr svo mörgum frábærum lögum er að velja. Ég hefði þess vegna getað sett fram nokkra svona tíu laga lista
en við skulum gefa okkur það að þessi listi hér fyrir neðan, sé listi dagsins í dag ... en gæti breyst á morgun. Lengi lifi Bítlarnir!“
1. And I Love Her
2. Eleanor Rigby
3. Your Mother Should Know
3. Strawberry Fields Forever
4. Happiness is a Warm Gun
5. Something
6. Golden Slumbers
7. Because
8. She’ s leaving home
9 Nowhere Man
10. Come Together
Bítlalögin
sky
,